Fréttir - Eyjafréttir - 15.06.2023, Side 6
6 | | 15. júní 2023
Þá er tími mótanna runninn
upp í Vestmannaeyjum, TM
mót fimmta flokks kvenna
hefst í dag og stendur fram á
laugardag og þann 29. júní
byrjar Orkumót sjötta flokks
drengja. Þátttakendur á hvoru
móti eru 1100 auk þjálfara og
aðstoðarfólks og með foreldr-
um lætur nærri að um 4000
gestir sæki Eyjarnar heim
vegna mótanna.
„Þetta er þrítugasta og fjórða
TM mótið okkar. Við erum með
116 lið frá 35 félögum og í allt
eru þetta um 1100 stelpur. Það
er komin hefð á þessi mót. Við
byggjum á skipulagi sem þróast
hefur með árunum og reynst vel.
Í ár er mótahaldið hefðbundið,
ekki með takmörkunum eins og
á Covid-árunum,“ segir Sigríður
Inga Kristmannsdóttir sem stýrir
báðum mótunum.
„Stelpurnar og fylgdarlið kom í
gær, miðvikudag og mótið hefst í
dag. Það verður spilað í allan dag
og í kvöld er hæfileikakeppni sem
er mjög vinsæl. Á morgun eru
leikir allan daginn og um kvöldið
eru landsleikir og kvöldvaka sem
er mikil skemmtun. Í ár er það Jón
Jónsson sem ætlar að skemmta
stelpunum. Á laugardaginn er
spilað fram að hádegi og úr-
slitaleikirnir eftir hádegi. Þá er
komið að lokahófinu sem mörgum
finnst hápunkturinn.“
Sigríður Inga sagði Jón Jónsson
hafa samið sérstakt lag fyrir bæði
mótin en Orkumótið hefur átt
sitt lag í mörg ár. „Lagið heitir
Fótbolti úti í Eyjum. Við sendum
lag og texta á alla þátttakendur og
það er komið inn á Spotify. Það
skemmtilega er að þegar við höfð-
um samband við Jón kom í ljós að
hann kann ennþá Orkumótslagið
frá því hann var sjálfur á mótinu.
Var hann meira en til í að semja
lag fyrir bæði TM mótið og
Orkumótið og eiga allir að geta
sungið með.“
Segja má að Orkumótið, sem
byrjar 29. júní og lýkur laugar-
daginn 1. júlí verði góð upphitun
fyrir goslokahátiðina vikuna á
eftir. Dagskráin er sú sama og hjá
stelpunum. „Þetta eru tímamót
því mótið í ár er það fertugasta.
Þess verður minnst eins og við
höfum gert á báðum mótum,
með súkkulaði afmælisköku. Á
Orkumótinu verða 108 lið frá 35
félögum. Það er svipað og verið
hefur en TM mótið tók stökk árin
2020 og 2021.“
Hvað er margt fólk í heildina sem
kemur vegna mótanna? „Með
þjálfurum og fararstjórum eru
þetta um 1200 á hvort mót. Auk
þess eru foreldrar og stundum
heilu fjölskyldurnar með hverju
barni þannig að ég held að það
komi 2000 til 3000 manns á hvort
mót. Eða um 4000 í heildina,“
segir Sigríður Inga sem stjórnaði
fyrstu mótunum 2017 og hún er
ánægð. „Það að sjá alla brosandi
og hafa gaman,“ segir hún það
skemmtilegasta við starfið.
TM-mótið og Orkumótið Mikið fjör framundan:
Draga um 5000 manns til Eyja
Mikið stuð á kvöldvökunni á Orkumótinu í fyrra.
Leikir pressu- og landsliðanna er einn af hápunktum mótanna.
Óliver Atlas með hörku skalla.
Þjálfarar og farastjórar takast á í reiptogi.