Þingtíðindi Alþýðuflokksins - 25.11.1966, Síða 45
II. Efnahags- og atvinnumál
Flokksþingið telur, að þótt mikill árangur hafi náðst
á undanförnum árum á mörgum sviðum íslenzks at-
vinnulífs og fjárhagsmála, þá sé nú enn þörf brýnna
aðgerða á mörgum sviðum, einkum og sér í lagi vegna
þeirrar breytingar, sem átt hefur sér stað á viðskipta-
kjörum þjóðarinnar á þessu ári. Vill þingið í því sam-
bandi sérstaklega benda á eftirtalin atriði:
1) Sjávarútvegur hefur verið og verður sá atvinnu-
vegur Islendinga, sem um ófyrirsjáanlega framtíð um
færa þeim drýgsta björg í bú, þar eð framleiðni í sjávar-
útvegi er án efa meiri en í öðrum atvinnugreinum. I
tíð núverandi ríkisstjórnar hefur fiskifloti þjóðarinnar
margfaldazt, ný veiðitækni verið tekin upp og vinnslu-
stöðvum í landi fjölgað meir en nokkru sinni fyrr. Afla-
tregða og verðfall erlendis valda sjávarútveginum nú
tímabundnum erfiðleikum. Þess vegna telur flokksþing-
ið, að sinna verði sérstaklega erfiðleikum togaraútgerð-
arinnar og minnstu bátanna, bæði af atvinnuástæðum
og til þess að tryggja áframhaldandi fjölbreytni í sjávar-
útveginum. í þessu sambandi leggur þingið áherzlu á
nauðsyn þess að vernda fiskstofnana, m. a. með fiski-
rækt. Ennfremur bendir þingið á nauðsyn þess að end-
urskipuleggja fiskvinnsluna á grundvelli heildaráætl-
unar, þar sem tekið sé tillit til skilyrða til hráefnisöfl-
unar og atvinnuaðstæðna.
2) Framtíðarþróun íslenzks atvinnulífs mun án efa
í vaxandi mæli byggjast á stóriðju, er hagnýti vatnsorku
og jarðhita landsins, bæði til framleiðslu útflutnings-
vöru og þjónustu til sölu innanlands. Til að auka tækni-
43