Breiðholtsblaðið - 01.03.2023, Blaðsíða 17

Breiðholtsblaðið - 01.03.2023, Blaðsíða 17
17BreiðholtsblaðiðMARS 2023 Skeifan 8 | 108 Reykjavík | sími 517 6460 | www.belladonna.is Nýjar vörur streyma inn Eignaumsjón, sem er leið andi í faglegri þjónustu við fjöleignar­ hús á Íslandi, getur nú boðið hús félögum upp á rekstur og inn heimtu þjónustu úr öllum helstu rafbíla hleðslukerfum sem eru í notkun hérlendis með sjálfvirkum álestri og gagn sæjum upplýsingum um skiptingu kostnaðar á milli notenda og húsfélags. Jafnframt býður félagið upp á úttektir og ástandsgreiningar fyrir húsfélög sem eru að huga að uppsetningu hleðslu kerfa, ásamt öflun saman­ burðarhæfra tilboða og aðstoð við ákvarðanatöku á löglega boðuðum húsfundi. Þetta kom fram hjá Páli Þór Ármann, forstöðumanni þjónustu­ sviðs Eignaumsjónar, á hádegis fundi sem félagið hélt á dögunum fyrir formenn og stjórnir húsfélaga sem eru þjónustu hjá félaginu. Aðrir framsögumenn á fundinum voru Tómasar Kristjánssonar, formaður Rafbílasambands Íslands og Leifur Eysteinsson, fyrrum formaður stjórnar lóðar­ og bílageymslufélags Álalindar 14­16 í Kópavogi. Staða hleðslumála var í brenni­ depli á fundinum en fyrirkomulag hleðslu rafbíla í fjöleignarhúsum, bæði gömlum og nýjum, er meðal verkefna sem stjórnir margra húsfélaga standa enn frammi fyrir þó svo að í sumar verði liðin þrjú ár frá því að lögum um fjöleignarhús var breytt til að liðka fyrir rafbílavæðingu. Fákeppnismarkaður sem er enn í mótun Fram kom í erindi Tómasar Kristjáns sonar að lagabreytingin árið 2020 hefði ýtt undir fjölgun rafbíla með því að setja skyldur á húsfélög að koma upp rafhleðslukerfum og auðveldað ákvarðanatöku. Hann taldi enn skorta á fræðslu sveitarfélaga og í einhverjum tilfellum aðgerðir, þar sem fjölmörg fjöleignarhús eigi ekki lóðir eða bílastæði, svo unnt sé að koma upp hleðslustöðvum. Markaður í kringum hleðslu kerfi rafbíla á Íslandi er enn í mótun sagði Tómas og hann beri yfirbragð fákeppni í dag, m.a. sé verðlag milli aðila oft ósanngjarnt. Tómas kvaðst þó bjartsýnn á að samkeppni muni aukast eftir því sem rafbílum fjölgi og til lengri tíma litið stuðli það að bættum hag bæði rafbílaeigenda og húsfélaga. Rafbílakerfið á ábyrgð húsfélagsins Páll Þór Ármann lagði áherslu á að hleðslukerfi rafbíla í fjöleignarhúsum er hluti af sameiginlegu kerfi hússins og þar með á ábyrgð húsfélagsins. „Mikilvægt er að húsfélög vandi alla ákvarðanatöku og þar getum við lagt stjórnum húsfélaga lið“. Þjónustan sem er í boði hjá Eigna umsjón vegna rafhleðslu í fjöleignarhúsum er í fyrsta lagi hlutlaus úttekt, eins og lög mæla fyrir um. Henni er fylgt eftir með verðsamanburði sambærilegra kerfa og öflun tilboða fyrir húsfélög sem þess óska, sem húsfundur viðkomandi félags tekur til afgreiðslu og ákvörðunar. Jafnframt býður Eignaumsjón nú upp á rekstur, umsjón og eftirlit með rafhleðslukerfum í fjöleignarhúsum. Í boði er sjálfvirkur álestur og innheimta úr helstu hleðslukerfum sem eru í notkun hérlendis, s.s. Faradice, Hleðsluvaktinni, Ískraft(EO), Ísorku, N1, Rafbox og Raflausnum og viðskiptavinir Eignaumsjónar njóta hagstæðasta raforkuverðs á markaði á hverjum tíma. Þá gat Páll þess að hjá húsfélögum í þjónustu hjá Eignaumsjón er notkunin innheimt með húsgjöldunum, sem lækkar kostnað við greiðslumiðlun. Rafhleðslukerfi eykur virði fasteigna Fram kom hjá bæði Tómasi og Páli að hleðslukerfi rafbíla auki virði fasteigna og Páll benti líka á að við útgáfu húsfélagsyfirlýsinga vegna sölu fasteigna væri nú upplýst hvert fyrirkomulag rafbílahleðslu er í viðkomandi fjöleignarhúsi. Í lok fundar var sögð reynslusaga úr Álalind 14­16, þar sem sett var upp rafhleðslukerfi fyrir nokkrum árum og gekk á ýmsu. „Ef þær upplýsingarnar sem kynntar voru hér á fundinum hefðu legið fyrir á þeim tíma, hefði okkar barátta verið mun auðveldari, sagði Leifur Eysteinsson, sem var formaður stjórnar lóðar­ og bílageymslufélagsins á þeim tíma. Sjálfvirkur álestur og innheimta vegna hleðslukerfa rafbíla Um sextíu boðsgestir mættu á hádegisfund Eignaumsjónar um hleðslu rafbíla í fjöleignarhúsum, hátt í fimmtíu fylgdust með honum í streymi. Fjölmargir hafa einnig horft á streymið eftir fundinn. Upptaka er aðgengileg á heimasíðu Eignaumsjónar. Mynd: Aðsend. Laugarnar í Reykjavík 2. í Páskum 10. apríl Páskadagur 9. apríl Laugardagur 8. apríl Föstud. langi 7. apríl Skírdagur 6. apríl Dalslaug Grafarvogslaug Klébergslaug Laugardalslaug Sundhöllin Vesturbæjarlaug Lokað 11-18 9-22 Lokað Lokað Árbæjarlaug Lokað Lokað 9-22 Lokað 11-18 Lokað Lokað 9-22 11-18 Lokað Lokað Lokað 11-18 11-18 11-18 Lokað 11-18 8-22 Lokað 11-18 8-22 Lokað Lokað 10-17 10-17 10-17 10-17 10-17 10-17 10-17 10-17 10-17 10-17 Lokað 11-16 Lokað 11-16 11-18 11-18 Sumard. fyrsti 20. apríl Verkalýðsdagur 1. maí 8-22 8-22 9-22 Lokað Lokað Lokað 11-18 10-17 10-17 11-16 Lokað 8-22 11-18 11-18 Breiðholtslaug 11-18 Lokað 9-22 Lokað Lokað 11-18 Lokað Lokað 11-18 10-17 10-17 Lokað 11-18 8-22 Lokað Ylströndin Fjölsk.- og húsd. Skíðasvæðin * 10-18 Lokað 11-18 10-18 Afgreiðslutími um páska 2023 Sýnum hvert öðru tillitssemi * Ef veður leyfir

x

Breiðholtsblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Breiðholtsblaðið
https://timarit.is/publication/1113

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.