Stuðlaberg - 01.04.2022, Side 18

Stuðlaberg - 01.04.2022, Side 18
18 STUÐLABERG 1/2022 Fastmótað form veitir öryggi Rætt við Anton Helga Jónsson Anton Helgi Jónsson er ljóðskáld. Hann hefur sent frá sér bækur með óbundnum ljóðum en einnig mjög vel unnin hefðbundin ljóð. Eftir hann hefur komið út limrukver sem hefur notið mikilla vinsælda og eins hefur hann gert kvæði sem vakið hafa athygli. Ég var eitthvað að setja saman vísur sem strákur og vann mér það til frægðar að senda botn inn í vísnaþátt í útvarpinu og fá hann lesinn upp. Þessar yrkingar komu einhvern veginn ósjálfrátt en um fermingu var ég farinn að yrkja ansi mikið meðvitað og hef síðan þá verið nær óstöðvandi. Ég veit ekki hvers vegna. Fyrstu ljóðin sem ég heyrði og lærði að einhverju leyti voru þjóðkvæðastef sem mamma hafði yfir, Ló, ló mín, Lappa og Fuglinn í fjörunni en síðan var auðvitað mikill utanbókarlærdómur í skólanum en þar var ekki allt jafn skemmtilegt. Fyrsta kvæðið sem ég man eftir að hreif mig var Þótt þú langförull legðir eftir Stefán G. Það var eitthvað við hljóminn sem snerti mig þar en fyrsta kvæðið sem ég man eftir að hafa heyrt og lært sjálfviljugur, kannski ellefu ára, var eftir Stein Steinarr. Mér er sú stund ógleymanleg. Þetta var á Strandgötunni í Hafnarfirði, fyrir framan Skálann. Besti vinur minn kom uppveðraður til mín og sagði: Hefurðu heyrt þetta? Síðan þuldi hann upp „Að sigra heiminn er eins og að spila á spil með spekingslegum svip og taka í nefið.“ Ég hafði aldrei heyrt aðra eins snilld og lærði línur Steins á staðnum. Tólf ára flutti ég úr Firðinum til Reykjavíkur og varð sama ár eða ári seinna sendisveinn á skrifstofu Olíufélagsins. Þar unnu ungir menn sem létu stundum fjúka í kviðlingum og það varð til þess að ég fór að kasta fram vísum líka. Einn ungu mannanna tók sig þá til og bað mig að skjótast út í Mál og menningu fyrir sig til að kaupa kver um íslenska bragfræði. Það gerði ég og þegar ég kom aftur upp á skrifstofu afhenti hann mér kverið og sagði: „Þú mátt eiga þessa bók. Lærðu það sem stendur í henni.“ Síðan sneri hann sér að sinni vinnu en ég hlýddi og tileinkaði mér smám saman það sem var í þessu ágæta bragfræðikveri. Ég orti mikið undir alls konar bragarháttum og háttleysum öll mín unglingsár og gaf loks út lítið kver þegar ég var 19 ára, haustið 1974. Undir regnboga heitir kverið og það inniheldur eitt eða tvö ljóð sem mér þykir ennþá vænt um og læt stundum fljóta með á upplestrum. Hverjir voru helstu áhrifavaldar þínir þegar þú varst að tileinka þér listina? Fyrstu kvæðin sem ég setti saman áttu að vera dægurlagatextar en það var sú grein ljóðlistarinnar sem mig langaði og langar svo sem enn til að fást við og eiginlega skil ekki hvers vegna ég fór að gefa út bækur. Fyrir mig var það óvænt góður bragfræðiskóli að vinna hjá Olíufélaginu en þar fór líka að vinna fyrsta skáldið sem ég hitti á ævinni, Jóhanna G. Erlings. Hún hefur líklega aldrei gefið út bók en á þessum tíma orti hún lipra texta fyrir vinsæla söngvara og tónlistarmenn, Ragga Bjarna, Ellý, Ingibjörgu í B.G. og Bjögga. Ég man eftir því að einn daginn komu popparar sem ég mat mikils að sækja til hennar texta. Hvenær sem ég sá hana eitthvað annars hugar eftir það var ég viss um að hún væri að setja saman texta og bar svo mikla virðingu fyrir henni að ég gat varla komið upp úr mér orði í návist hennar, sem var óhepppilegt vegna þess að hún var minn næsti yfirmaður í fyrirtækinu. Jóhanna G. Erlings var mín fyrsta fyrirmynd á þessu sviði en síðan féll ég gjörsamlega fyrir Þorsteini Erlingssyni og

x

Stuðlaberg

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Stuðlaberg
https://timarit.is/publication/1892

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.