Stuðlaberg - 01.04.2022, Qupperneq 25

Stuðlaberg - 01.04.2022, Qupperneq 25
STUÐLABERG 1/2022 25 Karl Ásgrímur Ágústsson eða Kalli í Litla­ Garði, eins og hann var gjarnan kallaður, fæddist 7. desember 1910 að Grund á Borgarfirði eystra. Foreldrar hans voru Ágúst Ásgrímsson og Guðbjörg Alexandersdóttir. Móðir Karls var mjög hagmælt og hafði það fyrir venju að kveðast á við barnahópinn sem stóð þá saman að því að setja saman stökur sem móðir þeirra svaraði með annarri stöku til. Karl hafði gaman af þessari iðju og tók virkan þátt. Þetta er sögð vera hans fyrsta vísa, kveðin við 10 ára aldurinn: Að Grund er komin gleði ný glymja sköll um næturvökur. Það er fjandans fyllerí og fjandi góðar pönnukökur. Eiginkona Karls var Þórhalla Steinsdóttir, einnig ættuð frá Borgarfirði eystra. Hófu þau búskap sinn á Þórshöfn en fluttu síðar að í Litla­Garði í Eyjafirði. Þau eignuðust tíu börn. Karl starfaði við verslunarstörf lengst af, fyrst hjá Kaupfélagi Langnesinga, þá Kaup­ félagi verkamanna og síðar hjá Iðunni skó­ gerð. Auk þess voru þau hjón alla tíð með búskap og þegar mest lét höfðu þau á húsi tólf kýr, níutíu kindur og sex hross. Ástríða Karls var alla tíð hestar og fjölgaði þeim ört eftir að hann hætti búskap með kýr. Mikið af þeim vísum sem eftir hann liggja tengjast þessu. Karl var spurður hvað hann ætti marga hesta og svaraði hann svo: Hef ég varla af hestum nóg hópinn upp þó lesi: Gola, Bleikur, Fála, Fró, Fjöður, Kvistur, Blesi. En lífið var ekki bara hross og vísuna sem hér fer á eftir samdi Karl er hann var að vinna á Iðunni, en þeir Iðunnarmenn voru vanir að kveðast á við starfsmenn Gefjunar. Eitthvað þóttist Karl kannast við úr vísum Gefjunarmanna svo hann sendi þeim eftir­ farandi: Hér á landi lyginnar lýðir standa hissa þegar andans aumingjar annarra hlandi pissa. Karl gerði ekki mikið að því að halda ljóðagerð sinni á lofti og því miður hirti hann mjög lítið um að festa hendingar sínar á blað. Þórhalla kona hans gerði það frekar og er það því henni að þakka að nokkuð af vísum hans hefur varðveist. Eitt sinn, er hann var inntur eftir vísu, svaraði hann að bragði: Eftir Kalla lítið liggur, lás er fyrir kjaftinum. Annarra stökur eftir tyggur, andinn tapar kraftinum. Hér á landi lyginnar Vísur Kalla í Litla­Garði Karl var góður hagyrðingur, eins og hann átti kyn til.

x

Stuðlaberg

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Stuðlaberg
https://timarit.is/publication/1892

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.