Fréttir - Eyjafréttir


Fréttir - Eyjafréttir - 21.09.2023, Qupperneq 6

Fréttir - Eyjafréttir - 21.09.2023, Qupperneq 6
6 | | 21. september 2023 Að afloknu Goslokamóti Tafl- félags Vestmannaeyja laugar- daginn 9. september var til- kynnt að Arnar Sigurmundsson hafi verið kjörinn af stjórninni sem heiðursfélagi félagsins. Arnar er þriðji maðurinn sem hlotnast þessi titill í sögu fé- lagsins. Arnar hefur lengi verið félagi í TV, varð Vestmann- eyjameistari árin 1964, 1969, 1970 og 1979 og formaður árin 1962 til 1965 og aftur árið 2015. Hann var meðal þátt- takenda á Goslokamótinu. Í stjórn Taflfélagsins eru nú þeir Karl Gauti Hjaltason formaður, Hallgrímur Steinsson varafor- maður, Sæmundur Einarsson ritari og þeir Guðgeir Jónsson og Sigurjón Þorkelsson eru meðstjórnendur. „Það er með mikilli ánægju sem ég tilkynni að stjórn Taflfélags Vestmannaeyja hefur kjörið Arnar Sigurmundsson sem heiðursfélaga í félaginu. Arnar er sá þriðji sem hlýtur slíka útnefningu í rúmlega 97 ára sögu félagsins, en það var stofnað 29. ágúst 1926 og verður brátt aldargamalt,“ sagði Karl Gauti Hjaltason sem tók á ný við formennsku í félaginu síðastliðið vor, en hann var formaður þess 2007 til 2013. „Fyrri heiðursfélagar eru Sigurbjörn Sveinsson, Sólbergi árið 1936. Sigurbjörn var einnig heiðursborgari Vestmannaeyja- bæjar, kennari, skákdæmahöfund- ur, ljóðskáld og orti m.a. ljóðið fagra sem hefst með orðunum : Yndislega Eyjan mín, en hvað þú ert morgunfögur. En Sigur- björn var ekki síst þekktur sem barnabókahöfundur og stundum nefndur rithöfundur barnanna. Árið 1988 var Sigmundur Andr- ésson bakari, útnefndur heiðurs- félagi Taflfélagsins en hann var um áratugaskeið mjög virkur í starfi félagsins og á mikinn þátt í því að hafa haldið utan um sögu þess og færði félaginu að gjöf smábókasafn sitt og úrklippusafn árið 2005. Ræða sem hann flutti af því tilefni er eftirminnileg og unnt að finna hana á Heimaslóð. Þar kemur fram að Sigmundur hóf skákiðkun vegna slyss sem hann lenti í barnungur og stundaði skákiðkun í sjúkrarúmi. Einnig hve mjög Sigmundur unni skák- listinni og Taflfélaginu alla tíð,“ sagði Karl Gauti sem næst rakti feril Arnars í Taflfélaginu sem spannar 65 ár. Tengst félaginu í 65 ár „Arnars er fyrst getið í bókum Taflfélagsins fyrir 65 árum síðan, 1958, þegar hann 14 ára gamall sigraði unglingaflokk félagsins á Haustmótinu 1958. Á þessum tímum voru háðar símaskákir milli félaga og Arnar tók einmitt þátt í einni slíkri 1959, þegar Eyjamenn sigruðu Akurnesinga með 7,5 vinningi gegn 3,5. Arnar getur kannski frætt okkur hvernig nákvæmlega slíkar keppnir fóru fram ef einhvern tíma getur reynst nauðsynlegt að taka þann háttinn upp ef veður hamlar för ofan af landi. Síðan þá er óhætt að segja að hann hafi tekið virkan þátt í starfi félagsins, bæði þegar félagið hef- ur verið í sókn og starf þess öflugt og stórkostlegt eins og stundum hefur verið en einnig og ekki síður þegar starfsemi þess hefur verið í lægð og erfitt að fá menn til að iðka þessa göfugu íþrótt. Arnar virðist aldrei hafa verið svo önnum kafinn að hann hafi ekki geta gert einhver viðvik í þágu fé- lagsins. Arnar varð fjórum sinnum skákmeistari Vestmannaeyja 1964, 1969, 1970 og 1979. Þá varð Arnar formaður Tafl- félags Vestmannaeyja á árunum 1962-1965 og það ótrúlega gerðist sem fá félög geta státað af að 53 árum eftir að hann var kjörinn formaður tók hann að nýju við formennsku 5. september 2015. Mér er til efs að mörg félög geti státað að slíkri hollustu og enn er hann sístarfandi fyrir félagið eins og þið öll sjáið. Arnar er sannar- lega vel að þessum heiðri kominn. Innilega til hamingju með nafnbótina og megir þú áfram lifa við góða heilsu, minn kæri vinur og félagi,“ sagði formaðurinn að lokum. Taflfélagið Karl Gauti enn og aftur formaður: Arnar gerður að heiðursfélaga Arnar var meðal keppenda á Goslokamóti TV. „Arnar Sigur- mundsson fæddist 19. nóvember 1943 í Vestmannaeyjum. Foreldrar hans voru Sigurmundur Runólfsson og Ísey Skaftadóttir. Arnar lauk gagnfræða- prófi árið 1960. Hann hefur meðal annars starfað sem framkvæmdastjóri Viðlagasjóðs og sem framkvæmdastjóri Samfrosts. Arnar hef- ur einnig tekið mik- inn þátt í félagsstarfi í gegnum tíðina, sat í stjórn Eyverja frá 1964-1977 og hefur fjórum sinnum verið Skákmeistari Vest- mannaeyja (1964, 69, 70 og 1979) og var formaður Tafl- félagsins á árunum 1962-1965 og fimm áratugum síðar, eða haustið 2015 tók hann aftur við for- mennsku í félaginu. Arnar hefur verið aðal- og varabæjar- fulltrúi fyrir Sjálf- stæðisflokkinn. Hann hefur einnig starfað með fjölda nefnda og ráða á vegum bæjarins í gegnum tíðina“ segir m.a á Heimaslóð. Arnar hefur víðar komið við og var m.a. stjórnar- formaður Eyjasýnar í mörg ár. ÓMAR GARÐARSSON omar@eyjafrett ir. is

x

Fréttir - Eyjafréttir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttir - Eyjafréttir
https://timarit.is/publication/977

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.