Þingtíðindi Alþýðuflokksins - 25.11.1966, Síða 20
kvennasamtökin hér með fullum stuðningi þeirra. Ár-
legar hækkanir, samkvæmt þessum lögum, voru að
vísu ekki háar, eða um 4%, en safnast þegar saman
kemur, og nú verður lokamarkinu náð um næstu ára-
mót.
I öðru lagi vildi ég nefna lífeyrissjóðinn fyrir alla,
sem Framsóknarflokkurinn fór á stað með í áróðurs-
skyni, áður en nokkur reynsla hafði fengizt af slíkri
lagasetningu nokkurs staðar í heiminum. Þar sem nú-
verandi ríkisstjóm vissi, að slík löggjöf var í undirbún-
ingi á Norðurlöndum, og á mismunandi hátt þó, vildi
hún bíða þangað til séð yrði hvaða leið yrði valin, og
hver reynslan yrði þar. Á þennan hátt held ég, að fullt
samkomulag hafi náðst um málið, sem nú, eftir að hafa
verið þaulrannsakað af Haraldi Guðmundssyni, fyrrv.
sendiherra, hefir nú verið sett í nefnd til að ganga end-
anlega frá því fyrir Alþingi. ■—■ Ég get líka bætt því við
hér, að skoðanir samstarfsflokkanna, Alþýðuflokksins
og Sjálfsíæðisflokksins á utanríkismálum hafa mjög
farið saman, en skoðanir kommúnista hafa verið mjög
á annan veg, og skoðanir Framsóknarflokksins á þeim
málum hafa vægast sagt verið mjög á reiki.
Þá ber einnig á það að líta, sem miður hefir tekist,
en þar ber fyrst og fremst að nefna verðbólguvöxtinn,
sem hefir verið uggvænlegur. Fullyrða má þó, að hann
er ekki ríkisstjórninni að kenna einni saman, heldur
má miklu fremur segja, að henni hafi ekki tekist að
koma í veg fyrir hann. —
í skýrslu Efnahafsstofnunarinnar til Hagráðs um þetta
efni er talið að um 60% af verðbólguvextinum stafi frá
launahækkunum og frá hækkun landbúnaðarafurða.
18