Fréttir - Eyjafréttir - 21.09.2023, Blaðsíða 7
21. september 2023 | | 7
Sigursteinn Bjarni Leifsson
hefur tekið við sem útibú-
sstjóri Íslandsbanka í Vest-
mannaeyjum. Diddi eins og
hann er alla jafna kallaður
tekur við starfinu af Þórdísi
Úlfarsdóttur, sem gegnt hefur
starfinu sl. níu ár. Diddi hefur
starfað við útibú Íslands-
banka í níu ár og gegnt stöðu
viðskiptastjóra fyrirtækja.
Hann er viðskiptafræðingur
að mennt með BS gráðu frá
Háskólanum á Akureyri.
„Starfið leggst mjög vel í mig
enda búinn að vera í bankanum í
tæp 9 ár við hlið forvera míns og
þekki því útibúið mjög vel,“ sagði
Diddi aðspurður um nýtt hlutverk
sem hann segir vera fjölbreytt
og skemmtilegt. „Starfið snýst
um daglega stjórnun útibúsins,
bera ábyrgð á starfseminni og að
fylgja eftir þjónustukröfum, stöðl-
um og að reglum sé framfylgt.
Einnig að sjá um að starfsemi
útibúsins sé samkvæmt stefnu
bankans og að þjónusta viðskipta-
vini útibúsins eins vel og hægt
er. Íslandsbanki er með sterka
markaðshlutdeild hér á svæðinu
og snýst starfið einnig um að
viðhalda þeim góðu samskiptum
sem við eigum við viðskiptavini
okkar.“
Sjálfvirknivæðing valdið fækk-
un starfsfólks
Í dag eru átta stöðugildi við útibú-
ið en bæði það og bankaþjónusta
hafa tekið miklum breytingum á
þeim tíma frá því Diddi byrjaði
í bankanum, hvernig sérðu fyrir
þér framtíð þessara útibúa? „Það
er alveg rétt að bankaþjónusta
hefur tekið miklum breytingum
á þeim árum sem ég hef starfað
í bankanum. Sjálfvirknivæðing
hefur verið í mikilli þróun, mikið
af stafrænum lausnum hafa komið
fram sem gerir bankaþjónustu allt
öðruvísi en hún var fyrir nokkrum
árum. Viðskiptavinir afgreiða sig
nánast sjálfir sem hefur m.a. kall-
að á fækkun starfsfólks í öllum
útibúum en um leið hefur skipt
máli að til staðar sé persónuleg
og sérsniðin þjónusta við stærri
ákvarðanir. Við teljum að það
þurfi að vera þessi rétta sam-
blanda af tækni og persónulegri
þjónustu.“
Útibúið stendur vel
Diddi segir að þrátt fyrir breytt
umhverfi þá sé staðan góð.
„Útibúið okkar stendur mjög
vel miðað við önnur útibú og er
mjög mikilvægt að það sé útibú í
Vestmannaeyjum. Bankinn hefur
hér sterka markaðshlutdeild enda
atvinnulíf í Vestmannaeyjum mjög
öflugt. Viðskiptavinir okkar eru
mjög ánægðir með okkar þjónustu
og okkar starfsfólk í öllum þeim
könnunum sem gerðar hafa verið
undanfarin ár og munum við
að sjálfsögðu halda okkar háa
þjónustustigi áfram í framtíðinni.
Ég er spenntur fyrir nýju hlutverki
og að eiga áfram í góðu samtali
við viðskiptavini. Samfélagið hér
er náið svo samspil bankaþjónustu
við einstaklinga og fyrirtæki þarf
að vera gott. Við munum áfram
leggja okkur öll fram við að
þjónusta þann hóp með stafrænum
lausnum en hér er alltaf heitt á
könnunni fyrir þá sem vilja kíkja
til okkar og fara yfir málin.“
Spenntur fyrir nýju hlutverki
” Starfið leggst mjög vel í
mig enda búinn að vera í
bankanum í tæp 9 ár við
hlið forvera míns og þekki
því útibúið mjög vel.
Sigursteinn Bjarni Leifsson hefur tekið við sem útibússtjóri Íslandsbanka í Vestmannaeyjum.
SINDRI ÓLAFSSON
sindri@eyjafrett ir. is