Reykjanes - 01.04.1947, Page 5
R E Y K J A N E S
5
Islendingar eru eyðslusamir og
bruðlgefnir, og sízt hefur það
batnað á liðnurn stríðsárum og
kemur þetta jafn fram i smáu sem
stóru. Það eru nokkuð miklar upp-
hæðir, sem við eyðum árlega í
umbúðapappír, og miklum hluta
þeirra er eytt algjörlega að óþörfu.
Hér er vörunni í búðunum pakk-
að inn í lítt fáanlegan og dýran
pappír, enda þótt varan sé í um-
búðum úr pappa, járni eða gleri.
Þetta er ósiður, sem verzlanimar,
með aðstoð húsmæðranna og ann-
ara viðskiptavina, eiga að afnema
og á þann hátt að spara þjóðinni
all verulega up]>hæð í erlendum
gjaldeyri. Víða erlendis, á meðal
þeirra þjóða, sem þurfa að spara
og vita hvað það er að vanta, þar
koma húsmæðurnar með poka
sína eða tösku i búðina og jafn-
vel ílát undir þá vöru sem ekki
er pökkuð frá framleiðanda. Þar
þykir það ekki dónaskapur að af-
henda óinnpakkaða dós eða að
nota sama blaðið tvisvar, þar
þykir það bera vot't um litla holl-
ustu að sóa verðmætum að óþörfu.
Eg held að það væri rétt að verzl-
anir og viðskipíamenn hér tækju
upp þann sið að spara umbúða-
pappír, þó ekki væri af annari
ástæðu en þeirri að hann er nú
sem stendur lítt fáanlegur. Það
væri miklu þrifalegra og hag-
kvæmara að koma með slcál uncl-
ir kjötfarsið, heldur en að klína
því í lélegan pappír. Alla pakk-
aða vöru, dósir og flöskur, má
láta i innkaupatöskuna, eins og
þær koma fyrir úr hillunni, það
flýtir fyrir afgreiðslunni, skaðar
engann, en þjóðarheildin græðir á
því. Það var sagt um einn mætan
Keflvíking, að hann hefði orðið
ríkur á því að leysa upp böndin
utan af vörupökkunum, sem hon-
um bárust í verzlunina og nota
pappírinn aftur, þannig er það
með þjóðina, hún getur orðið rík,
og því aðeins rík, að hún viðhafi
sparsemi og hagsýni i hvívetna.
4
Það er mikið talað um dýrtíð-
ina, hún er eins og rós í gróður-
liúsi, sem lilómstrar bæði sumar
og vetur. Kaffið hækkaði nýlega,
en okkar spánýja ríkisstjórn
fann ráð við því, sem dugði. Hún
lækkaði smásöluálagningu sem
hækkuninni nam, þótti sumum
betur, en öðrum ver. Við |ietta
tækifæri kom betur en áður í Ijós
hvaða atvinnustétt það er, sem
hægt er að ganga takmarkalaust
á og einnig hverjum ráðum á að
beita þegar atvinnustéttir g'era
tilraunir til að vernda rétiindi sín
og hag, þó þarf önnur samtök
til að auglýsa að ]>au séu reiðu-
búin til að vinna fyrir lægra gjald.
Það veldur hver á heldur.
Svo var tóbakið hækkað all
hressilega og notuð sama aðferðin
að lækka álagninguna í smásöl-
unni, og kann það að vera, að ekki
sé skaði skeður, því núverandi á-
lagning verðiir ekki lægri fýrr en
i)úið er að reikna af henni „veltu-
útsvar“. Svo var brennivínið
hækkað, en engin reglugerð gefin
út um lækkaða álagningu sem
liefði þó verið nauðsynlegt, því á-
lagning leynisalanna var allt frá
50 og upp í 100%, eftir árstíð-
um og öðrum aðstæðum. Vínsölu-
fyrirkomulagið íslenzka er búið að
ala upp allstóra stétt manna, sem
stunda leynivínsölu, enda hafa
menn óspart verið hvattir til
þeirrar atvinnu, með því fyrir-
komulagi, sem ríkið hefur á sinni
eigin vínsölu. Það er einföld stað-
reynd, sem hverjum heilvita
manni ætti að vera ljós, að leyni-
vínsala, verður aðéins til vegna
þess að menn vilja kaupa vín á
þeim stöðum, þar sem það ekki
fæst, og á þeim tímum sólar-
hringsins, sem vín ekki fæst á
löglegan hátt. I Reykjavík kaup-
ir enginn vín á svörtum markaði,
meðan vínbúðirnar eru opnar, og
þegar Hótel Borg er orðin full, þá
hefst eftirspurnin annarsstaðar.
