Fréttir - Eyjafréttir - 06.01.2023, Page 19
6. janúar 2023 | | 19
„Maður getur ekki mikið tjáð sig
á þessari stundu en auðvitað eru
þetta mikil tíðindi fyrir okkur
hér í Fjallabyggð því allur kvóti
Ólafsfjarðar og Siglufjarðar
er í eigu Ramma,“ sagði Ægir
Ólafsson, formaður Sjómannafé-
lags Ólafsfjarðar þegar Eyjafréttir
ræddu við hann á þriðjudaginn.
Frystiskipið Sólberg ÓF sem er
í eigu Ramma og eitt glæsilegasta
og afkastarmesta skip íslenska
flotans fór í sinn fyrsta túr á þessu
ári á mánudaginn. „Þá fundaði
útgerðin með áhöfninni og tók ég
þátt í spjallinu. Auðvitað vakna
margar spurningar en okkur var
sagt að engar breytingar verði.
Stefnt er á að sameinað félag fari
á hlutabréfarmarkað sem tekur
sinn tíma. Þá kom fram að bæði
Ísfélag og Rammi séu fjárhags-
lega sterk fyrirtæki og vel rekin.
Að öðru leyti er lítið hægt að
segja um framtíðina en það var
fullyrt á fundinum að Sólberg
verði áfram ÓF.“
Ægir segir að miklar breytingar
hafi orðið á útgerð í Fjallabyggð
á síðustu árum. Breytingarnar
eru gríðalega mikla sérstaklega
á Ólafsfirði þar sem fyrir fáum
árum voru meðal annars þrjú
stór frystiskip, Mánaberg ÓF,
Sigurbjörg ÓF og Kleifaberg
ÓF, Kleifaberg var síðan selt til
Brim og með því fóru alveg tvær
áhafnir. Þannig að við höfum átt
marga félagsmenn þar, og eigum
ennþá nokkra sem starfa hjá Brim
og Útgerðafélagi Reykjavíkur.
Þegar Sólberg ÓF 1 kom þá voru
Sigurbjörg og Mánaberg seld,
en Sólberg ÓF 1 hefur reynst
gríðarlega vel. Rammi gerir út
Múlaberg sem er mest á rækju og
er einnig með skip og vinnslu í
Þorlákshöfn. Við vonum bara að
þetta nýja fyrirtæki eigi eftir að
reynast samfélögum okkar vel.
Við verðum að treysta því,“ sagði
Ægir að lokum. Sjómannafélag
Ólafsfjarðar fagnar 40 ára afmæli
á þessu ári.
Bæði félög gera út skip sem eftir er tekið í
íslenskum flota. Þekktasta skip Ísfélagsins er
án efa Sigurður RE-4 síðar VE -15 en nýtt
skip leysti gamla Sigurð af árið 2013. Rammi
gerir út glæsilegasta frystitogara landsins
Sólberg.
Sólberg ÓF 1
Sólberg er tæplega 80 metra frystitogari
sem smíðaður var í Tyrklandi árið 2017. Á
Sólberginu er 35 manna áhöfn enda í nægu að
snúast. Sólbergið sló met á árinu 2022 en þá
var aflaverðmæti skipsins rúmir sjö milljarðar
en skipið veiddi í kringum 12 þúsund tonn
upp úr sjó. Rammi hefur mikla reynslu af
útgerð frystitorga og sést vel á Sólberginu þar
sem hugsað er fyrir öllu sem kemur að rekstri
slíkra skipa. Nær allt sem kemur upp úr sjó er
fullunnið um borð og fryst en það sem ekki
nýtist til frystingar fer í fiskimjöl og lýsi, en
lítil mjölverksmiðja er um borð.
Bergþór Gunnlaugsson tók myndina.
Sigurður VE 15
Nýr Sigurður leysti þann gamla af árið 2014
en Sigurður eldri var í rekstri félagins frá
árinu 1960. Guðbjörg Matthíasdóttir aðaleig-
andi Ísfélagsins leysti landsfestar í ágúst 2013
á Sigurði þegar hann sigldi í síðasta sinn frá
Eyjum. Hann hafði þá verið í rekstri félags-
ins í 53 ár. Nýr Sigurður kom í júlí 2014 en
hann var smíðaður í Tyrklandi. Þrátt fyrir að
sá eldri hafi tekið tæp 1500 tonn tekur sá nýi
3000 tonn þegar mest er. Sigurður er 80 metra
langur og 17 metra breiður.
Formaður Sjómannafélags Ólafsfjarðar:
Allur kvóti Fjallabyggðar í eigu Ramma
Ægir Ólafsson, formaður Sjómanna-
félags Ólafsfjarðar