Stuðlaberg - 01.04.2022, Qupperneq 30

Stuðlaberg - 01.04.2022, Qupperneq 30
30 STUÐLABERG 1/2022 Ekki man undirritaður nákvæmlega hve­ nær það var, en það var á fyrstu árum net­ samskiptanna. Við vorum að venjast því að geta sent skilaboð gegnum tölvuna og fengið svar. Þetta var afar nýstárleg leið í samskiptum fólks. Bréf voru send og svör bárust, samskiptin voru á allt öðrum hraða en við áttum að venjast og þetta hafði margs konar hagræðingu í för með sér. Svo voru settir saman hópar um alls kyns sérverkefni. Í síðasta blaði segir frá leir.is sem hagyrðingarnir stofnuðu um þetta leyti. Það var þar sem Hjálmar Freysteinsson setti einn daginn inn limru. Þetta var nokkru eftir jól, á þorrablóta­ og átveislutímanum: Bollur skal éta á bolludaginn, baunir og saltkjöt á sprengidaginn, en iðrast hann má maðurinn sá sem át konuna sína á konudaginn. Nokkrum mínútum síðar kom athuga semd við þetta frá Ólafi Halldórssyni handrita­ fræðingi á Árnastofnun: Bollur ég ét á bolludaginn, baunir og saltkjöt á sprengidaginn, en þó hugur sé á ekki húsfreyjan má hafa bóndann í matinn á bóndadaginn. Svo leið stutt stund, þá kom skeyti frá Birni Ingólfssyni skólastjóra sem sat við tölvu sína norður á Grenivík: Ef bollur skal éta á bolludaginn og baunir og saltkjöt á sprengidaginn, þá er mér spurn, spekingar, hvurn andskotann étiði’ á öskudaginn? Kristján Eiríksson fylgdist með þessum send ingum á skrifstofu sinni í Árnastofnun og hann svaraði Birni um hæl: Bollur ég ét á bolludaginn, baunir og saltkjöt á sprengidaginn, svo fæ ég mér bjór og byrja mitt þjór og verð öskufullur á öskudaginn. Þarna varð það sem sé ljóst að tölvutæknin þjónar „stuðlanna þrískiptu grein“ ekki síður en öðru. RIA. Bollur skal éta á bolludaginn Ort við upphaf tölvusamskipta Rétt skal vera rétt Í vorhefti Stuðlabergs 2021 birtist í dægurvísnaþættinum vísa eftir Sigurð Þór Bjarnason. Vísan var ekki rétt eftir höfð. Rétt hljóðar hún þannig: Í haust á að kjósa um konur og menn sem krjúpa og biðja, oss stráin að styðja, við stofninn — sem ef til vill falla mun senn. Beðist er afsökunar á mistökunum. V al ge rð ur G ré ta G rö nd al

x

Stuðlaberg

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Stuðlaberg
https://timarit.is/publication/1892

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.