Fréttir - Eyjafréttir


Fréttir - Eyjafréttir - 06.01.2023, Qupperneq 13

Fréttir - Eyjafréttir - 06.01.2023, Qupperneq 13
6. janúar 2023 | | 13 Kveikjum neistann er framtak ársins 2022 í Vestmannaeyjum. Upphafið að því að verk- efnið kom hingað til Eyja er að Hermundur Sigmundsson prófessor við Norska tækni- og vísindaháskólann í Þrándheimi og við Menntun og hugarfar – rannsóknarsetur við Háskóla Íslands fór að ræða við Tryggva okkar Hjaltason um hina bágbornu stöðu drengja í íslenska skólakerfinu. Þar nefndi Hermundur að hann hefði verið að þróa verkefni sem hann kallaði Kveikjum neistann og byggði á viðurkenndum vísindum fremstu fræðimanna heims á sviði náms, færni- þróunar, áhugahvatar og hugarfars. Tryggvi er maður athafna og hann kynnti verkefnið fyrir skólastjórnendum Grunnskól- ans auk þess að hvetja Hermund um að hafa samband við Írisi Róbertsdóttur bæjarstjóra. Skemmst er frá því að segja að Íris tók verk- efnið upp á sína arma, eftir að 10 bæjarstjórar höfðu sagt nei við Hermund og þá varð ekki aftur snúið. Síðan hafa fleiri aðilar bæst í hópinn og má þar nefna Bókasafn Vestmannaeyja sem er einn öflugasti stuðningsaðili verkefnisins og hafa starfsmenn þar til að mynda flokkað allar barnabækur safnsins eftir erfiðleikastigi til að þær geti nýst sem allra best hugmynda- fræðinni á bak við Kveikjum neistann. Þá stóð Bókasafnið einnig fyrir vel heppnuðu málþingi um ávinninginn af verkefninu eftir þetta fyrsta ár. En það er Grunnskóli Vestmannaeyja sem sér um framkvæmd verkefnisins og skóla- stjórinn Anna Rós Hallgrímsdóttir er fulltrúi allra þeirra sem lagst hafa á eitt við að skapa þá umgjörð að Kveikjum neistann sé orðið það mikilvægasta sem verið er að vinna að í íslensku skólakerfi þessi árin. Vorið 2021 var undirrituð vilja- yfirlýsing á samstarfi Vestmanna- eyjabæjar, Háskóla Íslands, mennta- og menningarmálaráðu- neytisins og Samtaka atvinnulífs- ins. Hún fól í sér undirbúning og framkvæmd þróunar- og rann- sóknarverkefnis sem Grunnskóli Vestmannaeyja fór af stað með í samstarfi við Hermund Sigmunds- son prófessor haustið 2021 og kallast Kveikjum neistann. Kveikjum neistann hefur m.a. það að leiðarljósi að efla lestr- arkennslu þannig að nemendur fái öflugan stuðning og eiga auðveldara með að ná tökum á lestri. Auk þess er markmiðið að kveikja áhuga á náminu en það er gert með því að gefa nemend- um áskoranir miðað við færni. Lykilþættir í verkefninu eru: læsi, stærðfræði, náttúrufræði, hreyfing og hugarfar. Verkefnið er tvíþætt, annars vegar er það þróunarverkefni í skólanum, þar sem gerðar hafa verið breytingar á kennsluháttum og uppbyggingu á stundatöflu og hins vegar er það rannsóknar- verkefni sem miðar að því að fylgja nemendum eftir frá upphafi grunnskólagöngu þeirra haustið 2021 og til loka hennar – alls í tíu ár. Það er menntasetur Háskóla Íslands sem heldur utan um rann- sóknarhlutann. Ekki gera of mikið í einu Í Grunnskóla Vestmannaeyja má finna mikinn mannauð en þar starfa metnaðarfullir og færir kennarar/starfsmenn sem endur- speglast í fjölbreyttu skólastarfi. Ekki hafa verið gerðar margar menntarannsóknir á Íslandi og ekki af þessari stærðargráðu. Það er þess vegna stórt tækifæri að fá að taka þátt í svona viðamikilli rannsókn og setja af stað þróunar- verkefni sem byggir á vísindum og sterkum rökum fyrir því að bæta læsi hjá íslenskum börnum. Fyrsta árið gekk mjög vel og fyrstu niðurstöður gefa okkur vísbendingu um að við séum á réttri leið. Allir nemendur bættu sig mikið í lestrinum og kláruðu 1. bekk með höfuðið hátt. Eftir þetta fyrsta skólaár í verkefninu sjáum við einnig mikilvægi þess í að slaka aðeins á, að vera meðvituð um það að ætla ekki að gera of mikið í einu og þá sérstaklega með nemendur sem eru að stíga sín fyrstu skref í skóla. Það skiptir máli að gefa tíma í hvert verkefni og vera viss um að nemendur nái því sem lagt er fyrir þá og halda ekki áfram fyrr en nemendur eru tilbúnir og öruggir til þess. Hugarfarið er einnig mikilvægt, hafa trú á sjálfum sér og vera tilbúinn til að leggja sig fram, auk þess að finna sína ástríðu og áhugahvöt. Framtak ársins 2022 Kveikjum neistann: Það mikilvægasta í íslensku skólakerfi þessi árin Anna Rós skólastjóri GRV Áskoranir miðað við færni: Markmiðið að kveikja áhuga á náminu FRÉTTAPÝRAMÍDINN2022

x

Fréttir - Eyjafréttir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttir - Eyjafréttir
https://timarit.is/publication/977

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.