Stuðlaberg - 01.04.2022, Side 9
STUÐLABERG 1/2022 9
Verbúð í viðtæki mínu
Dægurvísur
Að þessi sinni var hagyrðingum falið að
yrkja um Verbúðina, sjónvarpsþættina sem
settu mark sitt á þjóðfélagsumræðuna um
nokkurra vikna skeið.
Anna Dóra Gunnarsdóttir, fyrrverandi
lyftara stjóri, var ekki búin að sjá þættina og
gerði því samvisku samlega skil:
Ég velti því fyrir mér fjarræn í lund
hvort fari ég í það að horfa um stund
á Verbúð í viðtæki mínu.
Að umhugsun lokinni ætla þó má
að alls ekki nenni ég þætti að sjá
um angur og eilífa pínu.
Rebekka Hlín Rúnarsdóttir jarðfræðingur
upplifði þarna eitthvað alveg nýtt:
Fræði lífsins las af dug,
lítið var af bulli.
Í fæst þau skipti flaug í hug
að fiskur hrygndi gulli.
Viktor A. Guðlaugsson skólastjóri sagði:
Verbúðarandinn eins og vofa
með okkur lifir og fátt er breytt.
Menn trúa þeim helst sem lífsgæðum lofa
og leggjast í sæng þar sem best er veitt.
Steinn G. Lundholm eftirlaunaþegi yrkir:
Í verbúð oft var álag steikt
en á kvöldin gaman.
Mikið drukkið, mikið reykt
og mikið lúllað saman.
Sigurður Júlíus Grétarsson, prófessor í
sálfræði, orti limruna Óvænt vertíðarlok:
Þegar Ingvar drakk sig í dá, enda
með dömlu af spítt’ uppí bláenda
og Sveppi handslitinn
var sviðinn og bitinn,
ég sveif út úr heimi sjáenda.
Embla Rún Hakadóttir þroskaþjálfi skilaði
skemmtilegri samhendu:
Framhjáhöld og fyllerí.
Fiska eitthvað smotterí.
Karlastand og kelerí.
Kvótabrask er lotterí.
Höskuldur Búi Jónsson jarðfræðingur
dregur upp fremur dökka mynd af ástandinu:
Í viðtækjum virtist oft bræla
og í verbúðum rugl eða þvæla,
yfir gróða misjöfnum
og gleði í höfnum,
gaus svo upp drulla og æla.
Jarl Sigurgeirsson í Vestmannaeyjum rifjar
upp þegar hann var sextán ára og byrjaði að
snafsa sig í þrjúkaffinu í vinnunni, lýsir svo
framhaldinu í vísunum sem á eftir fara:
Heim ég kom um kvöldmatinn
kátur var og léttur.
Bætti út í brúsann minn
brátt ég gerðist þéttur.
Við tók djamm og herlegheit,
hress með sjúss og kvinnu.
Mánudags svo morgun leit
mættur klár í vinnu.
Gísli Örn Garðarsson og Nína Dögg Filippus
dóttir í hlutverkum sínum í Verbúðinni.