Stuðlaberg - 01.04.2022, Qupperneq 12
12 STUÐLABERG 1/2022
Eitt ljóðið heitir Áramót:
Af gamalkunnri gleði svíf
með glimmerskraut í hári.
Við flugelda og fjör og líf
við fögnum nýju ári.
Veislur, gleði’ og húllumhæ.
Við höldum nýjársteitin
og aftur strengjum óraunsæ
áramótaheitin.
Ljóðabókin Ég er nú bara kona er frumleg
og um margt nýstárleg, þar má sjá óvænt
sjónarhorn og skemmtilegt hugarflug og ekki
síður góð tök á bragforminu. Þessa bók verða
allir unnendur hefðbundinna ljóða að eignast.
Skuggi fóstrar fagurlit blóm
JPVútgáfa hefur sent frá sér bókina Blá
stjarna efans eftir Valdimar Tómasson. Þetta
er sjötta ljóðabók Valdimars, 46 blaðsíður að
stærð í litlu broti, inniheldur tuttugu
og sex ljóð sem eru stutt,
fyrirferðarlítil og hógværleg og
láta lítið yfir sér við fyrstu sýn.
Þegar betur er gáð og nánar lesið
vinnur Valdimar á, hinn lágværi
tónn fangar hugann og lesandinn
hrífst með. Hávaði er ekki alltaf
besta leiðin til að ná athygli.
Ljóð Valdimars eru öguð og
vel unnin og hvergi orði ofaukið.
Hann beitir stuðlasetningu af mikilli fimi, form
ljóðanna er ekki óskylt forn yrðislagi. Skoðum
ljóð sem heitir Umsátur:
Gerræði lyginnar
býður griðlönd fá.
Loftið fyllir
falsþefjandi hégómi
og eini vitaloginn
villuljós ágirndar.
Jörðina níðir
nístandi græðgi
uns funandi lífsneisti
fjarar við kaldan stein.
En skuggi fóstrar
fagurlit blóm.
Annað ljóð í bókinni heitir Blik:
Trygga blóðsjúka
blekkingarvíma.
Í fjarska má
raunveruleikinn roða.
En ég dvel í ró
við draumalindir.
Hér er ekki einu orði ofaukið. Falleg bók og
vel ort. Valdi eins og hann gerist bestur.
Ó, hvílíkt fagnaðarundur
Bókaútgáfan Gullbringa hefur
sent frá sér bókina Allt og sumt
eftir Þórarin Eldjárn. Þetta er
vísnabók, eitthundrað vísur, sem
fjalla um allt milli himins og
jarðar. Hér er Þórarinn í essinu
sínu. Efnistök eru oft óvænt og
sjónarhornin nýstárleg. Samt er
það svo að oftar en ekki hrekkur
lesandinn við og hugsar með sér,
jú, auðvitað, þetta er augljóst mál – þegar
einhver er búinn að benda á það. Skoðum
vísu sem ber heitið Leiðsögn:
Ó, hvílíkt fagnaðarundur
það yrði og brautin greið
ef sérlegur siðblindrahundur
sýndi okkur rétta leið.
Önnur heitir Kalt vor:
Ótrúlegt er þetta þol,
það má skoða héðan:
Esjan klædd í ullarbol
en alveg ber að neðan.
Og svo er það Organistinn:
Á orgelið Bach með bravúr flytur,
baðar út höndum og fótum.
Rétt eins og kafteinn í kokkpitt situr,
kóarinn flettir nótum.
Skemmtileg bók, full af gamanmálum og
glensi. RIA.