Fréttir - Eyjafréttir


Fréttir - Eyjafréttir - 21.09.2023, Blaðsíða 10

Fréttir - Eyjafréttir - 21.09.2023, Blaðsíða 10
10 | | 21. september 2023 Matey sjávarréttahátíð verður haldin í annað sinn um helgina. Hátíðin var haldin í fyrsta sinn í fyrra og stóð hún sannarlega fyrir sínu að sögn Frosta Gíslasonar sem er einn af frumkvöðlum hátíðarinnar og verkefnastjóri hennar frá upphafi. Markmið hátíðarinnar er meðal annars að stimpla Vestmannaeyjar inn sem helsta mataráfangastað Íslands, bjóða upp á fjölbreyttar afurðir af fiski og lengja ferðamanna- tímabilið. Samstarfsverkefni Matey sjávarréttahátíð varð upphaflega til í samtali við fulltrúa ferðamálasamtakanna. Við vorum við að ræða um matarviðburð í tengslum við verkefni sem ég hef unnið að sem kallast sjávarsamfé- lagið og þau ræddu um hugmyndir sínar um að lengja ferðamanna- tímabilið og vera með viðburði á veitingastöðum bæjarins. Þá ræddum við að slá hugmyndunum saman og halda Sjávarréttahátíð- ina Matey sem yrði samstarfsver- kefni fiskvinnslufyrirtækjanna, veitingaaðila, ferðaþjónustuaðila og fleiri. Hugmyndin var að fá fiskvinnslustöðvar og veitingar- staði, ásamt stjörnukokkum frá mismunandi stöðum með okkur í lið. “Eitt af markmiðunum er að Vestmannaeyjar verði helsti matar- áfangastaðurinn á Íslandi, stimpla okkur inn sem helsta sjávarsam- félag Íslands og vekja athygli á menningararfleið þar sem við höfum frá upphafi byggðar lifað á veiðum og vinnslu á fiski, við viljum að fólk fái að upplifa það besta frá Eyjum“, segir Frosti. Sniðið í ár er sama og í fyrra og munu fjórir gestakokkar matreiða fjögurra rétta seðil í samstarfi við fjóra veitingarstaði, Gott, Næs, Slippinn og Einsa Kalda. Eru þetta sérvaldir kokkar sem hafa verið framarlega á sínu sviði og hug- myndin sú að þeir matreiði fiskinn og hráefnin á nýjan hátt og með því skapist ný þekking á veitingar- stöðunum, ásamt því að þeir taki með sér nýja þekkingu og hráefni og kynni fyrir sínu fólki. Fleiri veitingarstaðir taka þátt í viðburðinum og munu bjóða upp á sérvalda fiskirétti þessi helgi. Næs og Gott munu einnig bjóða upp á fiskirétt í hádeginu. Brothers Brewery bruggar bjór í tilefni hátíðarinnar sem verður kynntur á opnunarviðburðinum í Eldheimum þann 20.september og yfir hátíðina einnig. Einn vinkill í stærra verkefni Hátíðin tengir saman margvís- lega þætti, þótt að í grunninn sé hún matarhátíð. Aðrir aðilar sem koma að hátíðinni eru listafólk, rannsóknarteymi á vegum Háskóla Íslands, ferðaþjónustan og tón- listarfólk sem leggur áherslu á að túlka náttúruna og jafnréttismál. Allir hafa þau sömu markmið að miðla áfram þeirri þekkingu að náttúran er okkar matarkista sem við verðum að ganga vel um vilj- um við geta lifað hér áfram. Frosti segir það afar ánægjulegt hversu gott samstarf er á milli að- ila sem koma að hátíðinni. Hátíðin hefur langan aðdraganda þar sem sett eru fram skýr markmið til hverra við viljum ná. „Við erum að búa til aukna þekkingu, fá inn nýja þekkingu, deila út þekkingu á okkar hráefni og skapa nýja markaði. Markmiðið er að byggja hvort annað upp, sem á eftir að skila okkur í fleiri og dýrmætari ferðamönnum, markaðsetningu á Matey sjávarréttahátíð Stimpla okkur inn sem helsta sjávarsamfélag Íslands ” Eitt af markmiðunum er að Vestmannaeyjar verði helsti mataráfangastaðurinn á Íslandi, stimpla okkur inn sem helsta sjávarsamfélag Íslands ... Frá Mateyjarhátíðinni á síðasta ári. Mynd: Karl Petersson . Frá Mateyjarhátíðinni á síðasta ári. Mynd: Karl Petersson . DÍANA ÓLAFSDÓTTIR diana@eyjafrett ir. is

x

Fréttir - Eyjafréttir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttir - Eyjafréttir
https://timarit.is/publication/977

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.