Fréttir - Eyjafréttir - 15.06.2023, Side 13
15. júní 2023 | | 13
Framkvæmdastjóri
Marhólmar ehf. í Vestmannaeyjum leitar að áhugasömum aðila í starf framkvæmda-
stjóra. Marhólmar ehf. hóf starfsemi árið 2012 og er í eigu Vinnslustöðvarinnar hf.
Hjá fyrirtækinu starfa að jafnaði um 20 starfsmenn og er starfsstöð félagsins í Vest-
mannaeyjum. Starfsemi Marhólma er framleiðsla á fullunnum gæðavörum, aðallega
fullunnum hrognaafurðum. Vörur fyrirtækisins eru seldar um allan heim. Velta
fyrirtækisins á árinu 2022 var um 2 milljarðar króna.
Við leitum að einstaklingi í krefjandi starf í afar fjölbreyttu og alþjóðlegu umhverfi.
Helstu verkefni og ábyrgð
• Daglegur rekstur fyrirtækisins í samvinnu við framleiðslustjóra
• Ábyrgð á fjármálum, fjárhagsáætlunum og rekstraruppgjörum
• Upplýsingagjöf, greiningar og ráðgjöf til stjórnar
• Umsjón sölumála og greining á mörkuðum
• Koma á og viðhalda langtíma viðskiptasamböndum við viðskiptavini
• Öflun hráefnis í vinnslu félagsins
• Utanumhald birgða
• Þátttaka í stefnumótun félagsins
Menntunar- og hæfniskröfur
• Háskóla- eða tæknimenntun, sambærileg menntun eða reynsla sem nýtist í starfi
• Farsæl stjórnunar- og rekstrarreynsla er kostur
• Reynsla af vöruþróun og framleiðslu kostur
• Reynsla af alþjóðaviðskiptum er kostur
• Góð færni í ensku, bæði í töluðu og rituðu máli
• Frumkvæði, skipulagshæfni og nákvæmni í vinnubrögðum
Umsóknum skal skila á tölvupósti til Lilju B. Arngrímsdóttur,
starfsmannastjóra Vinnslustöðvarinnar á lilja@vsv.is.
Nánari upplýsingar veitir Sigurgeir Brynjar Kristgeirsson, framkvæmdastjóri
Vinnslustöðvarinnar á netfanginu binni@vsv.is eða í síma 488-8000.
Umsóknarfrestur er til 30. júní 2023.
á hjartað, innsæið því ef maður
gerir það er maður í betra jafn-
vægi til að taka réttari ákvarð-
anir. Mín skilaboð til ykkar eru
umfram allt verið trú sjálfum
ykkur, eltið ykkar eigin drauma
og þorið að vera þið sjálf,“
sagði Anna Rós sem í lokin
þakkaði, nemendum, starfsfólki
og foreldrum samstarfið.
Alexander Örn Friðriksson og
Sara Margrét Örlygsdóttir fluttu
ávarp nemenda.
Viðurkenningar fyrir góða
ástundun og skólasókn:
Patrekur Þór Magnússon
Kristján Þorgeir Karlsson
Andri Magnússon
Magnús Gunnar Björnsson
Rebekka Rut Rúnarsdóttir
Alls fengu ?? nemendur viður-
kenningar fyrir góða framistöðu
við Akademíu ÍBV og GRV.
Verðlaun fyrir framúrskarandi
árangur í íslensku, samfélags-
greinum og náttúrugreinum
fékk Emiía Rós Oddsdóttir.
Verðlaun fyrir framúrskarandi
árangur í stærðfræði fékk Birna
Dís Sigurðardóttir.
Verðlaun fyrir framúrskarandi
árangur í ensku fékk
Sigurjón Geirs.
Verðlaun fyrir framúrskarandi
árangur í dönsku fékk
Selma Rós Buelow Rafnsdóttir.
Verðlaun fyrir framúrskarandi
árangur í öðrum tungumálum
fékk
Erna Sólveig Davíðsdóttir
fyrir nám í sænsku auk þess að
standa sig vel í dönsku.
Verðlaun fyrir framúrskarandi
árangur í list - og verkgreinum
fékk
Sarah Elía Thorhamar.
Á hverju ári veitir skólinn
verðlaun til nemenda sem sýnt
hafa miklar framfarir í námi og
er það Karen Tryggvadóttir sem
gefur þessi verðlaun í minningu
Sigurlásar Þorleifssonar. Þau
fengu Alexander Örn Friðriks-
son og Leó Snær Finnson.
Verðlaun fyrir lokaverkefnin
Daginn áður sýndu nemendur
lokaverkefni sín sem voru fjöl-
breytt, skemmtileg og ekki síst
áhugaverð. Besta verkefnið í
heild áttu Emilía Rós Oddsdótt-
ir- Emilíana Erla Ágústsdóttir.
Frumlegasta verkefnið áttu
Anna Sif Sigurjónsdóttir- Erna
Sólveig Davíðsdóttir- Hrafn-
hildur Hallgrímsdóttir. Bestu
kynninguna átti Sarah Elía
Ólafsdóttir Tórshamar. Flottasta
básinn áttu Haukur Leó Magn-
ússon- Leó Snær Finnsson-
Andri Magnússon.
ÍBÚÐ ALDRAÐRA
Vestmannaeyjabær auglýsir lausa til umsóknar íbúð eldri borgara
Sólhlíð. Íbúðin er 53,2 fermetrar. Leiguverð fylgir leiguverði annarra
íbúða hjá Vestmannaeyjabæ. Umsóknarfrestur er til 30. júní nk.
Sótt er um í gegnum íbúagátt á heimasíðu Vestmannaeyjabæjar. Einnig er hægt að
nálgast umsóknareyðublöð á skrifstofu Fjölskyldu og fræðslusviðs að Kirkjuvegi 23
(gamla Íslandsbanka) og skal þá fylgigögnum einnig skilað þangað. Mikilvægt er að
skila inn öllum gögnum sem óskað er eftir eða nýjum gögnum hafi aðstæður breyst.
Frekari upplýsingar veitir Margrét Ingólfsdóttir, í síma 488-2000 eða á netfanginu
margret@vestmannaeyjar.is. Einnig er hægt að fá nánari upplýsingar í þjónustuveri
Fjölskyldu -og fræðslusviðs að Kirkjuvegi 23.