Stuðlaberg - 01.04.2022, Side 23

Stuðlaberg - 01.04.2022, Side 23
STUÐLABERG 1/2022 23 Grímsvatnagrallari Snilldarbrögð Sigurðar Þórarinssonar jarðfræðings Grímsvatnagrallari heitir rit sem Jökla­ rannsóknafélagið gaf upphaflega út árið 1975. Tilefnið var 25 ára afmæli félagsins. Innihaldið er ekki af lakari endanum því að það saman stendur af söngtextum eftir Sigurð Þórarins son jarðfræðing sem þá var formaður félagsins. Ritið var svo endurútgefið árið 2012 í tilefni af því að þá hefði Sigurður orðið hundrað ára. Í kverinu eru þrjátíu og sex söngtextar. Marga þeirra þekkir hvert mannsbarn á Íslandi og þeir eru fyrir löngu orðnir ómissandi hluti af sönghefð okkar. Þar má nefna textann Land veit ég langt og mjótt og það fræga Þórsmerkurljóð, sem hver einasti Íslendingur hefur einhvern tíma sungið (fjallað er um tilurð Þórsmerkurljóðs í Stuðlabergi 2/2020, bls. 9). Hér er raunasagan um þá sélegu píu Siggu Geira, hér er þekkt ljóð um senjórítur suður á Spáni og vísur um ótímabært andlát Sigga á Vatnsleysu og ekkjuna Þóru. Þarna er líka einn mest sungni partísmellur Íslandssögunnar fyrr og síðar um að lífið sé skjálfandi lítið gras, hér er ljóðið sem allir kunna, Svífur yfir Esjunni sólroðið ský, sem heitir reyndar Vorkvöld í Reykjavík og þarna er söngurinn yndislegi, Vestast í Vesturbænum / hvar vorsól fögur skín. Aðrir textar í kverinu eru líklega minna þekktir en allir eru þeir vel gerðir og undir lögum sem henta til söngs. Sigurður var fæddur 1912 og lést 1983. Hann var einkum þekktur fyrir vísindastörf á sviði jarð­ og öskulagafræði en hann kunni auk þess öðrum betur að gera söngvæna texta. Hann var líka einstaklega fundvís á fallegar og melódískar laglínur til að yrkja við. Tveggja binda ævisaga hans, Sigurður Þórarinsson — Mynd af manni, kom út fyrir síðustu jól. Sigrún Helgadóttir skráði og Náttúruminjasafnið gaf út. Bókin hlaut íslensku bókmenntaverðlaunin 2022 í flokki fræðibóka og rita almenns efnis. Einn textinn í kverinu er gerður við lagið Sofðu unga ástin mín og heitir Vögguljóð jöklamæðra: Sigurður hafði gaman af því að taka lagið og gítarinn var aldrei langt undan.

x

Stuðlaberg

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Stuðlaberg
https://timarit.is/publication/1892

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.