Fréttir - Eyjafréttir - 21.09.2023, Blaðsíða 11
21. september 2023 | | 11
Kvennalið ÍBV lauk 13 ára
veru í efstu deild í knattspyrnu
um liðna helgi þegar liðið féll
eftir 7-2 tap gegn Tindastól
á Sauðárkróksvelli. Það er
óhætt að segja að leikurinn
hafi byrjað með látum því
staðan var orðin 1-1 eftir
tæpar þrár mínútur. Eftir það
tóku stólastelpur öll völd á
vellinum og skoruðu sex mörk
áður en ÍBV náði að klóra í
bakkann. ÍBV fylgir því Sel-
foss niður um deild þetta árið.
Liðið hafnaði í áttunda sæti
í sumar af tíu liðum áður en
skipt var í efri og neðri deild.
Uppskera deildarinnar var
fimm sigrar og þrjú jafntefli í
18 leikjum. Í neðri hlutanum
náði ÍBV liðið einungis í sigur
gegn Selfoss sem ekki dugði
til að halda liðinu í efstu
deild. Markahæst í sumar fyrir
liðið var Olga Sevcova með
sex mörk.
Liðið hefur verið nokkuð
stöðugt í deild þeirra bestu
síðustu ár og árangurinn
jafnan verið um miðja deild.
Kvennalið ÍBV hefur ekki
tapað sæti sínu í efstu deild
frá því árið 2006 þegar
ákveðið var að draga liðið
úr keppni skömmu fyrir mót
vegna manneklu. Einungis
einu og hálfu ári eftir að liðið
fagnaði bikarmeistaratitli en
liðið lauk tímabilinu 2005 í
þriðja sæti efstu deildar.
KFS fallnir í fjórðu deild
KFS lék einnig sinn síðasta
leik í á tímabilinu um liðna
helgi en hann var einnig sá
síðasti í 3. deild að sinni.
Niðurstaðan var 0:3 tap gegn
Víði og fall í 4. deild en liðið
hafnaði í ellefta og næst
neðsta sæti deildarinnar þar
sem markatala réð úrslitum.
Liðið krækti í sex sigra og
þrjú jafntefli í sumar í 22
leikjum. Þrír leikmenn deila
með sér markakóngstitli KFS
þetta sumarið en það eru þeir
Sæbjörn Jóhannsson, Eyþór
Orri Ómarsson og Daníel Már
Sigmarsson, en þeir skoruðu
allir fjögur mörk fyrir liðið.
KFS hefur leikið í 3. deild
síðustu þrjú tímabil.
Strákarnir í harðri baráttu
Meistaraflokkur karla ÍBV
á enn í harðri fallbaráttu
þegar fjórir leikir eru eftir af
tímabilinu. ÍBV tókst með
jafntefli á sunnudag að lyfta
sér upp úr fallsæti í bili á
kostnað Fram en liðin mætast
á Hásteinsvelli á laugardag
klukkan 14:00. Það er því
ljóst að hvert stig skiptir máli
í baráttunni fram undan og
stuðningur áhorfenda mikil-
vægur í komandi leikjum.
fiski og sýna hversu vel er hugsað
um fólkið okkar og náttúruna.“
Opnun í Eldheimum
Opnunarhátíðin fór fram í gær í
Eldheimum þar sem forsvarsmenn
hátíðarinnar sögðu frá tilurð henn-
ar, fyrirtæki buðu upp á smakk,
Brothers Brewery kynnti bjórinn
sinn, ásamt því að Birgir Nielsen
frumflutti verkið sitt Whales of
Iceland. Listasýningin „Konur í
sjávarsamfélagi“ var einnig opnuð
í Eldheimum í gær og er hún opin
alla helgina. Félögum í Lista- og
menningarfélagi Vestmannaeyja
var boðið að taka þátt þar sem
áhersla er lögð á að vekja athygli
á fjölþættum störfum, hlutverkum
og verkefnum kvenna í sjávarsam-
félögum. Sýningarstjóri er Gíslína
Dögg Bjarkadóttir listakona í
Vestmannaeyjum.
Einstök og eftirsóknarverð
upplifun
Markmið hátíðarinnar er að bjóða
öllum þeim sem hana sækja upp
á einstaka upplifun. Gestakokk-
arnir fá að kynnast hráefninu
og veitingarstöðunum og ferða-
þjónustan býður upp á ferðir um
Eyjuna.
Frosti segir hátíðina afar eftir-
sóknarverða hjá gestakokkum og
hafi allir þeir sem komu í fyrra
viljað koma aftur í ár. Umfjöllunin
um Matey hefur verið afar góð og
mikil áhersla er lögð á jákvæða
upplifun fyrir alla, „þannig náum
við að breiða út boðskapinn og
markaðssetja okkur til lengri
tíma.“
Vekur upp nýjar víddir
Þó hátíðin sé aðeins haldin í annað
sinn í ár er hún sífellt að vaxa
og fá meiri athygli. Frosti segir
þetta hafi komið skemmtilega á
óvart og vakið upp nýjar víddir.
„Hátíðin endurspeglar líka staðina
á áhugaverðan hátt, það eru miklar
pælingar milli gestakokka og
veitingarstaðanna og áhugavert að
sjá hvað kemur út úr þessu öllu
saman.“ Fólk sem sækir hátíðina
fær mismunandi upplifun á hverj-
um stað og í fyrra voru margir sem
sóttu fleiri en einn stað.
„Í ár erum við líka með breiðari
línu í hráefnis framboði því
fiskvinnslustöðvar hafa verið að
sameinast. Núna verður til dæmis
hægt að fá rækjur á Matey vegna
samruna Ísfélagsins og Ramma
ehf.”
Tökum þátt og breiðum út
boðskapinn
Að lokum vill Frosti hvetja heima-
menn til þess að taka þátt og tala
hátíðina upp. „Til þess að svona
hátíð getið verið aftur og við get-
um fengið til okkar heimsklassa
kokka þurfum við að taka þátt. Við
erum líka að fjárfesta í framtíð-
inni, markaðsetja Vestmannaeyjar,
auka lífsgæði okkar og lengja
ferðamannatímabilið.“
Meistaraflokkur karla á enn í harðri fallbaráttu. Mynd: Sigfús Gunnar
Kvennalið ÍBV hafði ekki oft ástæðu til að fagna í sumar.
Mynd: Sigfús Gunnar
Knattspyrna:
Falla allir?