Stuðlaberg - 01.04.2022, Page 6

Stuðlaberg - 01.04.2022, Page 6
6 STUÐLABERG 1/2022 fremst en í 4. og 6. línu er hann í annarri kveðu. Hér getur að líta liprar kvenkenningar; dúka Freyja, seima Nanna, sunna unnarbáls, gullskorð. Allt yfirbragð vísunnar ber vott um heita og skilyrðislausa ást skáldsins til konunnar sem kveðið er um. Vísuna orti Páll til Ragnhildar, dóttur Björns vinar síns, einhvern tíma þegar hún var kornung og ólofuð í heimahúsum en hann harðgiftur Þórunni Pálsdóttur. Ástar saga þeirra tveggja er með algjörum ólíkindum. Eins og fyrr kom fram bjuggu Páll og Þórunn í einhvers konar félagsbúskap við Björn Skúlason um nokkurra ára skeið. Þar kynnist Páll Ragnhildi og það virðist hafa verið á allra vitorði að þau voru ástfangin hvort af öðru. Þó ber öllum heimildum saman um það að hjónaband Páls og Þórunnar hafi verið með ágætum. En Þórunn fékk minna af ástarljóðunum, sumir segja ekkert, aðrir benda á að henni gætu tilheyrt nokkrar línur í einu kvæði. Það er allt og sumt. Ekki var allt sem Ragnhildur fékk frá Páli ort undir dróttkvæðum hætti. Næst er draghent: Hálfu vil ég heldur missa hvarmasteina mína en þeir sjái aðra kyssa armleggina þína. Á hverjum vil ég degi deyja og dauðans kvalir reyna heldur en mín hjartans meyja hugsi’ um aðra sveina. Og Páll bregður fyrir sig fleiri háttum: Fyrst satt ég ekki segi svo er best ég þegi, en eg get ekki þagað af því hjartað dagað hefur uppi hjá þér og hleypur aldrei frá þér. Það að nátttrölli orðið er, ástin mín kær, í faðmi þér. Hér er kominn einn af þeim bragarháttum sem þróuðust af dróttkveðunni strax á mið­ öldum. Innrímið er horfið og endarím komið í staðinn. Þessi háttur hefur, eins og á við um flesta íslenska bragarhætti, ekkert sérstakt heiti. Í þessari vísu bregður skáldið út af hættinum í tveimur síðustu línunum. Fram að því eru þrjár kveður í línu en lokalínurnar eru lengri, líkt og tilfinningarnar beri hann ofurliði. Hann bætir einni kveðu við hvora línu til að ástarjátningin komist fyrir. Eftir að Páll og Þórunn fluttu aftur í Hallfreðarstaði fór Ragnhildur til Reykjavíkur og dvaldist þar um tíma. Talið er líklegt að Þórunn og Bergljót frænka hennar, móðir Ragnhildar, hafi komið því til leiðar „vegna ósæmilegra ástamála á bænum“ eins og segir í inngangi Þórarins Hjartarsonar að Ástarljóðum Páls. Þessi brennheita ást, sem birtist í hverju snilldarljóðinu á eftir öðru, hefur varla farið fram hjá öðru heimilisfólki. Næstu árin yrkir Páll hvert saknaðarljóðið eftir annað. Hér yrkir hann langhendu: Legsteinn sem var settur á leiði Páls og Ragnhildar í Hólavallagarði í Reykjavík í fyrra. J.R .

x

Stuðlaberg

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Stuðlaberg
https://timarit.is/publication/1892

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.