Fréttir - Eyjafréttir - 21.09.2023, Síða 13
21. september 2023 | | 13
Elliði Snær segist hafa verið
ánægður með tímann í Íþrótta-
akademíu FIV. „Mig minnir
að ég hafi verið tvö og hálft ár
eða þrjú ár og svo var ég líka í
íþróttaakademíu GRV allar þær
annir sem mér stóð það til boða.
Þetta var mjög gott fyrir mig.
Hvað gerði þessi námsbraut
fyrir þig? „Fyrst og fremst færðu
auka tækniæfingar með mjög
færum þjálfurum þar sem þú
getur þjálfað það sem þú hefur
minni tíma fyrir á hefðbundnum
æfingum, á akademíu æfingum
er meira verið að nýta tímann
til þess að bæta það sem þú ert
lélegur í og verða enn betri í því
sem maður gerði vel. Þetta voru
handboltaæfingarnar en það er
bara einn partur af akademíunni,
styrktarþjálfun akademíunnar er
líklega það sem að ég hef tekið
mest út úr þeirri þjálfun sem a
ég fékk, þar bjó ég til grunnstyrk
og lærði hvernig á að lyfta rétt
og öðlaðist þ.a.l. sjálfstraust til
að fara sjálfur að lyfta og vera
viss um það að ég væri að gera
réttar hreyfingar. Það sem mér
fannst minna áhugavert á þeim
tíma en hef lært ótrúlega mikið
af í dag eru allir þeir fyrirlestrar
sem að við fórum á, dæmi um
fyrirlestra eru markmiðasetning,
næringarfræði, hugafar og sjálfs-
traust. Þetta eru þeir hlutir sem
maður þarf að læra og úr öllum
fyrirlestrunum valdi maður sér
nokkra punkta til að taka með sér
inn í framhaldið.“
Elliði segir erfitt að velja
eitthvað eitt ákveðið atriði úr
náminu sem gerði meira fyrir
hann en annað. „Fljótt á litið er
ekkert eitt sem stendur upp úr en
þegar maður lítur til baka þá er
það allt sem maður lærði á þessu,
aginn að mæta á æfingar fyrir
skóla, þau atriði sem maður lærði
á fyrirlestrunum og tók ósjálfrátt
með sér inn í lífið og það að geta
farið á aukaæfingar í lyftinga-
salnum og vitað að maður væri
að gera hlutina rétt.“
Hann er ekki í vafa að akadem-
ían hafi gert mikið fyrir hans
íþróttaferil. „Þetta hefur tvímæla-
laust hjálpað minni þróun sem
leikmanni og ég er ekki svo viss
um að án hennar hefði ég komist
á þann stað sem ég er á í dag. Ég
hafði alltaf trú á því að ég myndi
fara í atvinnumennsku og ætlaði
mér það líka. Þess vegna skráði
ég mig í íþróttaakademíuna til
þess að fá þær aukaæfingar og
þjálfun sem ég þurfti.“
Elliði segist ekki í vafa um það
að þessi námsbraut geti hjálp-
að öllum. „Akademían er ekki
bara fyrir þá sem ætla að verða
atvinnumenn eða -konur í sinni
íþrótt, akademían hefur líka
hjálpað mér að ná betri tökum
á námi og það er margt sem ég
nýtti mér úr akademíunáminu til
þess að geta klárað háskólanám.
En ef einstaklingurinn ætlar sér
að ná sem lengst í sinni íþrótt
þá á hann að skrá sig í íþrótta-
akademíu FÍV. Ég er ótrúlega
þakklátur ÍBV, FÍV, þeim
þjálfurum og öllu fólkinu sem
kom að akademíunni á meðan ég
fór í gegnum hana og vil hér með
þakka þeim fyrir.“
Sandra Erlingsdóttir er leik-
stjórnandi TuS Metzingen í
Þýskalandi og íslenska lands-
liðsins en hún lék áður með EH
Aalborg í Danmörku. Hún var
einnig valin handknattleikskona
ársins 2022 af stjórn Hand-
knattleikssambands Íslands.
„Ég var tvö ár í FÍV og var bæði
árin í akademíunni , fékk svo
stundum að stelast inn á æfingar
eftir að ég útskrifaðist.“ Sandra
segist ánægð með þennan tíma
og námsleiðina. „Hún gaf mér
ótrúlega mikið. Þetta eru svo
ótrúlega mikilvægar aukaæf-
ingar. Þarna nær maður að
einblína á einstaklingsæfingar
og vinna í sínum veikleikum og
styrkleikum. Inn á liðsæfingum
er fókusinn meiri á liðið sjálft
svo ég myndi segja að þetta séu
bara alveg ómissandi æfingar á
þessum aldri.“
Sandra segir félagsskapinn
ekki síður hafa staðið uppúr
en æfingarnar sjálfar. Það var
frábært að æfa aukalega með
vinum sínum og allar einstak-
lings skot- og tækni æfingarnar.
Þetta allt gerði mikið fyrir mig.“
Hefur þetta nám hjálpað þér á
þínum ferli? „Alveg 100%! Öll
aukavinna skilar sér að lokum.
Þar að auki allir skemmtilegu
fyrirlestrarnir og fræðslan sem
maður fær.“
Sandra segir það ekki vera
spurningu í sínum huga fyrir
ungt Íþróttafólk að skrá sig í
Akademíuna. „Þetta eru árin
sem eru ein af þeim mikilvæg-
ustu! Þarna er maður að einblína
á sig sjálfan og engan annan!
Þessar auka æfingar geta gefið
manni þetta extra sem aðrir hafa
og leggja inn til þess að komast
langt. Ég vil bara hvetja alla til
þess að skrá sig i akademíuna.
Ég man þegar ég var í skólanum
þá var þetta aldrei spurning. Ef
maður ætlar að ná langt þá eru
það þessar auka æfingar sem
munu skila sér að lokum.“
Ekki bara fyrir atvinnumenn
Fékk að stelast á
æfingar eftir útskrift
Hákon Daði Styrmisson.
Sandra Erlingsdóttir.
Elliði Snær Viðarsson.