Fréttir - Eyjafréttir - 06.01.2023, Qupperneq 18
18 | | 6. janúar 2023
Á milli jóla og nýárs var tilkynnt
um samruna Ramma hf á Siglu-
firði og Ísfélags Vestmannaeyja
undir nafninu Ísfélagið. Í þessu
er auðvitað mikil tíðindi en bæði
fyrirtæki hafa verið burðarásar í
íslenskum sjávarútvegi um árabil.
„Í okkar huga eru tvö öflug og
vel rekin fyrirtæki að sameinast.
Þau eru á margan hátt ólík sem
gefur nýju félagi meiri breidd og
slagkraft. Þau eiga það líka sam-
eininlegt að þeim standa öflugir
hluthafar sem gefa félaginu styrk.
Við teljum tækifæri að styrkja
félagið enn frekar á komandi
misserum“ segir Einar Sigurðsson
stjórnarmaður í Ísfélagi Vest-
mannaeyja.
Aðspurður um hvort hann sjái
fyrir sér miklar breytingar segir
Einar ekki sjá það. „Hins vegar er
auðvitað um talsverðar breytingar
að ræða fyrir bæði félög. Þó svo
við teljum okkur alltaf vera að
gera svipaða hluti held ég Ísfélag-
ið sé alltaf að þróast og bæta sinn
rekstur, það hefur auðvitað kallað
á fjárfestingar bæði í skipum og í
landi. Ég held að við séum mjög
framalega í dag en það hefur
auðvitað kostað sitt.“
Á nokkrum stöðum á landinu
Ísfélag Vestmannaeyja gerir út
fjögur uppsjávarskip, tvo togara
og einn línubát, þar sem Sigurður
og Heimaey eru líklega þekktust.
Á bæði Vestmannaeyjum og á
Þórshöfn er félagið með fisk-
vinnslu og fiskimjölsverksmiðju.
Rammi er með rekstur í Fjalla-
byggð, sem er sameinað sveitafé-
lag Siglufjarðar og Ólafsfjarðar
auk Þórlákshafnar. Félagið gerir
út fjögur skip auk þess að vera
með starfssemi í landi, Fjalla-
byggð og Þorlákshöfn. Félagið
rekur rækjuverksmiðju, fisk-
vinnslu og dóttur félagið Primex.
Sameinað félag mun ráða yfir
í kringum 8% af útgefnum
aflaheimildum sem gefur því frek-
ari tækifæri til stækkunar ef horft
er til Síldarvinnslunnar og Brims
sem bæði eru skráð á verðbréfa-
markað.
Rammi og Ísfélag Vestmanna-
eyja hafa verið þáttakenndur í
þeim breytingum sem orðið hafa
í íslenskum sjávarútvegi. Rammi
í núverandi mynd samanstendur
af nokkrum fyrirtækjum, þeim
stærstum Þórmóði-Ramma og
Sæbergi á Ólafsfirði. Núverandi
eigendur koma frá þeim félögum
og hafa verið mjög samhentir í
uppbyggingu félagsins frá sam-
einingu þeirra árið 1996.
Ísfélag Vestmannaeyja í núverandi
mynd varð til við sameiningu
Hraðfrystistöðvarinnar í Vest-
mannaeyjum og Ísfélags Vest-
mannaeyja árið 1992. Árið 2007
keypti Ísfélagið Hraðfrystistöð
Þórshafnar. Varð Sigurður Einars-
son og fjölskylda stærstu eigend-
urnir við samrunan 1992 og hafa
verið síðan. Sigurður var forstjóri
til dánardags árið 2000 en síðan
þá hefur fjölskylda hans hafa
verið stærstu eigendur og haldið
áfram að byggja upp félagið.
Breytingar eða þróun
Hvort um sé að ræða stórar
breytingar fyrir fjölskyldu Einars
sem hafa verið stærstu hluthaf-
arnir í Ísfélaginu segir Einar „
Auðvitað eru þetta breytingar en
í Ísfélaginu er talsverður fjöldi
hluthafa. Það verða auðvitað
viðbrigði en félagið er og verður
vonandi áfram alltaf að þróast
og eflast. Við erum áfram stærsti
hluthafinn og ég sé ekki það fara
breytast. Við höfum verið virk
sem hluthafar og finnst mikilvægt
að hugsa til langs tíma. Þegar
mamma tók við keflinu af pabba
hefði ekkert okkar órað fyrir þeim
breytingum sem hafa orðið á
íslenskum sjávarútvegi. Ísfélagið
hefur tekið þátt virkan þátt í þeirri
þróun sem og Rammi. Það eru öfl-
ugir stjórnendur í báðum félögum,
öflugt starfsfólk bæði á sjó og í
landi og hefur nýtt sameinað félag
allt sem þarf til að vera í fremstu
röð í íslenskum sjávarútvegi.“
Ráðgert er að Stefán Friðriksson,
núverandi framkvæmdastjóri Ísfé-
lags Vestmannaeyja hf., stýri hinu
sameinaða félagi, með aðsetur í
Vestmannaeyjum og Ólafur H.
Marteinsson, núverandi fram-
kvæmdastjóri Ramma hf., verði
aðstoðarframkvæmdastjóri með
aðsetur í Fjallabyggð.
„Ísfélagið og Rammi eru
bæði fjárhagslega sterk
og vel rekin fyrirtæki.
Tækifærin felast ekki síst
í því að nýta þennan styrk
til vaxtar á sem flestum
sviðum og takast á við
síbreytilegt rekstrarum-
hverfi,“ sagði Ólafur H.
Marteinsson, núverandi
framkvæmdastjóri Ramma
hf. sem verður aðstoðar-
framkvæmdastjóri með
aðsetur í Fjallabyggð.
Ólafur segir að viðbrögð
fólks hafi að flestu leyti
verið jákvæð. „Það er hins
vegar ekkert eðlilegra en að
fólk hugleiði hvort og með
hvaða hætti sameiningin
geti haft áhrif á stöðu þess.
Ég á ekki von á að þessu
fylgi mikið rask heldur ein-
beitum við okkur að því að
nýta styrk sameinaðs félags
til vaxtar og framþróunar,“
sagði Ólafur en athygli
vekur fjölbreyttur rekstur
Ramma sem á m.a. frysti-
togarann Sólberg ÓF.
Sólberg veiðir m.a. í
Barentshafinu og um
miðjan desember kom
Sólborg til Siglufjarðar úr
túr í Barentshafinu. Aflinn
var 1900 tonn úr sjó og
aflaverðmæti upp á um 700
milljónir króna eftir 37
daga. Það ku vera mesta
aflaverðmæti íslensks skips
í einni veiðiferð. Samanlegt
aflaverðmæti Sólborgar á
árinu er um sjö milljarðar
króna.
Ísfélagið og Rammi Tvö öflug fyrirtæki sameinast:
Sterkar stoðir gefa nýju félagi
breidd og slagkraft
Styrkurinn
nýttur til
vaxtar og
framþró-
unar
Ólafur og Guðbjörg handsala samkomulagið.