Fréttir - Eyjafréttir


Fréttir - Eyjafréttir - 06.01.2023, Blaðsíða 5

Fréttir - Eyjafréttir - 06.01.2023, Blaðsíða 5
6. janúar 2023 | | 5 „Heilsa, hreyfing og góð rútína er mikilvægur partur í lífi pabba. Dag hvern mætir hann stundvíslega árla morguns í sundhöllina, finnur sinn snaga og syndir sinn kílómetra eða svo. Um helgar bætir hann göngu við þessa rútínu. Auk þess hafa þau mamma stundað Janusarprógram af kappi í nokkur ár við góðan árangur og gleði,“ segir Sif um pabba sinn, Pál Zóphóníasson. „Áhugamál pabba eru einna helst vinnan hans því það að skapa, teikna og vinna að lausnum drífur hann áfram. Hann lætur góðar bækur ekki framhjá sér fara og er ötull að viða að sér fróðleik og áhugaverðum upplýsingum. Hann grípur hvert tækifæri til útivistar, nýtur þess að fara í göngutúra með fjölskyldu og vinum, hverskyns viðvera í Skátastykkinu veitir hon- um gleði og eflaust vildi hann vera í útilegu allt sumarið og á skíðum allan veturinn. Segja má að hann sé enn svo- lítill sveitastrákur í sér eftir góðu æskusumrin í Ási í Vatnsdal með hörkuvinnu, reiðtúrum, smölun og öðrum sveitastörfum. Seinni árin hefur árleg berjatínsla á haustin með mömmu verið fastur liður þar sem ársbirgðir af blá- og kræki- berjum eru týnd á akkorði. En einmitt það lýsir pabba kannski einna helst, hann er sérlega iðinn og hvort sem það er að ditta að húsinu eða Skátastykkinu, henda í fallega kransaköku eða að skissa upp hönnun á skátaskála á einni helgi þá er drifkrafturinn áberandi mikill.“ Eyjamaður ársins 2022 er Páll Hjaltdal Zóphóníasson, fyrrum bæjartæknifræðingur og bæj- arstjóri í Vestmannaeyjum. Er þetta í annað skiptið sem Páll er tilnefndur sem Eyjamaður ársins af ritstjórn Eyjafrétta. Fyrra skiptið var árið 2003 en hafi verið ástæða til þess þá er hún ekki síðri núna þegar við m.a. minnumst þess 23. janúar nk. að gos hófst á Heimaey árið 1973. Þá var Páll í framvarðar- sveit Vestmannaeyjabæjar sem tókst á við stærsta viðfangsefni sem ein bæjarstjórn hefur fengið í allri Íslandssögunni. Gossprunga opnaðist við bæjardyrnar og þriðjungur bæjarins, um 400 íbúðir fór undir hraun og vikur. En vonin lifði og með Magnús H. Magnús- son, bæjarstjóra í fararbroddi hófst hreinsun bæjarins strax í febrúar og um sumarið 1973 byrjaði fólk að flytja til baka. Þau voru mörg ljónin í veginum sem takast varð á við. Páll tók við sem bæjartæknifræðingur árið á undan og fékk gosið og allt sem því fylgdi beint í fangið rétt þrí- tugur. Kom að flestum verkefnum sem sneru að gosinu og þau flest risastór. Varð seinna bæjarstjóri og saman lagði bæjarstjórn og hann grunninn að því bæjarfélagi sem við þekkjum í dag og hefur risið úr öskustónni í þess orðs fyllstu merkingu. Hefur Páll og hans fólk á Teiknistofunni víða komið þar að verki við hönnun og tæknivinnu fjölmargra bygginga í Vestmanna- eyjum. Eigum þeim mikið að þakka Alþýðuflokkur, Alþýðubandalag og Framsókn mynduðu fimm manna meirihluta í bæjarstjórn kjörtímabilið 1970 til 1974. Fjórir voru á lista Sjálfstæðisflokks en við aðstæður eins og voru í gosinu kom bæjarstjórn fram sem ein heild. Eftirtaldir voru kjörnir bæjarfull- trúar fyrir kjörtímabilið 1970 til 1974. Fyrir A – lista Alþýðuflokks, Magnús H. Magnússon, bæjarstjóri og Reynir Guðsteinsson. Fyrir B – lista Framsóknarflokk, Sigurgeir Kristjánsson, forseti bæjarstjórnar. Fyrir D – lista Sjálfstæðisflokk, Guðlaugur Gíslason, Gísli Gísla- son, Martin Tómasson og Guð- mundur Karlsson. Fyrir G – lista Alþýðubandalag, Garðar Sigurðs- son og Hafsteinn Stefánsson sem flutti ekki til Eyja á ný eftir gos og Gunnar Sigurmundsson sem kom inn sem fyrsti varamaður frá upphafi goss 1973. Þessum mönnum og mörgum öðr- um eigum við mikið að þakka og með því að tilnefna Pál Eyjamann ársins 2023 erum við að sýna þessari öflugu sveit þakklæti og virðingarvott. En þau voru fleiri tímamótin hjá Páli á síðasta ári. Fyrir það fyrsta varð hann áttræður á síðasta ári, þá voru liðin 50 ár frá því hann flutti til Vestmannaeyja, 40 ár síðan hann opnaði Teiknistofu PZ, í Vestmannaeyjum og síðast en ekki síst erum við að minnast þess hér að senn eru 50 ár síðan hann ásamt 5300 Eyjafólki horfðist í augu við Heimaeyjargosið. Víða látið til sín taka Páll er ekki einhamur og hefur komið víða við. Hann var í mörg ár félagsforingi Skátafélagsins Faxa, formaður Norræna félagsins í Vest- mannaeyjum og sænskur konsúll í Vestmannaeyjum. Páll fæddist 12. júlí árið 1942 í Kaupmannahöfn. Hann var sonur Zóphóníasar Pálssonar, skipulags- stjóra ríkisins og Lis Pálssonar (Nellemann), háskólakennara. Páll er kvæntur Sesselju Áslaugu Hermannsdóttur frá Ísafirði, og þau eiga saman börnin Zóphónías, Sigríði og Sif. Páll lauk námi í trésmíði árið 1962 og í byggingartæknifræði 1967 frá Álaborg. Hann var byggingatæknifræðingur hjá ráðgjafarverkfræðifyrirtækinu Studstrup & Östgaard a/s í Álaborg á árunum 1967-1972. Páll starfaði svo sem bæjartæknifræðingur í Vestmannaeyjum árin 1972-76. Það var einmitt í gosinu og gegndi hann mikilvægu hlutverki í gosinu og eftir það. Hann tók við sem bæjarstjóri á árunum 1976 til1982. Síðan þá hefur hann rekið ráð- gjafa- og teiknistofu, Teiknistofa PZ, í Vestmannaeyjum. Páll Zóphóníasson Eyjamaður ársins 2022 Í framvarðasveitinni í gosinu 1973: Með vonina að vopni risu Eyjarnar úr öskunni Bæjartæknifræðingur Bæjarstjóri Skátaforingi Konsúll Sif Pálsdóttir um Pál föður sinn: Skapar, teiknar og vinnur að lausnum FRÉTTAPÝRAMÍDINN2022 M yn d: F ro st i G ís la so n

x

Fréttir - Eyjafréttir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttir - Eyjafréttir
https://timarit.is/publication/977

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.