Fréttir - Eyjafréttir


Fréttir - Eyjafréttir - 06.01.2023, Blaðsíða 9

Fréttir - Eyjafréttir - 06.01.2023, Blaðsíða 9
6. janúar 2023 | | 9 Árið sem leið var okkur á margan hátt gjöfult og gott. Það áraði vel í sjávarútvegi og ferðaþjónustan náði sér aftur á strik eftir nokkur mögur covid-ár. Ýmis önnur at- vinnutengd starfsemi stendur líka í blóma og það þarf ekki að fara í langan bíltúr til að sjá ótrúlega miklar framkvæmdir á vegum fyrirtækja og einstaklinga, sem er ágætur mælikvarði á þá bjartsýni og framfarahug sem hér ríkir. En hvernig getum við annars mælt hvernig okkur vegnar og líður sem bæjarfélagi og bæj- arbúum? Við getum horft á atvinnustig, tekjur einstaklinga, afkomu fyrirtækjanna í bænum, afkomu sveitarfélagsins, þjón- ustustig, framboð á afþreyingu, menningu, íþrótta- og æskulýðs- starfi og svona mætti áfram telja. Allt þetta og fleira er miserfitt að mæla en þar sem við höfum skýra mælikvarða stöndum við býsna vel - í hvaða samanburði sem er. Og svo eru líka beinlínis gerðar mælingar á viðhorfi landsmanna til búsetuskilyrða í því sveitarfé- lagi sem þeir búa. Niðurstöður úr einni slíkri, sem gerð var á vegum Samtaka sveitarfélaga á Vestur- landi, birtust í byrjun nýliðins árs - og íbúar í Vestmannaeyjum reyndust ánægðastir allra lands- manna með bæinn sinn. Loks má nefna þann einfalda mælikvarða sem felst í því hvort þeim fari fjölgandi eða fækkandi sem vilja búa hér. Og þeim fer fjölgandi. Núna í desember vorum við orðin 4,525; fjölgað um 109 á tæpu ári - og rufum 4,500 múrinn í fyrsta sinn frá aldamótaárinu 2000. Helstu óánægjuefnin okkar – eins og fyrr og örugglega síðar líka – snúa að því sem við eigum undir ríkisvaldið að sækja: sam- göngum og heilbrigðisþjónustu. En við höldum áfram að nudda því til betri vegar. Hálf öld frá gosi Nýbyrjað ár markar þau merku tímamót að 50 ár eru liðin frá gosinu á Heimaey - og 60 ár frá Surtseyjargosinu ef út í það er farið. Mér finnst skrýtið til þess að hugsa að eftir aðeins um tvær vikur verður nákvæmlega hálf öld liðin frá því að gosið hófst hér austur á Eyju. Ég var þá 18 ára peyi í skóla í Reykjavík, nýkom- inn úr jólafríi heima í Eyjum, og fékk lánaðan gamlan sovéskan Moskvitch-skrjóð til að komast til Þorlákshafnar og leita að fjöl- skyldunni minni. Það verður ýmislegt gert hér í Eyjum til að minnast þessara merku tímamóta og verður gerð nánari grein fyrir því innan tíðar. Þó má nefna að strax núna 23. janúar munu bæði forseti Íslands og forsætisráðherra heiðra okkur með nærveru sinni. Í vikunni fyrir goslokahelgina í sumar munu síð- an forsætisráðherrar allra Norð- urlandanna halda fund sinn hér í Eyjum af þessu tilefni. Og skylt er að nefna að einn frægasti mynd- listarmaður samtímans, Ólafur Elíasson, vinnur nú að listaverki tengdu gosinu. Þar er um að ræða samvinnuverkefni Vestmannaeyja- bæjar og ríkisstjórnarinnar. Það er sem sagt rífandi skemmti- legt ár framundan! Ég þakka ykkur öllum fyrir sam- fylgdina á árinu sem var að líða og óska ykkur gæfu og gengis á nýja árinu. Páll Magnússon forseti bæjarstjórnar UM ÁRAMÓT Páll Magnússon forseti