Stuðlaberg - 01.04.2022, Side 17
STUÐLABERG 1/2022 17
Hvað finnst nemendum um bragreglurnar?
Einfaldar bragreglur finnst mér auðvelt
að kenna börnunum. Þau eru fljót að skilja
grunnatriðin, t.d. í ferskeyttum vísum. Þau
hafa jafnvel alveg náð, sum hver, rökunum
á bak við gnýstuðlun. Allra helst er ég þó að
reyna að fá þau til að finna fyrir hrynjandi
vel ortra kvæða. Það varð til þess að ég tók
þá ákvörðun að kynna uppáhalds bragarhátt
minn, dróttkveðuna, til leiks í námsefni þeirra.
Enn og aftur notaði ég kvæði eftir Þórarin
Eldjárn sem hefur skálda best náð að snerta
taugar skilnings og ánægju hjá börnum.
Þegar ég hef útskýrt taktfasta hrynjandi
dróttkveðunnar, sex atkvæða línur með hefð
bundnum ljóðstöfum, auk þess að sýna þeim
hvernig þverrímið, sniðrím í frumlínum
og alrím í síðlínum virkar, hafa þau sjálf
prófað að yrkja á þann hátt. Ég hef að vísu
ekki látið þau glíma við rímið, heldur lagt
áherslu á að þau nái hrynjandi og ljóðstöfum.
Það útheimtir nokkuð auðugan orðaforða
að vinna með rím eins og í dróttkveðum. Til
að auðvelda þeim byrjunina sleppi ég þeirri
áskorun.
Krökkunum finnst ótrúlega skemmtilegt
að glíma við þessa ,,barnaútgáfu“ af drótt
kveðum. Taktfasta sex atkvæða hrynjandi
eiga þau létt með að tileinka sér og smám
saman verður ljóðstafanotkunin auðveldari.
Hjá mörgum nemendum hefur dróttkveðan
því slegið í gegn. Aðrir hafa meira gaman af
því að gera vísur með endarími.
Getum við átt von á einhverjum hagyrðingum
úr þessum hópi?
Ég vona auðvitað að þessi viðleitni mín
beri þann árangur að einhverjir krakkar
haldi áfram að yrkja háttbundinn kveðskap.
Raunar veit ég til þess að í framhaldi af
þessum sex vikna áfanga hafi nokkrir nem
endur haldið áfram, sér til gamans, að setja
saman vísur með ljóðstöfum. Hvað verður úr
því byggist auðvitað á því hvort krakkarnir
fái örvandi leiðsögn í framhaldinu. Hvort
sem þeir halda áfram að yrkja háttbundið
eða ekki þá finnst mér þó augljóst að þeir
hafi haft eitthvert gagn af því að þekkja
uppbyggingu háttbundinna kvæða. Það auð
veldar þeim að njóta góðra ljóða, auk þess
að krakkarnir gera sér ljósari grein fyrir
möguleikum íslenskunnar. RIA.
Grunnskólanemendur
yrkja dróttkvætt
Hér eru dæmi um dróttkveðuæfingar
þar sem rími er sleppt en áhersla lögð á
hrynjandi og ljóðstafi:
Vindurinn er vondur
voðalega kaldur.
Sandur fýkur sundur
súpan verður kornótt.
Fjöllin eru fannhvít
fiskar eru sterkir.
Læknum liggja þeir í
litlu silungarnir.
Guðmundur Logi Ólafsson, 6. bekk.
Ég á kæra ketti
kisan mín er falleg.
Litlu börnin leika
lasagne er frábært.
Perlur eru perlur
Palli Már er strákur.
Sprittið algjört splitt er
spóinn minn er flottur.
Hrefna Marín Sigurðardóttir, 5. bekk.
Vindurinn er vondur
voðalega kaldur.
Rigningin er rysjótt
riddarinn er leiður.
Hesturinn er harður
háfurinn er grimmur.
Guðlaxinn er gaurinn
gullkarfi er flottur.
Óliver Óskarsson og
Arnór Logi Björnsson, 6. bekk.