Fréttir - Eyjafréttir - 06.01.2023, Blaðsíða 8
8 | | 6. janúar 2023
Við sjálfstæðisfólk í Vestmanna-
eyjum erum að horfa á eftir
annasömu ári. Það sem stendur
uppúr að lokum er að samstaðan
er mikil. Auðvitað er það ákveðinn
lífstíll að vilja búa á eyju á Íslandi
sem sjálft er lítil eyja langt norður
í Atlandshafi. En hér eigum við
heima og njótum þess að vera þar
sem friður ríkir og umfram allt
er atvinnulífið öflugt og menn-
ingarlífið blómstrar.
Fyrir kosningarnar í vor var tak-
markið var að ná meirihluta eftir
eitt tímabil í minnihluta. Því miður
tókst ekki ætlunarverkið eftir
kosningabaráttu þar sem fram-
bjóðendur lögðu á sig mikla og
metnaðarfulla vinnu. Niðurstaðan
44,1% atkvæða sem dugði ekki
til að komast í hreinan meirihluta.
Eftir samtöl við forystumenn E og
H lista þá var ljóst að þau ætluðu
að vinna áfram saman í meirihluta.
Samstarfið við meirihlutann hef-
ur gengið með ágætum og nokkur
af baráttumálum okkar hafa
fengið samhljóm í bæjarstjórn, t.d.
stækkun á Hamarsskóla, lækkun
fasteignaskatta, kostnaðaraðhalds
í fjárhagsáætlun og ekki síst
undirbúning að hefja starfssemi á
Sköpunarhúsi fyrir ungt fólk þar
sem ný viðmið verða sett. En að
sjálfsögðu veitum við aðhald í
þeim málum sem við teljum stefna
í ranga átt.
Það er ljóst að kröfur fólks
aukast stöðugt um betri þjónustu
á öllum sviðum. Við sem störfum
í sveitarstjórn erum ekki eingöngu
kosin til að skipta kökunni sem er
til. Við þurfum líka að hafa sýn á
það hvernig kakan getur stækkað
og hver sé grunnurinn að því að
kakan verði til. Forsenda góðrar
þjónustu ríkis og sveitarfélaga
er öflugt atvinnulíf. Þar hefur
Sjálfstæðisflokkurinn verið í farar-
broddi í langan tíma. Þar erum við
vel sett í Eyjum og atvinnulífið
hefur tekið miklum breytingum á
síðustu árum með meiri fjöl-
breytileika í störfum en áður.
Það er ákveðin áskorun að starfa
í minnihluta sveitarstjórnar. En
ábyrgð okkar er engu að síður
mikil og hefur okkur tekist að
mynda ágætis traust og vinnuanda
á þessu tímabili í bæjarstjórn með
meirihlutanum. Enda eru mörg
helstu baráttumálin okkar við
ríkið um fjármagn til að sinna
innviðauppbyggingu, samgöngum
og heilbrigðismálum með þeim
hætti sem við teljum ásættanlegt.
Þar erum við öll á sama báti í
samfélaginu.
Í lok árs þakka ég öllum þeim
sem studdu okkur til góðra verka í
bæjarstjórn, og ætlum við að gera
okkar besta til að gera Vestmanna-
eyjar að góðum búsetukosti til
framtíðar.
Á margan hátt má segja að
samtakamáttur Vestmannaeyinga
sé eitt af einkennum okkar sem
hér búum. Þetta er vissulega ekki
alltaf sýnilegt en þegar vel er að
gáð koma fjölmörg dæmi þess
glögglega í ljós.
Eitt lítið dæmi um þetta er
samtakamáttur ferðaþjónustuaðila
hér í bæ sem ákváðu árið 2019
að í stað þess að hver væri í sínu
horni að kynna sig og reyna að
laða fólk í ævintýraferðir til Eyja,
væri ferðaþjónustan sterkari ef
fyrirtækin ynnu saman. Sameinuð
leituðu þau síðan til bæjarins
sem kom með þeim í farsælt
kynningar- og markaðsátak sem
komu Vestmannaeyjum rækilega
á kortið. Í heimsfaraldrinum urðu
Vestmannaeyjar þannig einn helsti
áfangastaður íslenskra ferðalanga.
Samtakamáttur ferðaþjónustunn-
ar er til algerrar fyrirmyndar. Þar
sjá fulltrúar fyrirtækjanna hvorn
annan ekki sem samkeppnisaðila
heldur samherja í því að kynna
Vestmannaeyjar fyrir gestum
okkar. Bærinn hefur byggst upp
sem spennandi áfangastaður
fyrir löndum okkar og erlendum
ferðamönnum. Svo vel hefur tekist
til að víða annars staðar á landinu
horfa ferðaþjónustuaðilar með
aðdáunaraugum til Vestmannaeyja
um það hvernig hægt sé að ná
árangri.
