Fréttir - Eyjafréttir


Fréttir - Eyjafréttir - 21.09.2023, Qupperneq 2

Fréttir - Eyjafréttir - 21.09.2023, Qupperneq 2
Útgefandi: Eyjasýn ehf. - kt. 480278-0549 Ægissgötu 2 - 900 Vestmannaeyjum. Ritstjórn og ábyrgð: Ómar Garðarsson og Sindri Ólafsson - omar@eyjafrettir.is - sindri@eyjafrettir.is. Umbrot: Leturstofa Vestmannaeyjum ehf. Ljósmyndir: Blaðamenn Eyjafrétta. Prentun: Stafræna Prentsmiðjan ehf. Sími: 481 1300 Netfang: frettir@eyjafrettir.is. Auglýsingar: auglysingar@eyjafrettir.is Veffang: www.eyjafrettir.is EYJAFRÉTTIR er áskriftarblað. Eftirprentun, hljóðritun, notkun ljósmynda og annað er óheimilt nema heimilda sé getið. Til fundar við Eldfell er ein stærsta, ef ekki stærsta, og merkasta myndlistarsýning sem haldin hefur verið í Vest- mannaeyjum. Alls taka um 20 listamenn, innlendir og erlendir þátt í sýningunni og eru verkin eins fjölbreytt og þau eru mörg. Eiga það þó sameiginlegt að sýna að Heimaeyjargosið 1973 hefur haft djúp áhrif á listafólkið sem það túlkar hvert með sínum hætti. Verkin eru 24 og dugði ekki minna til en þrír salir undir sýninguna, Einarsstofa og tveir á annarri hæðinni. Vala Pálsdóttir og Ilana Halperin eru sýningarstjórar og hefur vel tekist með uppsetningu verk- anna. Með þeim voru frá upphafi Gísli Pálsson mannfræðingur og Eyjamaður, höfundur bókarinn- ar Fjallið sem yppti öxlum sem fjallar um Heimaeyjargosið og Þorgerður Ólafsdóttir myndlistar- kona sem hefur gert listaverk sem tengjast gosinu. Auk þess sem Kári Bjarnson, forstöðumaður Safnahúss og Sigurhanna Frið- þórsdóttir safnstjóri Sagnheima komu að undirbúningi. Fjölmenni var við opnun sýn- ingarinnar laugardaginn 9. sept- ember. Fyrir Eyjafólk hefur verið upplifun að líta listaverkin augum, verk sem það er hluti af eða er öllu heldur hluti af þeirra sögu. Mikið spáð og skoðað en daginn eftir var boðið upp á leiðsögn um sýninguna sem margir nýttu sér. Þær Vala og Ilana og listamenn skýrðu verkin og söguna að baki þeirra. Var gaman að fá að skyggnast á bak við listaverkin. Meðal verka sem vöktu athygli og spurningar voru Lava Landscape eftir Rögnu Róberts- dóttur sem varð til á staðnum. Margir stöldruðu við Hvíta húsið hennar Emmu Stibbon og það sama má segja um Stafróf Þorgerðar Ólafsdóttur. Hlutur Ilönu er ekki hvað sístur en hún og Eldfell sem litu þennan heim 1973 hafa bundist tryggðarbönd- um og fagna sameiginlegu afmæli á tíu ára fresti. Jarðfræðin á sinn stað á sýningunni og skýrði Gísli Pálsson afrit úr jarðskjálftamælum dagana fyrir Heimaeyjargosið sem sýndu að gos var í vændum. Ekki tókst að staðsetja upptökin, til þess vantaði þriðja jarðskjálfta- mælinn sem var bilaður. „Ótrúlegar viðtökur. Bæði kom mikið af heimafólki og fólki ofan af landi og við erum himinlifandi yfir móttökunum. Það er gaman að sjá sýninguna rísa og verða til,“ sagði Vala Pálsdóttir þegar rætt var við hana á sunnudeginum. „Þegar síðasta verkið var komið upp klukkan hálf þrjú í gær. Þá allt í einu komu tilfinningarnar. Þetta er búið og hvernig gátum við þetta? Þetta reyndi á en var rosalega skemmtilegt. Tókst með góðri hjálp og aðstoð góðs fólks sem kom inn á allskonar stigum og hjálpaði. Í allt yfir 30 manns sem komu að sýningunni og án þeirra hefði sýningin aldrei orðið þetta stór.“ „Þetta er mögnuð sýning og gaman að taka þátt í þessu,“ sagði Gísli Pálsson. „Það tókst á ótrú- lega skömmum tíma að mynda grunninn og hér erum við komin. Mögnuð opnun í gær. Sterkar tilfinningar og gaman að heyra skýringarnar í dag hjá listafólkinu sjálfu. Fyrir leikmann eins og mig sem kem úr annarri deild er frá- bært að sjá hvað vakir fyrir fólki, hvernig það vinnur sína vinnu og sjá hvernig þetta safn tengist einhverjum djúpum böndum við Eldfell og Eyjasamfélagið.“ Sýningin verður opin til 21. október og er vel þess virði að kíkja við í Safnhúsi. Að sjá eigin sögu með augum listafólks Sýningarteymið við opnunina, Áslaug Íris Katrín Friðjónsdóttir, Adam Putnam, Gísli Pálsson, Vala Pálsdóttir, Ilana Halperin, Kristján Steingrímur, Jesse Bransford, Anna Líndal og Þorgerður Ólafsdóttir. Á myndina vantar nokkra lista- menn og rithöfunda sem ekki gátu mætt. Fjöldi gesta var við opnunina. Vala Pálsdóttir og Ilana Halperin eru sýningarstjórar. ÓMAR GARÐARSSON omar@eyjafrett ir. is

x

Fréttir - Eyjafréttir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttir - Eyjafréttir
https://timarit.is/publication/977

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.