Heimili og skóli


Heimili og skóli - 01.10.1987, Side 22

Heimili og skóli - 01.10.1987, Side 22
Herdís Brynjólfsdóttir, Laugabakkaskóla í reglugerð no. 270 um sér- kennslu 1. gr. segir að: ,,skóla- skyldir nemendur, sem taldir eru víkja svo frá eðlilegum þroskaferli að þeir fái ekki not- ið venjulegrar kennslu, eigi rétt á sérstakri kennslu við sitt hæfi.” í 19. gr. er fjallað um sér- deildir: , ,a) menntamálaráðuneytið beitir sér fyrir því að í hverju fræðsluumdæmi verði komið á fót sérdeild eða deildum í tengslum við grunnskóla’ ’. Nú er það svo að fræðsluumdæmi Norðurlands vestra nær yfir stórt svæði. Því er það afar mikilvægt fyrir okkur, sem þar störfum, að sérdeild þessi sé vel mönnuð sérhæfðu starfs- fólki. Það virðist samt ekki liggja á lausu, þetta sérhæfða starfsfólk, enda kannski ekk- ert undarlegt miðað við að- búnað þess. Vegna þess hve byggð er dreifð í þessu fræðsluumdæmi er ekki hægt að ráða sérkenn- ara og sálfræðing við hvern skóla. En við höfum þó ráð- gjafar- og sálfræðiþjónustu, staðsetta á Blönduósi. Starfs- svið hennar er skilgreint í lög- um og reglugerðum og hefur hún reynt að vera virkur upp- eldis- og kennslufræðilegur ráðgjafaraðili í skólastarfi um- dæmisins auk hjálpar og ráð- gjafarþjónustu. Samkvæmt þeirra skilgreiningu ber þjón- ustunni að aðstoða kennara og foreldra með tillögum um sér- kennslu og ráðgjöf, og vera skólastjórum og kennurum til ráðuneytis um kennslu nem- enda sem rannsakaðir eru. Langur vegur er frá því að unnt sé að sinna þessu starfi þannig að allri þörf sé fullnægt og þó hefur mikið áunnist á síðustu árum. Mikilvægt er að fjölga sérmenntuðu starfsfólki við ffæðsluskrifstofuna svo þörf- inni verði fullnægt. Þessi þjón- usta hefur sýnt hversu mikil- væg hún er fýrir okkur, sem að þessum málum vinna. Eins hefur það verið okkur mikill styrkur að hafa fræðsluskrif- stofuna hér í byggðarlaginu, en þurfa ekki að leita úrlausna langt að. En betur má ef duga skal og vil ég leggja áherslu á að þörf er á úrbótum eins og fjölgun starfsfólks svo það anni verkefnum, ef lögum á að vera fullnægt. Hvernig líta málefai fi'æðsluskrifstofu út frá sjónarhóli litla sveitarskólans - Sveinbjörn Markús Njálsson, Hólum í Hjaltadal - Þar er fyrst til að taka þjón- ustuhlutverkið. Dómur kenn- ara og skólastjórnenda sem þekkja af eigin raun skipulag mála fyrir setningu grunn- skólalaga 1974 og svo eftir að lögin voru samþykkt er eftir- tektarverður. Flestir sem ég hef talað við erum sammála um að stökkbreyting til hins betra hafi átt sér stað. Frá- gangur á vinnuskýrslum, út- reikningar á kennslustund- um, sálfræðiþjónusta, sér- kennsluþjónusta, svo eitthvað 22 sé netnt, færðist út til fólksins, nær skólunum og hafa fræðsluskrifstofurnar því orð- ið miðpunktur skólastarfs í hverju umdæmi (Reykjavík undanskilin). Það er hverjum ljóst sem starfað hefur að skólamálum ,,úti á landi” að forsenda þess að nemendur, kennarar, og aðrir starfsmenn skóla standi jafnfætis þjðn- ustu þéttbýlisins á suðvestur horninu er tilvist góðrar og virkrar fræðsluskrifstofu. Það hefur lengi verið og verð- ur ein af lausnum þéttbýlis- staða, að fá börn og unglinga sem átt hafa í erfiðleikum, t.d.

x

Heimili og skóli

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heimili og skóli
https://timarit.is/publication/1878

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.