Leynivínsalan er leiðinleg og
skaðleg og þyrfti öruggra aðgerða
við til að afnema hana með öllu.
Ef einhver hefur í fórum sínum
gott ráð til útrýmingar á leyni-
vínsölu, þá ætti hann að senda
Geirfuglinum um það línu, hann
mun áreiðanlega koma henni á
framfæri og stuðla hverja góða
viðleitni i þá átt, eftir fremsta
megni.
4
Fyrst við erum að tala um leyni-
vínsölu, þá er rétt að minnast laus-
lega á grein um þetta sama efni,
sem birtist í Faxa fyrir skömmu.
Þar var gerð tilraun til að ræða
málið á opinskáan og djarfan hátt,
en það er nú stundum svo með
stóru höggin, að ])au hitta ekki
„naglana“ ó höfuðin. Við lestui-
þeirrar greinar finnst berlega, að
jiar er einlægur áhugamaður á
ferð, enda þótt hann skrifi undir
dulnefni. Því skal slegið föstu í
eitt skipti fyrir öll, að Geirfugl-
inn er eindrcgið á móti leynivín-
sölu og mun aldrei mæla lienni
bót. Það eru allir á móti henni og
beztu viðskiptavinir leynivínsal-
anna eru mest á móti þeim og
öllu þeirra athæfi, einkanlega þó
daginn eftir að ])eir liafa ])urft á
þeim að halda. Það, sem eg hcf
út á grein „Nýsköpunarmannsins“
að setja, er ekki tilgangur hennar,
heldur hitt, hversu rnjög hún miss-
ir marks, vegna ])ess að höfundur-
inn hoppar i kringum efnið, eins
og köttur í kringum heitan graut,
og reynir að gefa hinum alkunnu
staðreyndum leynivínsölunnar
annarlegan blæ i skjóli nýsköpun-
ar atvinnuveganna. En það verð-
ur hvorki sprúttsala né brenni-
vínsfyllirí, sem ríður þeirri hug-
mynd að fullu, heldur hið andlega
fylliri þjóðarinnar og hinir ])óli-
tísku timburmenn hennar.
Um landráðamenn eru glögg á-
kvæði i íslenzkum lögum. Þar eru
númer eitt þeir, sem ganga erind-
um annarra þjóða gegn íslenzk-
um hagsmunum, og ef ætti að
hengja alla sprúttsala, þá mætti
vafalaust fá nokkur stykki slíkra
fugla á móti hverjurn einum, því
að þeir ganga liér lausir í heilum
hópum og eru þjóðinni hættulegri
en samanlagður „Svarti dauði“
bæði 15 .og 20. aldanna.
Á meðan kommúnistar hafa
eklci náð Iiér öllum völdum, ])á
megum við ræða áhugamál okkar
l'yrir opnum tjöldum, og leynivín-
salan er mál, sem þarf að ræða
varlega en þó djarflega og reyna
að finna haldgóð ráð, svo rót-
gróið og gamalt fyrirbrigði verð-
ur ekki lagt að vclli með orðum
einum. Það þarf meira til.
Wý patftœkjaVe/'jlim ?
Á hreppsnefndarfundi ])ann 19.
f. m. lögðu fulltrúi Framsóknar
og fulltrúar krata fram tillögu, er
meðal annars fól í sér, að veita
rafveitunefnd Keflavíkur heimild
til þess að opna verzlun með raf-
magnsvörur. Við ])essa tillögu
lagði Olafur Einarsson fram
breytingartillögu í þá átt, að
hreppsnefndin sæi ekki ástæðu til,
að ráðast inn á verksvið þeirra
rafvirkja, sem hér væru fyrir, og
vísaði ])ví aðaltillögunni frá. Til-
laga Ölafs var felld með fjóruin
atkvæðum gegn þremur. Það
verður að teljast hæpin ráðstöfun
lijá meirihluta hreppsnefndar, að
ætla sér að stofnsetja sölubúð með
rafmagnsvörur, og sennilega ráð-
ast út í fyrirtækið meira með til-
liti til þess, að geta útvegað þæg-
um fylgismanni bitling, en að
hagsmunir hreppsins komi til
greina. Rafmagsvörur eru senni-
lega einhver erfiðasta vörutegund,
sem verzlað er með, sérstaklega
í smáum kauptúnum, og útheimt-
ir faglærða menn (rafmagnsfræð-
inga), til þess að fnll not komi af.
Hefði því verið eðlilegra, að raf-
veitunefnd hlynnti að þeim raf-
magnslærðu mönnum, sem hér eru
búsettir, frekar en að ráðast inn á
þeirra verksvið og vinna þannig
að því, að flæma þá í burtu héðan.