Fréttir - Eyjafréttir


Fréttir - Eyjafréttir - 21.09.2023, Blaðsíða 14

Fréttir - Eyjafréttir - 21.09.2023, Blaðsíða 14
14 | | 21. september 2023 Kvennalið ÍBV hefur farið vel af stað á þessu tímabili og unnið sína tvo fyrstu leiki. Annarsvegar KA/ Þór fyrir norðan og svo Hauka- stúlkur á heimavelli. Liðið situr á toppi Olísdeildarinnar með fullt hús stiga ásamt Valsstúlkum. Eins og síðustu ár eru það þeir Sigurður Bragason og Hilmar Ágúst Björnsson sem stýra liðinu. Við ræddum við Sigga um liðið og tímabilið. „Veturinn leggst bara mjög vel í okkur. Við erum öll mjög spennt og ákveðin í að halda okkur á þeim stalli sem við komum okkur á í fyrra. Við höfum verið að elta þessi bestu lið (Fram og Val) undanfarin 10 ár. Núna erum við klárlega komin á sama stall og þessir klúbbar.“ Heilt lið af nýliðum Sigurður segir hópinn hafa gengið í gegnum miklar breytingar á milli ára. „Þó svo að okkar helstu stjörnur séu áfram á milli ára þá eru töluverðar breytingar á hópn- um. Það eru átta leikmenn sem spiluðu með okkur í fyrra horfnar á braut.“ Það eru þær: Harpa Valey (Selfoss) Maria Jovanovic (Serbíu), Ólöf María (Gróttu) Tara Sól (Víking) Bernódía (Dan- mörk) Alexandra (Danmörk) og þá eru Ólöf Maren og Ásta Björt ófrískar. Nýjar hjá ÍBV liðinu eru Britney Cox (Stjarnan), Ásdís Guðmundsdóttir (Skara), Dagbjört (ÍR), Margrét Castillo (Grótta), Edda Bognar (Ungverjaland) og Helga Margrét Thorlacius (Stjarnan). „Þá eru einnig að koma upp mjög efnilegar stelpur sem verða örugglega í vaxandi hlutverki á næstu árum hjá okkur. Til marks um það hversu mikið hópurinn hefur breyst þá voru á einum tímapunkti gegn KA/Þór allir leikmenn ÍBV á vellinum að leika sinn fyrsta deildarleik fyrir félagið. Ég hef nú lengi fylgst grannt með gangi mála hjá ÍBV liðunum og það held ég hafi aldrei áður gerst.“ Góður andi Hvernig er hópurinn að koma undan sumri? „Við erum bara mjög góð. Hrafnhildur Hanna fór í nokkuð stórar aðgerðir í sumar á hné og hásinum, en það gekk bara vel hjá henni. Við búumst við henni til baka í október. Þá fór Sunna í aðgerð á olnboga og er að koma til baka úr henni, hún er að nálgast sitt besta stand. Ég er mjög ánægður með hópinn en það á auðvitað eftir að taka einhvern tíma að koma nýjum leikmönnum fullkomlega inn í sín hlutverk. En ég er mjög ánægður með þá styrkingu sem við náðum í fyrir tímabilið. Þessar stelpur eru að koma vel inn í hópinn og það er góður andi yfir þessu öllu hjá okkur. Ég er mjög spenntur fyrir komandi vetri. Berjast um alla titla Sigurður segir markmið vetrar- ins ekki vera neitt leyndarmál. „Markmiðin eru í raun þau sömu og í fyrra. Það er að vera vel gjaldgeng í toppbaráttunni og berjast um alla titlana sem eru í boði.“ Aðspurður um það hvað áhorfendur eiga eftir að sjá hjá liðinu í vetur er Sigurður fullur bjartsýni. „Bara vonandi það sama og í fyrra. Að liðið sé að spila fleiri stóra leiki, við viljum öll vera þar. Þá er líka takmarkið að ná langt í Evrópukeppninni, við náðum í átta liða úrslit í fyrra og ætlum okkur að reyna að komast þangað aftur í það minnsta. Kynning á meistaraflokki kvenna ÍBV í handbolta 2023-2024 Háleit markmið hér og í Evrópu Hilmar Ágúst Björnsson þjálfari Sigurður Bragason þjálfari Birna Berg hefur farið frábærlega af stað á þessu tímabili og skoraði 14 mörk gegn Haukum þar af 11 í fyrri hálfleik. Mynd: Sigfús Gunnar. Elísa verður í lykilhlutverki í vetur á báðum endum vallarins líkt og síðustu ár. Mynd: Sigfús Gunnar.

x

Fréttir - Eyjafréttir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttir - Eyjafréttir
https://timarit.is/publication/977

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.