Heimili og skóli - 01.10.1987, Side 21
Kennslur áðgj afar
Undanfarin ár hefur mennta-
málaráðuneytið haft starfs-
menn, svokallaðaleiðbeinend-
ur í íslensku og stærðfræði í
öllum fræðsluumdæmum
nema Reykjavík og Reykja-
nesi. Starfsmenn þessir voru
fulltrúar námsstjóra í héraði
og undirmenn þeirra.
Leiðbeinendur sem bjuggu
nálægt fræðsluskrifstofum
áttu þess yfirleitt kost að fá
vinnuaðstöðu þar, hinir sinntú
störfum sínum heima við eða í
skólum, sem þeir störfuðu við.
Hluti starfsins fólst í ferðalög-
um milli skóla til kynningar á
nýju námsefni og hugmynda-
banka, þ.e.a.s. verkefnum í
umsjá leiðbeinenda.
Starfsheitið ,, leiðbeinandi ’ ’
hefur nú skipt um merkingu
og er notað um réttindalausa
starfsmenn skólanna og því
hefur starfsheitið kennsluráð-
gjafi verið tekið upp í stað
þess.
Auk breytingar á starfs-
heiti hefur starfið verið
flutt frá menntamálaráðu-
neyti til fræðsluskrifstofanna.
Kennsluráðgjafar verða fram-
vegis starfsmenn umdæm-
anna.
Ekki er ljóst, hvernig störf
þessi verða skipuð í vetur.
Ingibjörg Auðunsdóttir,
kennsluráðgjafi er í launa-
lausu leyfi um óákveðinn
tíma, kennsluráðgjafi í stærð-
fræði er enginn og undirrituð
aðeins í K hluta starfs. Von-
andi verður fljótlega breyting á
þessu til batnaðar.
En spurningin er hvort for-
eldrar gætu nýtt sér þessa
þjónustu. í raun er hún ekki
hugsuð fyrir foreldra, en eins
og aðstaðan er hér, er ekkert
sjálfsagðara en foreldrar komi
á skrifstofuna, ef þá langar til
þess að fræðast um eitthvað
sem þeir treysta sér ekki til
þess að ræða við kennara, en
auðvitað er eðlilegast að for-
eldrar snúi sér til kennara
barna sinna, hafi þeir einhverj-
ar spurningar um námsefni
eða námskrá.
A fræðsluskrifstofunni
Furuvöllum 13, Akureyri, er
góður andi og yfirleitt kaffi á
könnunni. Við bjóðum for-
eldra velkomna og bendum
sérstaklega á að við erum við á
kennsludeild á mánudögum
frá kl. 16-18. Síminn er 24655.
Hilda Tbrfadóttir.
VIÐ
AUGLÝSUM
KJÖRBÓKINA
Og nú er ekkert En !
Kjörbók Landsbankans er góður kostur til þess
að ávaxta sparifé: Hún ber háa vexti, hún er tryggð gagnvart
verðbólgu með reglulegum samanburði við vísitölutryggða
reikninga og innistœðan er algjörlega óbundin.
Kjörbókin er engin smárœðis bók.
Þú getur bæði lagt traust þitt og sparifé á Kjörbókina.
Góða bók fyrir bjarta framtíð!
Landsbanki
íslands
21