Þingtíðindi Alþýðuflokksins - 25.11.1966, Blaðsíða 62
Jafnframt telur þingið, að rétt sé að efla fræðslu um
náttúruvernd og fella slíka fræðslu inn í skólanám, þar
sem því verður auðveldlega við komið.
9. Þróunarlöndin.
31. þing Alþýðuflokksins telur mikla þörf á, að upp
verði tekin af Islands hálfu aðstoð við þróunarlöndin.
Telur þingið að stofna eigi í þessu skyni sérstakan sjóð,
sem m. a. fái árlegt framlag á fjárlögum ríkisins.
10. Frelsisbarátta.
31. þing Alþýðuflokksins ályktar að lýsa stuðningi
við frelsisbaráttu ófrjálsra þjóða og fordæmir nýlendu-
stefnu í sérhverri mynd, sem og hvers konar kynþátta-
misrétti, hvar og hvenær, sem því er beitt. Telur þingið,
að sendinefnd Islands hjá Sameinuðu þjóðunum eigi
hér eftir sem hingað til að leggja sérstaka áherzlu á
þessi mál í störfum sínum.
11. Vietnam.
31. þing Alþýðuflokksins harmar þau grimmilegu ör-
lög, sem víetnamisku þjóðinni hafa verið búin með
samfelldum ófriði í tvo áratugi. Skorar flokksþingið á
allar þjóðir, sem hlut eiga að máli, að setjast þegar að
samningaborði og binda friðsamlegan endi á styrjöld-
ina, sem nú geysar.
Friðsamleg lausn hlýtur að byggjast á því, að allir
utanaðkomandi herir og öll utanaðkomandi vopn verði
fjarlægð samtímis úr landinu. Öryggi þess og friður
verði tryggður með alþjóðlegum samningum og styrk
Sameinuðu Þjóðanna.
60