Fréttir - Eyjafréttir - 21.09.2023, Blaðsíða 6
6 | | 21. september 2023
Að afloknu Goslokamóti Tafl-
félags Vestmannaeyja laugar-
daginn 9. september var til-
kynnt að Arnar Sigurmundsson
hafi verið kjörinn af stjórninni
sem heiðursfélagi félagsins.
Arnar er þriðji maðurinn sem
hlotnast þessi titill í sögu fé-
lagsins. Arnar hefur lengi verið
félagi í TV, varð Vestmann-
eyjameistari árin 1964, 1969,
1970 og 1979 og formaður
árin 1962 til 1965 og aftur árið
2015. Hann var meðal þátt-
takenda á Goslokamótinu. Í
stjórn Taflfélagsins eru nú þeir
Karl Gauti Hjaltason formaður,
Hallgrímur Steinsson varafor-
maður, Sæmundur Einarsson
ritari og þeir Guðgeir Jónsson
og Sigurjón Þorkelsson eru
meðstjórnendur.
„Það er með mikilli ánægju sem
ég tilkynni að stjórn Taflfélags
Vestmannaeyja hefur kjörið Arnar
Sigurmundsson sem heiðursfélaga
í félaginu. Arnar er sá þriðji sem
hlýtur slíka útnefningu í rúmlega
97 ára sögu félagsins, en það var
stofnað 29. ágúst 1926 og verður
brátt aldargamalt,“ sagði Karl
Gauti Hjaltason sem tók á ný við
formennsku í félaginu síðastliðið
vor, en hann var formaður þess
2007 til 2013.
„Fyrri heiðursfélagar eru
Sigurbjörn Sveinsson, Sólbergi
árið 1936. Sigurbjörn var einnig
heiðursborgari Vestmannaeyja-
bæjar, kennari, skákdæmahöfund-
ur, ljóðskáld og orti m.a. ljóðið
fagra sem hefst með orðunum :
Yndislega Eyjan mín, en hvað
þú ert morgunfögur. En Sigur-
björn var ekki síst þekktur sem
barnabókahöfundur og stundum
nefndur rithöfundur barnanna.
Árið 1988 var Sigmundur Andr-
ésson bakari, útnefndur heiðurs-
félagi Taflfélagsins en hann var
um áratugaskeið mjög virkur í
starfi félagsins og á mikinn þátt í
því að hafa haldið utan um sögu
þess og færði félaginu að gjöf
smábókasafn sitt og úrklippusafn
árið 2005. Ræða sem hann flutti
af því tilefni er eftirminnileg og
unnt að finna hana á Heimaslóð.
Þar kemur fram að Sigmundur
hóf skákiðkun vegna slyss sem
hann lenti í barnungur og stundaði
skákiðkun í sjúkrarúmi. Einnig
hve mjög Sigmundur unni skák-
listinni og Taflfélaginu alla tíð,“
sagði Karl Gauti sem næst rakti
feril Arnars í Taflfélaginu sem
spannar 65 ár.
Tengst félaginu í 65 ár
„Arnars er fyrst getið í bókum
Taflfélagsins fyrir 65 árum síðan,
1958, þegar hann 14 ára gamall
sigraði unglingaflokk félagsins
á Haustmótinu 1958. Á þessum
tímum voru háðar símaskákir
milli félaga og Arnar tók einmitt
þátt í einni slíkri 1959, þegar
Eyjamenn sigruðu Akurnesinga
með 7,5 vinningi gegn 3,5. Arnar
getur kannski frætt okkur hvernig
nákvæmlega slíkar keppnir fóru
fram ef einhvern tíma getur reynst
nauðsynlegt að taka þann háttinn
upp ef veður hamlar för ofan af
landi.
Síðan þá er óhætt að segja að
hann hafi tekið virkan þátt í starfi
félagsins, bæði þegar félagið hef-
ur verið í sókn og starf þess öflugt
og stórkostlegt eins og stundum
hefur verið en einnig og ekki
síður þegar starfsemi þess hefur
verið í lægð og erfitt að fá menn
til að iðka þessa göfugu íþrótt.
Arnar virðist aldrei hafa verið svo
önnum kafinn að hann hafi ekki
geta gert einhver viðvik í þágu fé-
lagsins. Arnar varð fjórum sinnum
skákmeistari Vestmannaeyja 1964,
1969, 1970 og 1979.
Þá varð Arnar formaður Tafl-
félags Vestmannaeyja á árunum
1962-1965 og það ótrúlega gerðist
sem fá félög geta státað af að 53
árum eftir að hann var kjörinn
formaður tók hann að nýju við
formennsku 5. september 2015.
Mér er til efs að mörg félög geti
státað að slíkri hollustu og enn er
hann sístarfandi fyrir félagið eins
og þið öll sjáið. Arnar er sannar-
lega vel að þessum heiðri kominn.
Innilega til hamingju með
nafnbótina og megir þú áfram lifa
við góða heilsu, minn kæri vinur
og félagi,“ sagði formaðurinn að
lokum.
Taflfélagið Karl Gauti enn og aftur formaður:
Arnar gerður að heiðursfélaga
Arnar var meðal keppenda á Goslokamóti TV.
„Arnar Sigur-
mundsson fæddist
19. nóvember 1943
í Vestmannaeyjum.
Foreldrar hans
voru Sigurmundur
Runólfsson og Ísey
Skaftadóttir. Arnar
lauk gagnfræða-
prófi árið 1960.
Hann hefur meðal
annars starfað sem
framkvæmdastjóri
Viðlagasjóðs og sem
framkvæmdastjóri
Samfrosts. Arnar hef-
ur einnig tekið mik-
inn þátt í félagsstarfi
í gegnum tíðina, sat
í stjórn Eyverja frá
1964-1977 og hefur
fjórum sinnum verið
Skákmeistari Vest-
mannaeyja (1964,
69, 70 og 1979) og
var formaður Tafl-
félagsins á árunum
1962-1965 og fimm
áratugum síðar, eða
haustið 2015 tók
hann aftur við for-
mennsku í félaginu.
Arnar hefur verið
aðal- og varabæjar-
fulltrúi fyrir Sjálf-
stæðisflokkinn. Hann
hefur einnig starfað
með fjölda nefnda
og ráða á vegum
bæjarins í gegnum
tíðina“ segir m.a á
Heimaslóð. Arnar
hefur víðar komið við
og var m.a. stjórnar-
formaður Eyjasýnar í
mörg ár.
ÓMAR GARÐARSSON
omar@eyjafrett ir. is