Heimili og skóli - 01.10.1987, Side 27
er að velja til að minnka bilið
milli grunnskóla- og fram-
haldsskólastigs. Önnur er sú
að skipta bama- og unglinga-
skólanum á ný í áfanga eins og
menn muna að gert var sam-
kvæmt fyrri fræðslulögum:
Barnapróf, unglingapróf, mið-
skólapróf og gagnfræðapróf.
Hin er sú að fella niður öll próf
í framhaldsskólanum nema
lokapróf. Það ætti reyndar að
vera einfalt mál því fólk kemur
auðvitað í framhaldsskólana
til að afla sér þekkingar og
aukinnar fæmi í hinum ýmsu
menntagreinum, verklegra
sem bóklegra. Kannski þyrfti
þó að gefa hverjum og einum
vottorð um skólasókn?
Vafalítið hafa grunnskóla-
lögin frá 1974 breytt innra
starfi bama- og unglingaskóla,
sem eftir það nefndust gmnn-
skólar, úr föstum skorðum
prófakennslunnar í frjálsara
og fjölbreyttara starf. Hins
vegar man ég ekki betur en ég
sæi á prenti um líkt leyti að
framhaldsskólinn skyldi í
engu breyta kröfum sínum.
Þetta held ég sé ein megin-
ástæðan fyrir vangengni
margra fyrstaársnema fram-
haldsskóla á þeirri tíð.
Mér urðu það vonbrigði tals-
verð að félög kennara á skóla-
stigunum tveimur skyldu ekki
sameinuð og einnig hitt að tvö
starfsheiti vom lögfest og látið
ráða hvar kennaramenntun
var fengin og á hvaða stigi
kennt. Hið síðarnefnda er þó
léttvægt því trúlega hverfa
bæði lögvernduðu heitin undir
grænan svörð innan tíðar og
eftir stendur starfsheitið
,,kennari” sem áður.
Af ofansögðu má ljóst vera
að bil milli gmnnskóla- og
framhaldsskólastigs er tals-
vert, - bil sem kennarar sjálfir
gætu minnkað með samvinnu
og kynningu. Þeir mættu vel
kynna sér betur starfið á stig-
inu sem þeir kenna ekki sjálfir
við.
Undanfarin haust hafa verið
haldnir á Akureyri fundir
kennara við framhaldsskóla á
svæðinu frá Hrútafirði til
Húsavíkur. Þessa fundi hafa
einnig sótt grunnskólakennar-
ar sem kennt hafa við fram-
haldsdeildir þeirra. Þarna
kynntist fólk persónulega og
fór að líta á hlutina frá fleiri
sjónarhomum. Þessir fundir
mega ekki leggjast af og helst
þyrftu þangað að koma menn
frá fleiri gmnnskólum þótt
ekki kenni á framhaldsskóla-
stigi. Persónuleg kynni og fag-
leg skoðanaskipti þurfa að
aukast milli kennara skóla-
stiganna tveggja. Með því
ykjust líkur á því að bæði
skólastigin yrðu ein heild og
skiluðu frá sér betur menntu
fólki. Er það ekki takmarkið
sem allir uppalendur hljóta að
keppa að?
Þórir Jónsson.
V
...MEÐA NOTUNUM
Akureyrí
-nútima banki
27