Framkvæmdafréttir Vegagerðarinnar - 19.06.2023, Side 25

Framkvæmdafréttir Vegagerðarinnar - 19.06.2023, Side 25
Framkvæmdafréttir nr. 725 3. tbl. 31. árg. 25 „Framkvæmdir hafa gengið mjög vel. Þær hófust í ágúst í fyrra en þar sem vorið var mjög kalt tefst verkið um eina eða tvær vikur,“ segir Aron Bjarnason umsjónarmaður verksins Búrfellsvegur (351), Klausturhólar – Búrfell. Verklok áttu að vera 15. júní 2023 en verða líklega í lok mánaðar. Framkvæmdin nær yfir 4,25 km kafla sem nær frá slitlagsenda nærri Klausturhólum að slitlagsenda við Búrfell. Þetta var áður hefðbundinn malarvegur en framkvæmdin er fjármögnuð af tengivegafé. Verkið felst í styrkingu og klæðingu bundins slitlags ásamt lagfæringu núverandi vegar í 6 m breiðan veg með 5,8 m breiðu bundnu slitlagi og 2 x 10 cm breiðum malaröxlum. Endurnýja þarf flest ræsi í veginum, færa nokkrar vegtengingar og á kafla hliðrast vegurinn allur og er þar um alveg nýjan veg að ræða. Einnig verða girðingar færðar og lagaðar. Búrfellsvegur (351), Klausturhólar - Búrfell Framkvæmdum við uppbyggingu, breikkun og klæðingu Búrfellsvegar, frá Klausturhólum að Búrfelli lýkur í lok júní. Verktaki er Suðurtak ehf. á Selfossi sem átti lægsta boð í verkið, um 30 m.kr. undir áætluðum verktakakostnaði. Helstu magntölur framkvæmdarinnar eru: → Skeringar 5.000 m3 → Styrktarlag 0/63 7.900 m3 → Burðarlag 0/22 6.000 m3 → Steinefni 8/16 770 m³ → Tvöföld klæðing 25.500 m2 → Frágangur fláa 36.000 m2 Umferð um Búrfellsveg er ekki þung. ÁDU (meðalumferð á dag yfir árið) er um 234 bílar, SDU (meðalumferð á dag yfir sumarmánuðina) er 288 bílar og VDU (meðalumferð á dag yfir vetrarmánuðina) er 207 bílar. Hins vegar hefur umferð þungra bíla aukist nokkuð um þennan veg síðastliðin ár. Verktaki framkvæmdanna er Suðurtak ehf. á Selfossi sem bauð um 179 m.kr. í verkið, en áætlaður verktakakostnaður var 209 m.kr. ↓ Verkið nær frá Klausturhólum að Búrfelli, um 4,25 km leið. Búrfell Ingólfsfjall Borg í Grímsnesi Kerið Seyðishólar Framkvæmdasvæði Biskupstungnabraut (3 5) K iðjabergsvegur (353) Búrfellsvegur (351) Þingvallavegur (36) G ra fn in gs ve gu r n eð ri (3 50 ) Úlfljótsvatn Bauluvatn Álftavatn Sogið

x

Framkvæmdafréttir Vegagerðarinnar

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Framkvæmdafréttir Vegagerðarinnar
https://timarit.is/publication/1142

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.