Breiðholtsblaðið - 01.03.2023, Side 17
17BreiðholtsblaðiðMARS 2023
Skeifan 8 | 108 Reykjavík | sími 517 6460 | www.belladonna.is
Nýjar vörur streyma inn
Eignaumsjón, sem er leið andi
í faglegri þjónustu við fjöleignar
hús á Íslandi, getur nú boðið
hús félögum upp á rekstur og
inn heimtu þjónustu úr öllum helstu
rafbíla hleðslukerfum sem eru í
notkun hérlendis með sjálfvirkum
álestri og gagn sæjum upplýsingum
um skiptingu kostnaðar á milli
notenda og húsfélags. Jafnframt
býður félagið upp á úttektir og
ástandsgreiningar fyrir húsfélög
sem eru að huga að uppsetningu
hleðslu kerfa, ásamt öflun saman
burðarhæfra tilboða og aðstoð
við ákvarðanatöku á löglega
boðuðum húsfundi.
Þetta kom fram hjá Páli Þór
Ármann, forstöðumanni þjónustu
sviðs Eignaumsjónar, á hádegis fundi
sem félagið hélt á dögunum fyrir
formenn og stjórnir húsfélaga sem
eru þjónustu hjá félaginu. Aðrir
framsögumenn á fundinum voru
Tómasar Kristjánssonar, formaður
Rafbílasambands Íslands og Leifur
Eysteinsson, fyrrum formaður
stjórnar lóðar og bílageymslufélags
Álalindar 1416 í Kópavogi.
Staða hleðslumála var í brenni
depli á fundinum en fyrirkomulag
hleðslu rafbíla í fjöleignarhúsum,
bæði gömlum og nýjum, er meðal
verkefna sem stjórnir margra
húsfélaga standa enn frammi
fyrir þó svo að í sumar verði
liðin þrjú ár frá því að lögum um
fjöleignarhús var breytt til að liðka
fyrir rafbílavæðingu.
Fákeppnismarkaður sem
er enn í mótun
Fram kom í erindi Tómasar
Kristjáns sonar að lagabreytingin árið
2020 hefði ýtt undir fjölgun rafbíla
með því að setja skyldur á húsfélög
að koma upp rafhleðslukerfum
og auðveldað ákvarðanatöku.
Hann taldi enn skorta á fræðslu
sveitarfélaga og í einhverjum
tilfellum aðgerðir, þar sem fjölmörg
fjöleignarhús eigi ekki lóðir eða
bílastæði, svo unnt sé að koma
upp hleðslustöðvum.
Markaður í kringum hleðslu kerfi
rafbíla á Íslandi er enn í mótun
sagði Tómas og hann beri yfirbragð
fákeppni í dag, m.a. sé verðlag milli
aðila oft ósanngjarnt. Tómas kvaðst
þó bjartsýnn á að samkeppni muni
aukast eftir því sem rafbílum fjölgi
og til lengri tíma litið stuðli það að
bættum hag bæði rafbílaeigenda
og húsfélaga.
Rafbílakerfið á
ábyrgð húsfélagsins
Páll Þór Ármann lagði áherslu á að
hleðslukerfi rafbíla í fjöleignarhúsum
er hluti af sameiginlegu kerfi hússins
og þar með á ábyrgð húsfélagsins.
„Mikilvægt er að húsfélög vandi alla
ákvarðanatöku og þar getum við lagt
stjórnum húsfélaga lið“.
Þjónustan sem er í boði hjá
Eigna umsjón vegna rafhleðslu
í fjöleignarhúsum er í fyrsta lagi
hlutlaus úttekt, eins og lög mæla
fyrir um. Henni er fylgt eftir með
verðsamanburði sambærilegra
kerfa og öflun tilboða fyrir
húsfélög sem þess óska, sem
húsfundur viðkomandi félags
tekur til afgreiðslu og ákvörðunar.
Jafnframt býður Eignaumsjón
nú upp á rekstur, umsjón og
eftirlit með rafhleðslukerfum
í fjöleignarhúsum. Í boði er
sjálfvirkur álestur og innheimta
úr helstu hleðslukerfum sem eru
í notkun hérlendis, s.s. Faradice,
Hleðsluvaktinni, Ískraft(EO), Ísorku,
N1, Rafbox og Raflausnum og
viðskiptavinir Eignaumsjónar njóta
hagstæðasta raforkuverðs á markaði
á hverjum tíma. Þá gat Páll þess
að hjá húsfélögum í þjónustu hjá
Eignaumsjón er notkunin innheimt
með húsgjöldunum, sem lækkar
kostnað við greiðslumiðlun.
Rafhleðslukerfi eykur
virði fasteigna
Fram kom hjá bæði Tómasi og
Páli að hleðslukerfi rafbíla auki virði
fasteigna og Páll benti líka á að við
útgáfu húsfélagsyfirlýsinga vegna
sölu fasteigna væri nú upplýst hvert
fyrirkomulag rafbílahleðslu er í
viðkomandi fjöleignarhúsi.
Í lok fundar var sögð reynslusaga
úr Álalind 1416, þar sem sett var
upp rafhleðslukerfi fyrir nokkrum
árum og gekk á ýmsu. „Ef þær
upplýsingarnar sem kynntar voru hér
á fundinum hefðu legið fyrir á þeim
tíma, hefði okkar barátta verið mun
auðveldari, sagði Leifur Eysteinsson,
sem var formaður stjórnar lóðar og
bílageymslufélagsins á þeim tíma.
Sjálfvirkur álestur og innheimta
vegna hleðslukerfa rafbíla
Um sextíu boðsgestir mættu á hádegisfund Eignaumsjónar um hleðslu rafbíla í fjöleignarhúsum, hátt í fimmtíu
fylgdust með honum í streymi. Fjölmargir hafa einnig horft á streymið eftir fundinn. Upptaka er aðgengileg á
heimasíðu Eignaumsjónar. Mynd: Aðsend.
Laugarnar í Reykjavík
2. í Páskum
10. apríl
Páskadagur
9. apríl
Laugardagur
8. apríl
Föstud. langi
7. apríl
Skírdagur
6. apríl
Dalslaug
Grafarvogslaug
Klébergslaug
Laugardalslaug
Sundhöllin
Vesturbæjarlaug
Lokað 11-18 9-22 Lokað Lokað
Árbæjarlaug Lokað Lokað 9-22 Lokað 11-18
Lokað Lokað 9-22 11-18 Lokað Lokað Lokað
11-18 11-18 11-18 Lokað 11-18
8-22
Lokað 11-18 8-22 Lokað
Lokað
10-17 10-17 10-17 10-17 10-17
10-17 10-17 10-17 10-17 10-17
Lokað 11-16 Lokað 11-16
11-18
11-18
Sumard. fyrsti
20. apríl
Verkalýðsdagur
1. maí
8-22 8-22
9-22 Lokað
Lokað
Lokað
11-18
10-17
10-17
11-16
Lokað
8-22
11-18
11-18
Breiðholtslaug 11-18 Lokað 9-22 Lokað Lokað 11-18 Lokað
Lokað
11-18
10-17
10-17
Lokað
11-18
8-22
Lokað
Ylströndin
Fjölsk.- og húsd.
Skíðasvæðin *
10-18
Lokað 11-18
10-18
Afgreiðslutími
um páska 2023
Sýnum hvert öðru tillitssemi
* Ef veður leyfir