Reykjanes - 01.04.1947, Blaðsíða 6
6
R E Y K J A N E S
Minningarathöfn
var haldin í Keflavíkurkirkju
þann 19. f. m. um Einar heitinn
Guðberg. Athöfnin fór mjög virðu-
lega fram og fjölmenni var i
kirkjunni til að votta hinum látna
liinstu kveðju.
Skipstjórí
hefur nú verið ráðinn á vænt-
anlegan togara Keflavíkurhrepps.
Er það Halldór Gíslason frá
Reykjavík, alkunnur aflamaður og
þrautreyndur togarasjómaður. —
Ákvörðun um ráðningu þessa var
tpkin á hreppsnefndarfundi 19.
marz s. 1.
Alfred Gíslason,
lögrcglustjóri hefur af Alþingi
verið kosinn í Landshafnarstjórn
í stað Einars heitins Guðbergs.
Matvörubúð
hefur Halldór Fjalldal, kaup-
maður, oj)nað í hinu nýja húsi
sínu við Túngötu 14. Búðin er
hin snyrtilegasta í alla staði og
frágangur og fyrirkomulag fyrsta
flokks. Uppdrátt að húsinu
annaðist Skúli H. Skúlason.
Ólafur S. Lárusson,
útgerðarmaður í Keflavík hefur
nýlega fest' kaup á vélbátnum
Dverg frá Siglufirði. M.b. Dverg-
ur er ca. 65 smál. að stærð, smíð-
aður í Svíþjóð.
Frá hafnargerðinni.
Smíði þriðju bátabryggjunnar
innan við hafnargarðinn i Kefla-
vik er nú langt á veg komin. Þeg-
ar þessari bryggjusmíði er lokið,
hafa alls verið byggðar þrjár
bátabryggjur innan við garðinn,
allar úr steini.
Sjúkrahússmálið.
Allir hreppar Keflavíkurlæknis-
héraðs hafa nú undirritað samn-
ing um byggingu og rekslur
sjúkrahússins í Keflavík. Hefur
stjórn sjúkrahússins verið kosin
og má því vænta áframhaldandi
framkvæmda, ef vel tekst að afla
lánsfjár til byggingarinnar.
Reikningar
sérleyfisbifreiða Keflavíkur-
hrepps voru lagðir fyrir hrepps-
nefndarfund hinn 19. f. m. Af-
koma þessa fyrirtækis hreppsins
var mjög góð. Sýndu reikning-
arnir nettóágóða, sem nam rúm-
lega 46 þús. kr. Er fyrirt'ækið nú
því sem næst skuldlaust, þrátt
fvrir mikla aukningu á bílakosti.
Vatnsveitan.
Allt efni til hinnar fyrirhuguðu
vatnsveitu er nú komið til lands-
ins. Að undanförnu hefur verið
unnið að borun fvrir vatni fyrir
ofan kauptúnið. Tvær öflugar
dælur hafa verið keyptar til þess,
að dæla vatninu úr borholunum
upp í vatnstank þann, sem þegar
hefur verið reistur. Vænta má, að
hin nýja vatnsveita verði að ein-
hverju leyti tekin í notkun á kom-
andi sumri.
Holræsagerðin.
Á síðastliðnu sumri var unnið
talsvert að holræsagerð í Keflavík.
Holræsi hafa þegar verið lögð í
nær allar götu fyrir austan Tjarn-
argötu, að henni mcðtalinni. —
Hreppurinn hefur nú komið á fót
eigin pípugerð, og eru nú rör frá
henni að mestu leyti notuð til
f ramkvæmdanna.
Óeirðir á dansleik.
Á dansleik, sem haldinn var i
húsi U.M.F.K. hinn 22, f. m. urðu
allmiklar óeirðir. Ölvun var mjög
áberandi og varð lögreglan hvað
eftir annað að skakka leikinn, er
óróaseggir gerðust sterkir. Fanga-
húsið fylltist á skömmum tíma,
(5 klefar), jafnvel varð að hleypa
einum gestinum, sem látinn hafði
verið inn fyrr um daginn, fram í
varðstofuna, til þess að einn um-
svifamikill „næturgestur“ gæti
fengið klefa hans. Eftir upplýs-
ingum lögreglunnar voru það ekki
Keflvíkingar, sem fyrir óeirðum
J)essum stóðu, heldur aðkomu-
menn, víðsvegar að af landinu.
Ennfremur upplýsir lögreglan, að
nauðsynlegt hefði verið að stinga
miklu fleiri óróaseggjum inn þessa
REYKJANES.
Útgcf.: Nokkrir Keflvíkingar.
Rilstjóri: Einar Olafsson.
Blaðsstjórn: Ólafur E. Einarsson
Sverrir Júlíusson
Alfred Gíslason
AfgreiSslu annast:
Einar Ólafsson.
Verð blaðsins kr. 2.00 í lausasölu.
Félagsprentsmiðjan h.f.
nótt, en sökum rúmleysis hefði
það ekki verið unnt.
Tannlæknirinn.
I síðasta blaði var getið tillögu
Olafs E. Einarssonar í hrepps-
nefndinni, um að tannlæknir sctl-
ist að hér í Keflavík. Blaðið getur
frætt lesendur sína á því, að eitt
tilboð hefur hreppsnefndinni bor-
izt. Er }>að Ólafur Thorarensen,
sem hefur í hyggju að sctja sig
Iiér niður sem tannlæknir, ef samn-
ingar takast með honum og
hreppsnefndinni. Vonandi takast
samningar J)essir, svo að lausn fá-
ist á þessu nauðsynjamáli.
Lifrarmagn og róðraf jöldi viðlegu-
báta hjá Garður h.f. 22. marz ’47:
Lítr. Róðr.
Ársæll Sigurðsson . . . 27.985 60
Björn, Keflavík...... 29.435 56
Egill, Ólafsfirði.... 21.250 42
Faxi, Garði ......... 37.648 64
Freyja, Garði........ 30.205 55
Gunnar Hámundarson 32.065 59
Gylfi, Rauðuvík...... 18.515 40
Jón Finnsson 1....... 15.140 38
Jón Finnsson II...... 24.735 54
Mummi, Keflavík .... 39.683 63
Reykjaröst. Keflavík . 27.185 58
Víkingur, Keflavík . . 35.475 58
Víðir, Garði ........ 25.080 49
Hákon Eyjólfsson . . . 3.770 12
Lifrarmagn og róðraf jöldi viðlegu-
báía hjá Miðnes h.f. 25. marz ’47:
Litr. Róðr.
Muninn, Sandgerði . . 21.985 49
Muninn II., Sandgerði 25.240 36
Ægir, Garði ......... 30.935 60
Ingólfur, Keflavík ... 21.865 55
Hrönn, Sandgerði .. . 31.535 64
Pétur Jónsson ....... 30.735 62
Barði ............... 21.190 55
Þorsteinn ........... 29.210 58
Gylfi ................ 7.800 24
Freyja, Norðfirði .... 15.370 39
Sæfari ............... 1.510 4
Nanna ................ 8.130 22
Júlíus Björnsson .... 13.150 36
Lifrarmagn og róðrafjöldi Kefla-
víkurbáta 23. marz 1947:
Lítr. Róðr.
Guðfinnur, Keflavík . 28.113 52
Keflvíkingur, Keflavik 37.275 57