Stuðlaberg - 01.04.2022, Side 34
34 STUÐLABERG 1/2022
Uppáhaldsljóðin mín eru mörg, líkt og
uppáhaldsljóðskáldin, og koma úr ýmsum
áttum. Ofarlega á listanum eru ljóð eins og
Hraun í Öxnadal eftir Hannes Hafstein, af
ýmsum ástæðum, Hrafnamóðirin úr Svörtum
fjöðrum Davíðs Stefánssonar svo eitt áhrifa
mikið ljóð úr þeirri góðu bók sé dregið fram.
Af ungum og upprennandi skáldum staldra
ég oft við ljóð Þórarins Eldjárns og Gerðar
Kristnýjar og svo er ég einlægur aðdáandi
sonnettubóka Kristjáns Þórðar Hrafnssonar.
Ljóðið, sem ég vel sem mitt uppáhaldsljóð,
er eftir Ólaf Jóhann Sigurðsson og kom út í
bókinni Að brunnum árið 1974. Það er áhrifa
mikið, tengir saman fortíð, nútíð og fram tíð
með eftirminni legum hætti og spyr mikil
vægra grundvallarspurninga sem eiga jafn
vel við í dag eins og þegar það var ort.
Hvar er þögnin? Hvar er kyrrðin?
Stefán Eiríksson útvarpsstjóri velur sér uppáhaldsljóð
Hvert liggur þessi vegur?
Hvert liggur þessi vegur
sem þið leggið handa vélum
um löndin þver og endilöng,
um öræfi sem byggð?
Hvar er kirkja huldufólksins?
Hvar er klettur smárra dverga?
Hvar er lækurinn hjá bænum?
Hvar er lindin silfurskyggð?
Hvert liggur þessi vegur
sem þið leggið handa vélum?
Hvar er mýrarbýli jaðraka?
Hvar er mjaðarjurt og sef?
Hví heyrist ekki lengur
í hrossagauk og spóa?
Hví stökkva engin köll út
um stelksins rauða nef?
Hvert liggur þessi vegur
sem þið leggið handa vélum?
Hvar er þögnin? Hvar er kyrrðin
sem þér kenndi að dreyma og þrá?
Hvar er lágvær þytur bjarka?
Hvar er blómkyljunnar vísa?
Hvar er löðurhvíti fossinn
sem þú lærðir söng þinn hjá?
Í gráu malarryki
við gnatan stáls og hjóla
að kvikubúum lífs þíns
hefur komið einhver styggð.
Hvert liggur þessi vegur
sem þið leggið handa vélum
um löndin þver og endilöng,
um öræfi sem byggð?