Stuðlaberg - 01.04.2022, Page 28
28 STUÐLABERG 1/2022
Af rímna
háttum V
Stuðlafall, vikhenda,
afhenda og stúfhenda
Thorsteinsson sem hvatti til útgáfu og las
próförk. Honum tileinkaði séra Friðrik
kverið.
Hann sýndi það einnig séra Matthíasi,
sem birti langa og lofsamlega umsögn
um kverið í Austra 6. janúar 1913 og segir
þar: „Ritið er í sannleika eitt þeirra fáu,
sem ætti að komast inn á hvert heimili.
Síra Friðrik á engan sinn líka hér á
landi. ... Hann er að allra dómi, sem starf
hans kunna að meta og elska, hinn mesti
skörungur ... Sómi og sönn blessun fylgi
honum og hans fagra lífsstarfi!“
Friðrik segir sjálfur í fagurlega
handrituðum formála endurútgáfunnar
1952:
„Ég hef aldrei fundið til eins mikillar
höfundargleði eins og þá, er ég var baksa
við að setja fram undir hinum dýra hætti
hina nýju uppgötvun mína á fegurð og
gildi knattspyrnuíþróttarinnar. Áður
stóð þessi leikur fyrir mér sem hringl
eitt, sneytt öðru markmiði en því að
fá holla hreyfingu í góðu lofti. En á
einum vettvangi opnuðust augu mín;
það var á æfingu í hinu nýstofnaða
knattspyrnufélagi KFUM Val, og ég sá,
að þessi íþrótt væri göfug, fögur og sönn
list, vellöguð til að hafa heilsusamleg
áhrif á allan manninn með líkama, sál
og anda til eflingar góðs þroska og
menningar. Ég sá, að þessi íþrótt gæti,
ef rétt væri á haldið, stutt að kristilegu,
hreinu og heilbrigðu æskulífi, gæti
eflt fjör og karlmennsku, ósérhlífni,
sjálfstamningu og drenglyndi, og þannig
lagt traustan grundvöll undir dáðríkt
lífsstarf á komandi tíð.“
Kveikjan að lífsskoðun séra Friðriks
var kristileg umhyggja fyrir fátæku
fólki og vonin um og viljinn til að búa
ungu fólki af fátækum heimilum góðan
samastað í heilbrigðu félagslífi, íþróttum
og söng.
Þorvaldur Gylfason tók saman.
Í síðasta hefti voru skoðaðir rímnahættir
sem heita stikluvik, valstýft, braghent og
valhent. Í þessum síðasta þætti verður
fjallað um bragarhætti sem kallast stuðlafall,
vikhent, afhent og stúfhent. Stuðst er við
dæmi eftir Skúla Pálsson og Sveinbjörn
Beinteinsson.
Sautjándi hátturinn heitir stuðlafall. Vísa
undir þeim hætti kallast það sama.
Lýsing: Þrjár línur, 1. lína er fimm kveður
óstýfðar, tveir stuðlar, sá seinni í 3. kveðu.
2. og 3. lína eru frumlína og síðlína og stuðlast
þannig: fjórar kveður með þá síðustu stýfða.
Þær tvær ríma saman en fyrsta línan rímar
ekki við hinar (rímform er Oaa).
Dæmi:
Sumarnótt ég sit og yrki vísur,
löngum hverfa ljóðin mín,
ljúfa vina, öll til þín. (S.P.)
Átjándi hátturinn heitir vikhent. Vísa
undir þeim hætti kallast vikhenda.
Lýsing: Þrjár línur, 1. lína er fimm
kveður óstýfðar, tveir stuðlar, sá seinni
í 3. kveðu. 2. og 3. lína eru frumlína og
síðlína og stuðlast þannig: frumlínan er
fjórar kveður og sú síðasta stýfð, síðlínan
er þrjár kveður óstýfðar. 3. línan rímar við
1. línu (rímform er AoA).
— ⌣ — ⌣ — ⌣ — ⌣ — ⌣
— ⌣ — ⌣ — ⌣ — ◌
— ⌣ — ⌣ — ⌣ — ◌