Stuðlaberg - 01.04.2022, Side 31

Stuðlaberg - 01.04.2022, Side 31
STUÐLABERG 1/2022 31 Gat sagt margt í fáum orðum Sigmundur Benediktsson, vélvirki og hag­ yrðingur, hefur kvatt þennan heim. Hann var fæddur í Eyjafirði 15. mars 1936 og var bóndi á Vatnsenda þar í sveit uns hann flutti á Akranes þar sem hann starfaði við iðn sína. Hann lést 14. mars sl. Sigmundur var meistari hins hefðbundna ljóðs. Hann var afkastamikill og hraðvirkur vísnasmiður og þekktur fyrir dýrt kveðnar og afar vel gerðar vísur. Hann hélt sig mest við rímnahættina en hann átti líka til að yrkja undir öðrum bragarháttum. Bragurinn lék honum á tungu, allt varð honum að ljóði. Sigmundur var félagi í Kvæðamanna­ félaginu Iðunni og tók þátt í skemmtikvöldum félagsins þar sem meðal annars er mikið fengist við vísnagerð. Hann var góður félagi sem vékst aldrei undan því að rétta hjálparhönd ef einhvers þurfti með. Sigmundur sendi frá sér fjórar bækur, Þegar vísan verður til 2012, Meðan stakan mótast létt 2013, Úr viðjum vitundar 2015 og Kvæðarímur 2020. Oftast var hann stuttorður og gagnorður, gat sagt margt í fáum orðum. Ég vil enda þessi fátæklegu kveðjuorð með stuttu ljóði sem birtist í einni af bókum hans. Það heitir Líf og dauði: Líf vort er skóli og leitandi þörf, lærdóm það gefur við margs konar störf. En dauðinn er fæðing hins ferðbúna manns til frekari göngu á þroskabraut hans. RIA. Í minningu Sigmundar Benediktssonar Hringhendur Bjartviðri Glóey skrýðir grund og haf geislavíðum skarlatskjól, landi fríðu ljóma gaf logaþýð frá himinstól. Sent á Leir Oft þó bjargi ástin hlý oss frá þvargsins kífi, hefur margur hnotið í heimsins kargaþýfi. Kennileiti Ævi rennur sólin senn, sálar grennast skeyti. Blað og penni er þó enn andans kennileiti. Togstreita Eitrar hróður auðsins þrá, orsök þjóðarkífsins. Tap og gróði takast á títt um sjóði lífsins. Ljóðagerðin (oddhenda) Glæðist yndi ljóðs við lind, ljúfir bindast hættir. Birt í skyndi skýr er mynd, skarpir vindast þættir. Sigmundur Benediktsson.

x

Stuðlaberg

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Stuðlaberg
https://timarit.is/publication/1892

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.