Á komandi ári verða 50 ár liðin
frá Eldgosinu í Heimaey og 60 ár
liðin frá Surtseyjargosinu. Báðir
þessir atburðir mótuðu samfélagið
hér í Eyjum um ókomna tíð. Fyrir
einhvern undraverðan kraft tóku
bæjarbúar höndum saman, mok-
uðu bæinn upp og byggðu hann
upp. Samtakamátturinn var slíkur
að þegar kallið kom voru verkefn-
in leyst stór og smá þar sem allir
lögðust á eitt. Bæjarbúar sýndu þá
vel að þegar við stöndum saman er
fátt sem stöðvar okkur.
Til að minnast þessara atburða
verður næsta sumar afhjúpað lista-
verk Ólafs Elíassonar um Heima-
eyjargosið. Verkið mun vafalaust
vekja mikla athygli langt út fyrir
landsteinana enda einn fremsti
listamaður heims á sínu sviði sem
mun skapa stórkostlega upplifun
fyrir alla þá sem heimsækja okkur.
Enn bætist því við þá fjölbreyttu
flóru afþreyingar, menningar og
náttúru sem hér er að finna.
Ég óska bæjarbúum öllum
farsældar á komandi ári og þakka
fyrir það liðna.
Kæru Eyjamenn og velunnarar
ÍBV íþróttafélags, ég óska ykkur
öllum gleði og farsældar á nýju ári
með þökk fyrir samveru og sam-
vinnu á árinu sem nú er að líða.
Félagið hefur verið með vindinn
í fangið síðustu misserin en það
lygnir alltaf um síðir. Þrátt fyrir að
af og til hafi gustað um félagið á
árinu þá dúraði líka inn á milli.
Við fengum loksins að halda
okkar heittelskuðu þjóðhátíð,
TM mót, Orkumót og Eyjablikk-
smót sem allt eru nauðsynlegir
viðburðir, ekki bara fyrir rekstur
ÍBV heldur skapa þeir einnig
rekstrargrundvöll fyrir atvinnu-
rekstur í þjónustugeiranum hér í
Vestmannaeyjum, t.a.m. veitinga-
og gististaða.
Það er mikill kraftur í starfi ÍBV
og félagið býr yfir ótrúlegri þekk-
ingu og reynslu þegar kemur að
viðburða- og mótshaldi. Rekstur
félagsins er umfangsmikill en
ábyrg fjármálastjórn, dyggir
styrktarðailar, gott samstarf við
Vestmannaeyjabæ og eining á
milli deilda innan félagsins er
forsenda þess að félagið geti sinnt
nauðsynlegri uppbyggingu, vaxið
og dafnað. Það er undir okkur
sjálfum komið hvernig félag við
viljum byggja upp.
Síðustu mánuði hefur áhersla ver-
ið lögð á að hlusta á félagsmenn
í þeim tilgangi að lægja öldurótið
innan félagsins og móta skýra
framtíðarsýn sem eining ríkir um
innan deilda þess. Skipaður hefur
verið sáttahópur til þess að greiða
úr ágreiningi um fjárskiptingu á
milli deilda. Deildirnar tilnefndu
sjálfar sína kandídata sem allir
vilja hag félagsins sem bestan
og verða sáttaviðræður leiddar af
óháðum utanaðkomandi aðila sem
tilnefndur var af ríkissáttasemjara.
Eyjamenn eru ekki þekktir fyrir
að gefast upp, þvert á móti fyrir
að koma fagnandi og takast á við
verkefnin sem fyrir liggja hverju
sinni og skiptir þá engu máli hvort
þau eru stór eða smá, auðunnin
eða torveld. Ég trúi því að það sé
bjart yfir árinu 2023 og að ÍBV
verði alltaf, alls staðar!
Eyþór Harðarson – Oddviti sjálfstæðismanna í bæjarstjórn:
Baráttumál okkar fengið samhljóm í bæjarstjórn
Njáll Ragnarsson – Oddviti E-lista
Samstaða er sterkasta vopnið
Eyþór Harðarson
oddvit i D-l ista
UM ÁRAMÓT
Njáll Ragnarsson
oddvit i E-l ista
UM ÁRAMÓT
Sæunn Magnúsdóttir
formaður ÍBV íþróttafélags
UM ÁRAMÓT
Sæunn Magnúsdóttir, formaður ÍBV íþróttafélags:
Trúi á gott ár og að ÍBV verði alltaf, alls staðar!