Skaginn - 01.12.1944, Síða 10
F er ðaminningar
Þrítugasti og fyrsti maí er runninn
upp, bjartur og fagur. í dag stendur
mikið til, nemendur I. og II. bekkjar
gagnfræðaskóla Akraness eru að leggja
af stað í skemmtiferðalag austur í
Fljótshlíð, eina af fegurstu sveitum
landsins. Klukkan hálf tíu eru allir
komnir um borð í m.s. „Víði“, með nesti
og svefnpoka. Krakkarnir eru 36, auk
séra Sigurjóns Guðjónssonar skólastjóra,
sem einnig er fararstjóri, og Magnúsar
Jónssonar aðal-kennara skólans. Það er
Ijómandi fagurt veður; báturinn ruggar
aðeins örlítið. Allir geta verið úti, eng-
inn er sjóveikur. Þegar klukkuna vant-
ar fjórðung stundar í ellefu, erum við
komin til Reykjavíkur. Á bryggjunni
bíður Magnús kennari eftir okkur, með
tvo stóra fólksflutningabíla frá Bifreiða-
stöð íslands. Klukkan ellefu er allt til-
búið, og þá er lagt af stað áleiðis til
Kambabrúnar. Þar förum við úr bílun-
um og litumst um. Þaðan er ágætt út-
sýni yfir Suðurlandsundirlendið. Mikið
er það fallegt. Ölfusá liðast þar um lygn
og breið, eins og stöðuvatn. Landið er
mjög lágt, og sjórinn er rétt jafnhár
þurrlendinu. Séra Sigurjón sýnir okkur
hið helzta og útskýrir það um leið. Við-
dvölin er stutt. Aftur er stigið upp í bíl-
ana, og áfram höldum við til Hvera-
gerðis, til að vita, hvort okkur heppnist
að sjá Grýtu gjósa. Því miður getum við
ekki fengið að sjá það, því að þá yrð-
um við að bíða lengi. Næsti viðkomu-
staður er Selfoss. Við erum komin þang-
að um klukkan tólf. Á Selfossi borðum
við hádegismat og skoðum okkur vel
um. Þar kaupum við okkur epli til að
borða á leiðinni.
Nú höldum við stöðugt áfram, þangað
til við komum að Stórólfshvoli. Þar ætl-
um við að gista um nóttina í barnaskól-
anum. Sigurjón fer þar úr bílnum og
talar við fólkið, og fær leyfi. Næst er
ferðinni heitið til Hlíðarenda. Þar vor-
um við góða stund. Því næst ók bílstjór-
inn eins langt inn með Fljótshlíðinni og
vegurinn leyfði. Þá varð að snúa bílun-
um við og haldið áfram til baka. í baka-
leiðinni komum við að Eyvindarmúla,
til að fá keypta mjólk. En fólkið þar var
svo gestrisið, að það vildi fá að gefa
okkur kökur og mjólk. Við komum einn-
ig að Múlakoti til að sjá hinn fagra trjá-
og blómagarð, sem þar er. Næst er ferð-
inni heitið að Seljalandsfossi undir
Eyjafjöllum. Þangað erum við komin
klukkan hálf níu, einmitt bezti tíminn,
sem við gátum kosið til að sjá fossinn.
Mikið er hann fallegur. Hann ljómaði í
öllum regnbogans litum, þar sem hann
steyptist fram. Við gengum undir hann,
tókum myndir af honum, skoðuðum
hann vandlega, og urðum að lokum frá
að hverfa. Annar foss, samt ekki nærri
eins fallegur, er þarna skammt frá.
Þangað gengum við einnig til að sjá
hann. Eftir stutta viðdvöl þar stigum
við upp í bílana, og héldum nú til Stór-
10
SKAGINN