Fréttir - Eyjafréttir - 06.01.2023, Síða 10
10 | | 6. janúar 2023
Í hádeginu á miðvikudag voru
Fréttapýramídarnir afhentir við
skemmtilega athöfn í Eldheimum
að viðstöddu fjölmenni. Þeir eiga
sér áratugahefð, hafa alltaf mælst
vel fyrir og er gott framlag á
fyrstu dögum ársins.
Athöfnin hófst með ræðu Trausta
Hjaltasonar, formanns stjórnar
Eyjasýnar sem fór yfir gang mála
hjá Eyjafréttum á liðnu ári.
Ómar Garðarsson, ritstjóri Eyja-
frétta afhendi viðurkenningar og
gerði grein fyrir forsendum þeirra.
Íris Róbertsdóttir, bæjarstjóri
var aðalræðumaður og þakkaði
handhöfum vel unnin störf í þágu
Vestmannaeyja.
Gestir gæddu sér á súpu frá
Einsa Kalda og var mál manna
að ánægjulegt væri að endurlífga
þessa skemmtilegu hefð að koma
saman og hampa þeim sem lagt
hafa sitt af mörkum til að efla
samfélagið í Vestmannaeyjum
Ljóðin hennar Vigdísar
Handhafar Fréttapýramídanna
2022 fengu að gjöf bókina, Ljóðin
hennar Vigsísar frá Sögum útgáfu.
Um bókina segir: Vart verður
fundin meiri ástríðumanneskja en
Vigdís Finnbogadóttir þegar kem-
ur að íslenskri tungu og menn-
ingu. Vigdís hefur alla tíð verið
unnandi ljóðlistar og hér tekur
hún saman helstu ljóðin sem hafa
fylgt henni frá bernsku til dagsins
í dag. Einstök verk listakonunnar
Guðbjargar
Lindar auðga
ljóðlínurnar
og mynda
skemmtilegt
samtal við
kvæðin.
Útgefandi er
Sögur Útgáfa
en eigandi er
Tómas Hermannsson, sonarsonur
Árna úr Eyjum.
Afhending Fréttapíramýdanna í Eldheimum:
Páll Zóphóníasson er
Eyjamaður ársins 2022
Birgir Guðjónsson fékk viðurkenningu fyrir framlag til íþrótta
og Kveikjum neistann er framtak ársins
Anna Rós Hallgrímsdóttir, skólastjóri GRV. Magnús Birgir Guðjónsson. Páll Zóphóníasson.
FRÉTTAPÝRAMÍDINN2022
M
yn
di
r:
A
dd
i í
L
on
do
n