Framkvæmdafréttir Vegagerðarinnar - 19.06.2023, Síða 25
Framkvæmdafréttir nr. 725
3. tbl. 31. árg.
25
„Framkvæmdir hafa gengið mjög vel. Þær hófust
í ágúst í fyrra en þar sem vorið var mjög kalt tefst
verkið um eina eða tvær vikur,“ segir Aron Bjarnason
umsjónarmaður verksins Búrfellsvegur (351),
Klausturhólar – Búrfell. Verklok áttu að vera 15. júní
2023 en verða líklega í lok mánaðar.
Framkvæmdin nær yfir 4,25 km kafla sem nær
frá slitlagsenda nærri Klausturhólum að slitlagsenda
við Búrfell. Þetta var áður hefðbundinn malarvegur en
framkvæmdin er fjármögnuð af tengivegafé. Verkið
felst í styrkingu og klæðingu bundins slitlags ásamt
lagfæringu núverandi vegar í 6 m breiðan veg með
5,8 m breiðu bundnu slitlagi og 2 x 10 cm breiðum
malaröxlum. Endurnýja þarf flest ræsi í veginum, færa
nokkrar vegtengingar og á kafla hliðrast vegurinn allur
og er þar um alveg nýjan veg að ræða. Einnig verða
girðingar færðar og lagaðar.
Búrfellsvegur (351),
Klausturhólar - Búrfell
Framkvæmdum við uppbyggingu, breikkun og
klæðingu Búrfellsvegar, frá Klausturhólum að
Búrfelli lýkur í lok júní. Verktaki er Suðurtak ehf. á
Selfossi sem átti lægsta boð í verkið, um 30 m.kr.
undir áætluðum verktakakostnaði.
Helstu magntölur framkvæmdarinnar eru:
→ Skeringar 5.000 m3
→ Styrktarlag 0/63 7.900 m3
→ Burðarlag 0/22 6.000 m3
→ Steinefni 8/16 770 m³
→ Tvöföld klæðing 25.500 m2
→ Frágangur fláa 36.000 m2
Umferð um Búrfellsveg er ekki þung. ÁDU
(meðalumferð á dag yfir árið) er um 234 bílar, SDU
(meðalumferð á dag yfir sumarmánuðina) er 288 bílar
og VDU (meðalumferð á dag yfir vetrarmánuðina) er
207 bílar. Hins vegar hefur umferð þungra bíla aukist
nokkuð um þennan veg síðastliðin ár.
Verktaki framkvæmdanna er Suðurtak ehf. á
Selfossi sem bauð um 179 m.kr. í verkið, en áætlaður
verktakakostnaður var 209 m.kr.
↓
Verkið nær frá
Klausturhólum að
Búrfelli, um 4,25 km leið.
Búrfell
Ingólfsfjall
Borg í
Grímsnesi
Kerið
Seyðishólar
Framkvæmdasvæði
Biskupstungnabraut (3
5)
K
iðjabergsvegur (353)
Búrfellsvegur (351)
Þingvallavegur (36)
G
ra
fn
in
gs
ve
gu
r n
eð
ri
(3
50
)
Úlfljótsvatn
Bauluvatn
Álftavatn
Sogið