Reykjanes - 01.04.1947, Blaðsíða 1
Námsbækur,
skólavörur.
Bókabúð
Keflavíkur.
Sími 102.
5. árg.
Keflavík, apríl 1947
2. tbl
Ef það fæst
ekki í
VATNSNES,
hvar þá?
LÍÐANDI STUND VII.
Viðial við flugvallarsíjórann Arnór Hjálmarsson.
Flugvellinum okkar er alltof
lítill gaumur gefin af Keflvíking-
um og öðrum nábúum hans, hér
syðra. Það kann að stafa af því
að almenningur er vart búinn að
átta sig á því að nú eru allar tálm-
anir og öll leynd, sem yfir þess-
um flugvelli var, meðan herinn
átti hann og starfrækti, gjörsam-
lega horfin, því flugvöllurinn og
mannvirki hans eru íslenzk eign
og allur her verður farinn á burtii
á umsömdum tíma. Það hefur vel
og giftusamlega tekizt til með þá
samninga, enda J)ótt pólitískir
angurgapar hafi reynt að hártoga
þá og smeygja inn missætt, með
dylgjum og svívirðingum á milli
Bandaríkjanna og Islands.
Nú fara í hönd nýir samningar
um nánara fyrirkomulag á rekstri
vallarins milli Islendinga og
ameríska flugfélagsins A.O.A., sem
nú þegar hefur byrjað fastar ferð-
ir milli Ameríku og Evrópu, með
viðkomu á Keflavikurvellinum.
★
Undanfarnar vikur hafði eg
nokkrum sinnum veitt athygli hér
á götunum ungum manni með
dökkt yfir- og hökuskegg. Eg
fékk fljótlega þær upplýsingar, að
þetta væri flugvallarstjórinn,
Arnór Hjálmarsson. Einn góðan
veðurdag féklc eg far upp á flug-
völl, í skröltandi jeppa með Sig-
urði Brynjólfssyni til að hafa tal
af flugvallarstjóranum fyrir „Líð-
andi stund“.
Mér var l)oðið þar inn á snotra
skrifstofu í nýuppgerðum bragga,
þar sátu í alltof miklum hita flug-
vallarstjórinn og fulltrúi hans.
Við röhbuðum stutta stund um
hitann og kuldann, sem þeir sögðu
að mættist um mitt læri, því gólf-
kuldi þessara bragga væri mjög
mikill, enda væru þeir nú flestir
búnir að lifa það sem þeim nefði
í upphafi verið ætlað. Eg fékk
góðfúslega að leggja nokkrar
spurningar fyrir Arnór og fara
þær hér á eftir, ásamt svörum
hans.
Hvað álitið þér um l'ramtíð
jæssa flugvallar?
Eg álít að Keflavíkurflugvöllur
hafi mikla framtíðarmöguleika,
sérstaklega gæti liann haft mikla
þýðingu fyrir Suðurnesjamenn,
hvað viðvíkur flutningum á fisk-
afurðum og framleiðsluvörum
sjávarútvegsins. Einnig gæti þýð-
ing flugvallarins orðið mikil, sem
auglýsingamiðstöð fyrir íslenzkar
framleiðsluvörur og höfum við
mikinn áhuga fyrir að koma hér
upp sýningarskálum í því augna-
miði. Þar þarl' einnig að vera á
hoðstólum matur úr íslenzkum út-
flutningsvörum. Einnig gæti þar
farið fram margskonar önnur
kynning á landi og þjóð. Flestir
farþegar sem hér fara um á næst-
unni, hafa hér aðeins stutta dvöl,
og gæti því verið mjög árangurs-
ríkt að auglýsa íslenzkar afurðir
á þeim stað, sem umferð erlendra
verzlunarfulltrúa og annara verzl-
unarmanna er mikil. Það má telja
að lítið skref í rétta átt sé opmjn
Þessi uppdráttur sýnir afstöðu flugbrautanna og’ lengd þeirra í fet-
um, einnig akbrautir flugvélanna, sem tengja aðalflugbrautirnar sam-
an. Uppdráttur þessi er gerður 1941. Áttirnar eru sýndar í efra horni
til vinstri.