Læknaneminn - 01.07.1964, Blaðsíða 20
20
LÆKNANEMINN
FRÁ STÚDENTASKIPTUM
Nú er daginn tekið að lengja
og bjartsýnir læknanemar farnir
að gá að fíflum í túnum. Undir-
búningur stúdentaskipta þessa árs
er hafinn og nú er ekki úr vegi
að láta falla nokkur orð um fram-
gang þeirra mála síðasta ár.
í fyrstu leit út fyrir að þátttak-
endur í skiptunum yrðu á þriðja
tug. Þegar á herti heltust þó
nokkrir úr lestinni, vegna fjár-
skorts eða sjúkleika og óhappa.
Slíkt verður ávallt til nokkurs
baga. Allnokkuð umstang og
kostnaður er oftast þegar orðinn
er lína berst með þökkum og út-
skýringum eitthvað á þessa leið:
,,Góðu vinir. Varð skyndilega illt.
Get ekki komið. Kalli.“ En við
þessu er ekki mikið að gera frem-
ur en kvefi og það er satt að segja
mjög ánægjulegt að vera við skipt-
in riðinn. Allir eru boðnir og búnir
til að veita málinu nokkurn stuðn-
ing, jafnt læknar og ráðafólk á
sjúkrahúsum sem aðrir er til er
leitað. Það er sá skilningur sem
málinu er þannig sýndur sem stú-
dentaskiptin byggjast á. Án hans
væru þau með öllu úr sögunni.
Fjármálin ullu okkur nokkurri
andvöku í fyrstu og það var ekki
eigin snilli að þakka að úr þeim
rættist, heldur skilningi þeirra er
fjármálum ráða á eðli og gagn-
semi stúdentaskiptanna. Við áttum
líka eitthvað smávegis eftir af pen-
ingum frá lyf jafyrirtækinu Sandoz
sem við höfðum fengið til skipt-
anna árið áður en bárust okkur
ekki í hendur fyrr en seint og síð-
ar meir, og okkur þá tekist að
spara dálítið af. Þetta bjargaðist
því allt saman og við gátum tekið
sómasamlega á móti þeim kolleg-
um okkar er hingað komu og
styrkt nokkuð þá okkar menn er
utan fóru. Ég ætla annars ekki að
orðlengja þetta frekar en þakka
þeim, er málið studdu, kærlega
fyrir hjálpina.
Eins og áður má segja að um
gagnkvæm skipti hafi verið að
ræða, eða eins og hér má sjá:
Danmörk
Finnland
Stóra Bretland
Svíþjóð
Þýzkaland
hingað 0 héðan 2
— 2—0
— 3 — 3
— 1 — 2
— 2 — 2
8 9
Danir og Svíar eiga nú hjá okk-
ur pláss en við hjá Finnum og
reyndar Svisslendingum líka, en
það er önnur saga. Þeir sem hing-
að komu skiptust þannig niður á
spítala:
Borgarsjúkrahúsið, 2 Finnar.
Fjórðungssjúkrahúsið, Akur-
eyri, lyflækningadeild, 1 Breti.
Landakotsspítali, 2 Þjóðverjar.
Landsspítalinn, ljd:lækninga-
deild, 2 Bretar, handlækninga-
deild, 1 Svíi.
Okkur var líka heitið plássi á
sjúkrahúsi Akraness og á Fæðing-
ardeildinni og þökkum við kærlega
fyrir þau.
Ég ætla mér ekki að tala um
hvemig okkar mönnum hafi líkað
dvölin erlendis. Það munu þeir
gera sjálfir. Hvað við víkur félög-
um okkar frá útlandinu voru þeir