Úrval - 01.12.1975, Síða 54
52
ÚRVAL
leg stofnun, sem hefur aðalbækistöð í
San Diego, skipar svo fyrir, eftir að
hafa gaumgæft allar upplýsingar ná-
kvæmlega, að nú skuli veiðum hætt í
bili.
San Diegoflóinn lokast næstum al-
veg af tveim skögum. Sá syðri nefnist
Silfurströnd, sandtangi, sem er um 10
mílur að lengd. Á norðurodda hans er
úthverfið Coronado, en á meðal íbúa
þess eru hvorki meira né minna en
31 aðmíráll, sem sestur er þar í helg-
an stein. Pað, sem setur einna helst
svip á þetta baðstrandarúthverfi, er
hið gamla del Coronado hótel með
sínum íburðarmiklu turnum og litríku
steinum. Pað er álitið vera stærsta
timburhús landsins. Pað var í miklu
uppáhaldi hjá kvikmyndajöfrum og
stjörnum frá Hollywood á þriðja og
fjórða tug aldarinnar.
Að norðanverðu lokar Lomaoddi
næstum flóanum og skýlir jafnframt
skemmtibátum í hundraðatali, sem hafa
þar lægi. Bátafloti San Diego er um
1.00.000 talsins, allt frá fiskibátum og
kappsiglingabátum til stórra skemmti-
snekkja.
San Diego hélt dýrlega sýningu ár-
in 1915 til 1916 til þess að fá iðn-
fyrirtæki til að flytjast þangað. Og
önnur slík sýning var haldin á árunum
1935 til 1936. (Pyrping sýningarbygg-
inga í nýmáriskum stíl myndar nú
kjarnann í hinum dýrlega Balboa-
skemmtigarði í hjarta borgarinnar, en
hann er 1400 ekrur að stærð). Punga-
iðnaðurinn sinnti ekki kalli San Die-
go. En árið 1935 fluttist flugvélaverk-
smiðjan Consolidated Aircraft Corp.
þangað frá Buffalo í New Yorkfylki,
vegna þess að hún var að byrja að
sérhæfa sig í framleið'slu sjóflugvéla,
sem gátu lent á Érievatni að vetri til.
Convair blómstiraði í San Diego í síð-
ari heimsstyrjöldinni. Síðar varð það
einn helsti aðilinn að framleiðsluáætl-
un, sem hafði framleiðslu farþega-
þota á stefnuskrá sinni, en hafði 350
milljón dollara tap upp úr krafsinu.
Og það varð mikið áfall, þegar 20.000
starfsmenn venksmiðjunnar misstu
þannig atvinnu sína.
Borgaryfirvöldin reyndu að vinna
gegn hinum neikvæðu áhrifum þessa
atburðar með því að hefja áætlun um
endurskipulagningu og endurbyggingu
miðborgarinnar. Sú áætlun hefur átt
mikilli velgengni að fagna. Og atvinnu-
lífið hefur sífellt orðið fjölbreytilegra
eftir því sem árin líða. Pað eru um
900 verksmiðjur í borginni, þar á með-
al National Cash Register, Honey-
well, Burroughs og International Har-
vester, sem framleiða flugvélar og
hluti í flugskeyti, hluti í sjónvörp,
tölvur og fleira. Einn af kostum þess,
að lögð hefur verið áhersla á léttaiðn-
að, er hið ómengaða loft, sem er þann-
ig í samræmi við hið hreina vatn fló-
ans. Borgarstjórinn Pete Wilson, sem
er 43 ára að aldri, er ákafur umhverf-
isverndarsinni, og hann þræðir hinn
örmjóa stíg milli „blóma og verk-
smiðjureykháfa“, milli borgarbúa, sem
hvetja til þess, að unnið sé gegn frek-