SÍBS blaðið - 01.11.2023, Page 15

SÍBS blaðið - 01.11.2023, Page 15
15 3. tbl. 2023 lendis hefur komið til vegna áhrifa að utan og fólk veit það. Einangrun og innilokun er ekki líkleg leið til aukinnar hag- sældar. En hvað það raunverulega er sem við teljum þessa hag- sæld vera er óljóst. Það er ekki alveg skýrt hvaða sameigin- legu merkingu við leggjum í hugtakið hagsæld og hvernig það aðgreinist frá velsæld eða farsæld. Orðið hagsæld er fallegt orð og mun hlýrra en harðari orð eins og hagvöxtur eða hagn- aður. Þau eru peningalegri en ekki eins mild og orðið hagsæld. Samnefnarinn sem draga má fram úr þessum hagorðum er samt augljósast sá að hagur okkar batnar. Sem er líklega forsenda þess að vellíðan og velsæld nái fram að ganga svo lifa megi farsælu lífi. Til að nýta peningalegu mælikvarðana til betra lífs þá verður að mæla hina ófjárhagslegu mælikvarða samhliða og vega þá síðan saman. Þar koma til sögunnar ójafnaðar og fátæktar rannsókn- irnar sem lágu til grundvallar verðlaununum sem Angus Dea- ton fékk fyrir átta árum síðan. Sá vendipunktur hefur síðan orðið í heimssögunni að í fyrsta sinn á komandi kynslóð ekki von á bættum lífslíkum miðað við foreldrana, í Bandaríkjunum. Auk þess er Kína komið fram úr þeim í meðalævilengd. Sem er ótrúleg framþróun á undravert stuttum tíma, en ójöfnuðurinn er enn vandi þar. Fyrir þremur árum kom út bók eftir Angus Deaton og Anne Case um það sem kalla mætti Dauði vegna örvæntingar og framtíð kapítalismans (Deaths of Despair and the Future of Capitalism). Vonleysi millistéttarinnar og mistök hagfræðinnar leika þar stórt hlutverk sem enn skýrara verður í nýju bók hans sem vikið var að í upphafi greinarinnar. Framþróun og framleiðni Leiðin að aukinni hagsæld - er heitið á sex ára gömlum bæklingi frá Viðskiptaráði Íslands sem fjallar um þróun efna- hagsmála og framvindu umbóta frá útgáfu Íslandsskýrslu alþjóðlegs ráðgjafarfyrirtækis sem gerð var eftir efnahags- og fjármálahrunið 2008. Aukning hagsældar var og yfirskrift aðalfundar Samtaka atvinnulífsins í október 2023. Í raun má segja að við hérlendis höfum sloppið vel frá því hruni þó það hafi á marga mælikvarða verið einna mest fallið hér – enda hátt farið fram að því. Kaupmáttur er gjarnan sagður hafa aukist hér hvað mest í alþjóðlegum samanburði, þegar miðað er við lágpunktinn 2013. Skuldir hins opinbera eru jafnframt sagðar hafa lækkað mikið, aftur í alþjóðlegum samanburði, og er þá miðað við hápunktinn 2008-9. Þar er horft til stærðar skuldanna sem hlutfalli af landsframleiðsl- unni. Sjaldnar er horft á kostnaðinn af þessum skuldum, sem er einna hæstur hérlendis miðað við nágrannalöndin vegna hærri vaxta. Velsældarvísar Hagstofunnar eru mikilvæg nýjung sem kom til í þróunarstarfi eftir fjármálahrunið úr samstarfi Hag- stofunnar og forsætisráðuneytisins sem miða að miðlun mælikvarða um hagsæld og lífsgæði hérlendis. Þeir byggja á skýrslu ráðuneytisins frá 2019 um þróun íslenskra mæli- kvarða á hagsæld og lífsgæði. Alþjóðlega fór mikil gagnrýni af Fáðu góðar vörur á góðu verði og láttu gott af þér leiða – þá vinna allir! Múlalundur | Vinnustofa SÍBS Reykjalundur | 270 Mosfellsbær Sími 562 8500 www.mulalundur.is Möppur Úrval af möppum í öllum stærðum og gerðum Handavinna Við getum pakkað, brotið, merkt og ýmislegt annað Allt fyrir skrifstofuna Ritföng, pappír og aðrar skrifstofuvörur Kíktu á heimasíðu múlalundar – www.mulalundur.is Þú pantar og við sendum til þín hvert á land sem er Pappírspokar Með og án áletrunar – margar stærðir og litir

x

SÍBS blaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: SÍBS blaðið
https://timarit.is/publication/1222

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.