Fréttir - Eyjafréttir - 15.06.2023, Blaðsíða 18
18 | | 15. júní 2023
Veturinn hefur verið handbolta-
áhugafólki í Vestmannaeyjum
annasamur því mikið hefur gengið
á hjá handboltaliðum ÍBV. Bæði
karla- og kvennaliðið hafa á
köflum í vetur leikið frábæran
handbolta og uppskeran eftir því.
Þrír af sex stóru titlunum í grein-
inni verða með lögheimili í Vest-
mannaeyjum næstu tólf mánuðina
eða svo í það minnsta. Stelpurnar
byrjuðu á því að tryggja sér bik-
armeistaratitil en liðið var á ótrú-
legu skriði seinni hluta vetrar og
hélt sú sigurganga áfram alveg frá
janúar og þar til liðið hafði einnig
tryggt sér deildarmeistaratitilinn í
Olís deild kvenna á vormánuðum.
Liðið fór svo í úrslitaeinvígi um
Íslandsmeistaratitilinn en varð að
játa sig sigrað gegn öflugu liði
Vals eftir hetjulega baráttu. Það
var góður stígandi hjá karlaliðinu
eftir því sem leið á veturinn eins
og oft vill verða. Þessi stígandi
náði hámarki nú í lok síðasta
mánaðar þegar liðið tryggði sér
Íslandsmeistaratitilinn í handbolta
árið 2023.
Ef þessi upptalning hér að ofan
dugir ekki til að sannfæra þig um
að þessi fyrirsögn eigi rétt á sér
þá fór lokahóf HSÍ fram í síðustu
viku en þar voru veitt verðlaun
til þeirra sem þótt hafa skarað
fram úr með sinni frammistöðu
á keppnistímabilinu. Þjálfarar og
leikmenn liða í deildunum kusu
að lokinni deildarkeppni og féllu
átta af þeim sextán verðlaunum,
sem veitt eru í karla- og kvenna-
flokki til leikmanna og þjálfara í
efstu deild, í skaut ÍBV.
Hrafnhildur Hanna Þrastardóttir
hlaut háttvísisverðlaun HDSÍ hún
var einnig valin Besti sóknarmað-
ur Olís deildar kvenna. Sunna
Jónsdóttir var valin Besti varnar-
maður Olís deildar kvenna auk
þess sem hún hlaut Sigríðarbik-
arinn sem kenndur er við Sigríði
Sigurðardóttir sem á sínum tíma
var fyrst íslenskra kvenna til að
verða valinn íþróttamaður ársins
eftir sigur á Norðurlandamótinu
1964. Þá var Marta Wawrynkoska
valin Besti markmaður Olís deild-
ar kvenna auk þess að Sigurður
Bragason var valinn besti þjálfar-
inn í sömu deild. Rúnar Kárason
var svo valinn besti leikmaður
í Olís deildar karla auk þess að
hann hlaut Valdimarsbikarinn sem
kenndur er við Valdimar Svein-
björnsson leikfimikennara sem á
sínum tíma hóf þjálfun og kennslu
á handknattleik á Íslandi.
Það eru forréttindi að í sveitarfé-
lagi á stærð við Vestmannaeyjar sé
hægt að taka þátt í og samgleðjast
yfir svona árangri. Árangur eins
og þessi yrði aldrei að veruleika
ef ekki væri fyrir gríðarlegt sjálf-
boðaliðastarf og frábæra stuðn-
ingsmenn. Áfram ÍBV.
ÍBV liðið hefur eðli málsins samkvæmt verið
áberandi í handboltaumfjöllun vetrarins. Þar
hefur Stöð2 sport farið fremst í flokki með
beinum útsendingum og umræðuþáttum.
Við fengum Stefán Árna Pálsson stjórnanda
„Seinni bylgjunnar“ til að fara yfir handbolta-
veturinn hjá ÍBV með okkur.
„Eyjamenn geta verið stoltir af sínum
handboltaliðum bæði karla og kvenna megin.
Konurnar bestar í deildinni og urðu réttilega
deildarmeistarar. Bikartitill og tap í úrslitaein-
vígi þar sem meiðsli settu strik í reikninginn.
Karlaliðið var stórkostlegt og mjög vel mann-
að. Upp og niður í deildinni en púslin röðuðust
rétt upp og liðið toppaði sannarlega á réttum
tíma,“ sagði Stefán og segir það sem einkenni
ÍBV liðið sé stemning og stútfullt lið af karakt-
erum. „Eyjamenn með þeirra gildi og aðfluttir
menn sem hafa orðið að Eyjamönnum. Þetta
fer langt í hópíþróttum og skilaði titlinum að
lokum.“
Aðspurðum um hvað honum þætti standa upp
úr í vetur annað en kannski hið augljósa þessir
titlar allir stóð ekki á svörum
hjá fjölmiðlamanninum. „Það
sem stendur upp úr eftir þetta
tímabil þegar kemur að ÍBV
eru stuðningsmenn liðsins.
Fólk sem mætir til Reykja-
víkur, eftir erfiða sjóferð
í Þorlákshöfn og stútfyllir
Ásvelli. Það hlýtur að vera
mikill heiður að fá að spila
fyrir framan þetta fólk. Og það
sem leikmenn gera vel í ÍBV,
það er að tengjast fólkinu í
stúkunni.“
Stefán segir karlalið
ÍBV liðið á sinn hátt
vera sérstakt. „ÍBV
liðið er einstaklega
vel þjálfað. Leik-
menn liðsins þekkja
sín hlutverk frá a-ö.
Sóknarleikur liðsins
rúllar vel og þarna
eru engar tilviljanir. Þetta er skipulagður
sóknarleikur og konsept sem allir koma
inn í. Varnarlega í raun það sama og þessi
5 plús 1 vörn þeirra er í raun listaverk.
En stemningslið eins og ÍBV, það eitt og
sér er sérstakt, og í raun einstakt.“
Skiptir það máli fyrir ykkur fjöl-
miðlana að hafa lið eins og ÍBV og
Tindastól í körfunni í þessari baráttu
fyrir ykkar störf og umfjöllun? „Það er
alltaf frábært að hafa sterkt lands-
byggðarlið. Sjálfur er ég frá lands-
byggðinni og það litar alltaf að
hafa lið utan höfuðborgar-
svæðisins. Það sem gerir
slík lið skemmtileg
er að þau hafa heilt
bæjarfélag á bakvið
sig. Það fer með mann
langt,“ sagði Stefán
Árni að lokum.
Eyjamenn geta verið stoltir
Hlýtur að vera mikill heiður að fá að spila fyrir framan þetta fólk
Stærsta handboltafélag á Íslandi
Samantekt: SINDRI ÓLAFSSON