Fréttir - Eyjafréttir - 06.01.2023, Qupperneq 16
16 | | 6. janúar 2023
Magnús Birgir Guðjónsson, Biggi
Gauja, netagerðarmeistari, fæddist
13. júlí 1949 inn í mikla íþrótta-
fjölskyldu og Knattspyrnufélagið
Týr var ætíð félagið. Pabbinn,
Guðjón Magnússon, Gaui Manga,
methafi í stangarstökki og mikill
Týrari, studdur af eiginkonunni,
Önnu Grímsdóttur. Sonurinn fet-
aði í fótspor föður síns og byrjaði
ungur að iðka knattspyrnu. Veik-
indi settu strik í reikninginn en 10
ára gamall fékk Birgir bakteríu í
fótinn. ,,Ég átti í þessu í þrjú eða
fjögur ár. Ég man að það var mjög
erfitt þegar læknirinn sagði að ég
gæti aldrei spilað fótbolta aftur.
Mér fannst lífið vera búið, lífið
var fótbolti. Ég skildi þetta ekki,
grenjaði í smá tíma og sneri mér
svo að öðru,” sagði Birgir en hann
varð því öflugri í félagsstarfinu.
Hann varð ungur formaður Týs, á
árunum 1984 til 1988, formaður
þjóðhátíðarnefndar lengst allra og
ein aðaldriffjöðurin í þrettánda-
gleðinni sem var ein helsta skraut-
fjöður Týrara sem tóku gleðina
upp á sína arma árið 1948.
Birgir er því vel að því kominn
að fá Fréttapýramídann fyrir fram-
lag til íþróttamála í Vestmannaeyj-
um. Verðugur fulltrúi þeirra sem
varðað hafa brautina og byggt
upp það öfluga íþróttastarf sem
er eitt af einkennum Vestmanna-
eyja. Hann tók við kyndlinum af
föður sínum, Gauja Manga en
um hann og tvo aðra segir Martin
Eyjólfsson, Eyjamaður, Týrari
og ráðuneytisstjóri í utanríkis-
ráðuneytinu: Þegar ég hugsa um
Knattspyrnufélagið Tý þá koma
þrír fallnir heiðursmenn fyrst upp
í hugann. Þeir eru Malli í Höfn,
afi minn, Lalli Kobba og Gaui
Manga. Mér finnst orðin húmor,
dugnaður og framsýni lýsa þeim
og Týsandanum best, en hann blés
ritnefndinni baráttuanda í brjóst á
síðustu metrunum. Mbkv. Lundi
liðsforingi Martin Eyjólfsson.
Þarna er Martin að fylgja úr
hlaði, Sögu Týs, 1921 til 1996
sem kom út árið 2006, rétt tæp-
lega 300 blaðsíðna bók sem Birgir
Baldvinsson skráði en í útgáfu-
stjórn voru Rútur Snorrason,
Gústaf Baldvinsson og Martin.
Birgir fann ástina í faðmi Jónu
Kirstínar Ágústsdóttur, en Jóna
lést þann 18. október 2016.
Saman eignuðust þau þrjú börn,
Guðjón, Önnu Kristínu og Ólaf
Vigni. Barnabörnin eru orðin fjög-
ur og það fimmta á leiðinni í apríl.
,,Fjölskyldan er alltaf að stækka,
ég safna stelpum, þær eru orðnar
fjórar afastelpurnar og sú fimmta
væntanleg,“ segir Birgir.
Fór að pæla í Þjóðhátíð
árið 1969
Birgir axlaði snemma mikla
ábyrgð fyrir íþróttahreyfinguna,
fyrst fyrir Tý þar sem þjóðhátíð og
þrettándinn voru stóru málin fyrir
utan daglegan rekstur. Eftir að
Íþróttafélögin Þór og Týr samein-
uðust undir merkjum ÍBV-íþrótta-
félags lagði hann sitt af mörkum
sem formaður þjóðhátíðarnefndar
í tólf ár eða til ársins 2009 en
snéri aftur sem formaður nefndar-
innar í eitt ár, árið 2013.
Hann tók þátt í að þróa umgjörð
þjóðhátíðar í það sem þekkjum
í dag og var einn af hornstein-
um ÍBV-Íþróttafélags ekki síður
en Týs. ,,Ég byrjaði að pæla í
þjóðhátíð í kringum 1969. Þetta
er orðin rosalega langur tími og
hafa orðið miklar breytingar frá
því að ég kom að þessu. Í dag er
þetta alveg meiriháttar flott sem
auðveldar alla vinnu við að koma
upp mannvirkjum í Dalnum.
Þegar ég byrjaði var rosaleg
vinna að byggja þau upp, allt
skrúfað eða neglt. Við notuðumst
við gáma og ég man að þeir
mígláku og þurfti að þétta þá með
sílikoni. En menn voru jákvæðir
og allt hafðist þetta. Þegar ég var
í þjóðhátíðarnefnd var maður
ánægður ef við náðum að tvöfalda
íbúfjöldann hér, 5000 til 6000
þúsund manns var flott. Mig
dreymdi ekki um að það yrðu 15
þúsund manns í dalnum, enda
hefði það aldrei verið hægt eins
og hátíðin var. Það breyttist allt
með nýja sviðinu,” sagði Birgir en
hann hefur auðvitað lent í ýmsu
en það sem stendur upp úr er
samtsarfið.
,,Ef það var bras hjá Týrurum þá
komu Þórarar og gagnkvæmt.
Rígurinn lagður til hliðar og
Þjóðhátíðin átti að vera í lagi.
Ég minnist þess að það var alltaf
gott samband milli nefndanna hjá
félögunum,” sagði Birgir en hann
fylgist enn með þó hann sé hættur
afskiptum og mætir alltaf í dalinn.
,,Það hvarflar ekki að mér að
missa af þjóðhátíð eða þrettándan-
um, það togar alltaf í mann.”
Með jákvæðnina að vopni
Birgir fer ekki fram með látum
og sér alltaf björtu hliðarnar á
öllum málum. Í viðtali í Fréttum
1997, þegar fyrsta þjóðhátíðin
undir merkjum ÍBV-íþróttafélags
var haldin er haft eftir honum
í Fréttum að veðrið hafi verið
ótrúlega gott miðað við spár.
Þoka tafði flug en úr því rættist.
,,En það léttist á mönnum brúnin
þegar þokunni létti og þjóðhá-
tíðargestir byrjuðu að streyma
til okkar. Þrátt fyrir einn og einn
skúr var aldrei vindur að ráði
þannig að þegar upp var staðið var
besta veðrið í Vestmannaeyjum á
Suður- og Vesturlandi. Ég get því
ekki verið annað en ánægður. Það
Magnús Birgir Fréttapýramídinn fyrir störf fyrir
íþróttahreyfinguna:
Þjóðhátíð og þrettándinn
voru stóru málin
Ef það var bras hjá Týrurum þá komu Þórarar og gagnkvæmt
Biggi fær viðurkenningu frá ÍBV fyrir vel unnin störf í þjóðhátíðarnefnd úr hendi Dadda sem er kynnir Þjóðhátíðar.
FRÉTTAPÝRAMÍDINN2022