bæjarstjórnar: Bjart yfir bænum okkar þótt allt sé á kafi í snjó Ítölsk matar- og menningarveisla á Stracta Helgina 27. og 28. janúar mun Michele Mancini (Mike) kokk- urinn hans Buffon á hótelinu Stella Della Versilia, sem er í eigu Buffon fjölskyldunnar, stýra dásamlegum galakvöldverðum á Stracta ásamt Hilmari og hans kokkagengi. „Einnig verður Einar Björn (Einsi Kaldi/Freddo) á hliðarlínunni til að allt fari vel fram en hann og Mike eru perluvinir…nema þegar kemur að fótbolta, þar sem Einsi er Inter stuðningsmaður og Mike að sjálfsögðu Juventus. Andrea Falaschi , mjög þekktur kjötiðnaðarmaður mætir og verður með námskeið og á bístróinu verður salami og hráskinka frá honum á boðstólum. Halla Margrét og Alexander Jarl, óperusöngvarar sem hafa búið og starfað á Ítalíu í fjölmörg ár munu sjá um söng. Claudio og Marco Savini, frá Savitar mæta með trufflur og truffluvörur. Claudio hefur verið útnefndur ambassador ítölsku trufflunnar erlendis. Bæði Buffon og Ronaldo hafa verið ambassadorar hvítu trufflunnar, fyrir hönd Savitar. Hver veit nema þeir félagar mæti? Páll Magnússon mun sjá um veislustjórn, en hann kom sérstak- lega til Ítalíu í haust til að kynnast þátttakendum og fara yfir dagskrá helgarinnar. Reyndar verður Palli veislustjóri annað kvöldið á meðan Simmi Vil, stýrir hinu. Hann er líka búinn að taka hús á öllum þátttakendum á Ítalíu. Svo verða bæði vín- og matarkynn- ingar, þannig að allir ættu að finna eitthvað sér til hæfis. Matseðill ítölsku dagana: Galakvöldverðir APERITIVO KL 19:00 Byrjað verður á samveru kokka, skemmtikrafta og gesta þar sem dreypt verðum á vínum, margs- konar ítölskum kokteilum og ýmsum smáréttum, eins og sgabei (djúpsteikt brauð) með lardo, bruschettu með kjúklingalifur með hvítri trufflu, ýmsar tegundir af salami frá Falaschi feðgum, hvíttrufflu osta ídýfa o.fl. Það verður sungið rifist um fót- bolta, farið í sjómann og sitthvað fleira. PRIMO PIATTO KL (BARA ÞEGAR VIÐ ERUM TILBÚIN) Ravíóli fyllt með trufflumauki frá Savitar (fyrir þá sem ekki líkar trufflur fá ravíóli með porchini sveppamauki) SECONDO KL (FLJÓTLEGA EFTIR PRIMO PIATTO) Osso buco alla Milanese með íslenskum lambaskanka (Michele “Mike”) vill eindregið blanda saman hefðbundnum ítölskum réttum við þá íslensku. DOLCE Skyramísú (Þarf ekki að segja meira) Hádegismatseðill í Bístróinu fös. 27, lau. 28 og sun. 29. Jan. (Trufflu vörur frá Savitar og salami og hráskinka frá Falaschi feðgum verður uppistaðan í rétt- um bístrósins) Hráskinku-, salami og osta- bakki (30 mánaða Parmigiano Reggiano). Með honum fylgir hvíttrufflu hunang og hunang frá bíflugnabónda í Liguria héraði. Blandaður bruschettu platti, með trufflumauki, chianina ragú og hvíttrufflu kjúklingalifur Cesar salat með kjúkling og Oro Bianco (algjörlega himneskt hvítvíns hvíttrufflu edik) Hráskinka með grillaðri melónu og Saba (hvíttrufflu balsamic) Tagliatelle með chianina ragú Porchetta

x

Fréttir - Eyjafréttir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttir - Eyjafréttir
https://timarit.is/publication/977

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.