Stuðlaberg - 01.04.2022, Síða 22

Stuðlaberg - 01.04.2022, Síða 22
22 STUÐLABERG 1/2022 í aukinni og endurbættri útgáfu 2012. Bókin skiptist í sjö kafla og þeir tengjast dauðasyndunum svokölluðu sem sumir vilja reyndar kalla höfuðsyndir. Þessar tengingar eru nokkuð frjálslegar en með góðum vilja geta glöggir lesendur samt séð að hrokinn ræður ríkjum í fyrsta kafla, græðgin í þeim næsta, öfund í þeim þriðja og síðan koma reiði, munúð og óhóf en í lokakaflanum er greinilegt dugleysi eða leti sem þjakar persónur verksins. Ég hef aldrei verið trúaður maður en hug­ myndir um dauðasyndir hafa heillað mig frá unglingsárum og snemma reyndi ég að yrkja eitthvað út frá þeim en náði ekki tökum á verkefninu fyrr en í syrpu sem ég birti á prenti þegar ég var kominn vel á fertugsaldur. Ég hef gert fleiri syrpur þar sem ég hef beint og óbeint stuðst við þessar synda hug­ myndir sem upphaflega eru komnar til mín úr Guðdómlega gleðileiknum hans Dantes Alighieris. Ég hef alltaf verið haltur í höfðinu og þegið með þökkum ýmsar hækjuhugsanir til að styðja mig við á lífsleiðinni á svipaðan hátt og ég styð mig stundum við stuðla og höfuðstafi. Hvað er svo á döfinni hjá skáldinu Antoni Helga? Ný bók í smíðum? Ég er að senda frá mér bók þetta vorið. Þykjustuleikarnir heitir hún og sækir inn­ blástur í ævintýrið af Vöndu og Pétri Pan en í stað þess að elta Pétur til Hvergilands flýgur Vanda mín með huga sínum inn í sirkus og leikheima nútímans. Leiðangur hennar kallast á við ferðalögin í Gleðileiknum guðdómlega og þótt víða sé dimmt þá birtir í lokin. Þetta er heimatilbúið alþýðuleikhús þar sem ríkir mikil fjölbreytni og jafnvel óreiða en líka fegurð og gleði. RIA. Á kaf sökkva Kolbeinseyjar í Kyrrahafsöldurnar Anton Helgi hefur ort ljóðaflokk sem hann kallar „Eyjar og annes. Jónas á tímum loftslagsbreytinga“ og kallast á við „Annes og eyjar“ Jónasar Hallgríms­ sonar. Ljóðin eru alls tólf, þrjú erindi hvert. Það sem hér birtist er númer fjögur í röðinni. Kolbeinseyjar Enn geislar um gamla daga þar gerast jú kraftaverk: Þann bátinn sem ber frá landi til baka fær trúin sterk. Vart geta þótt kröftug kæling mín kaldhæðnu svölu orð ef hnettinum ógnar hlýnun og hækkandi sjávarborð. Það reynist oft flókið ferli að finna við gátu svar. Á kaf sökkva Kolbeinseyjar í Kyrrahafsöldurnar. Anton Helgi kveðst stundum styðja sig við stuðla og höfuðstafi.

x

Stuðlaberg

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Stuðlaberg
https://timarit.is/publication/1892

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.