Skaginn


Skaginn - 01.12.1944, Blaðsíða 12

Skaginn - 01.12.1944, Blaðsíða 12
Þjórsárdalur Þjórsárdalurinn er nú hrjóstrugur, en ekki hefur hann alltaf verið það. Hann var einu sinni vaxinn grasi og skógi, þá var þar blómleg byggð og um tuttugu bændabýli. Nú eru þar aðeins tveir bæ- ir: Skriðufell og Ásólfsstaðir, sem nú er sumargistihús. Oft dvelur þar margt fólk, sem langar til að sjá hinn einkenni- lega dal. Undir Hagafjalli er Gaukshöfði. Það- an er fagurt útsýni. Þjórsá, lygn og breið fyrir neðan. Dalurinn breiðir sig á móti manni. Hinumegin árinnar er hið mikla eldfjall, Hekla, þar er einnig Skarðsfjall og Bjólfell, forn trölla bú- staður. Á Gaukshöfða var Gaukur Trandilsson drepinn, er hann var á leið heim til sín úr kaupstaðarferð. Skammt fyrir innan er Bringa. Þar á milli er vegurinn svo tæpur, að þegar Þjórsá er vatnsmikil, rennur hún stundum upp á veginn, en það getur valdið truflun á bílferðunum. Milli Ásólfsstaða og Skriðufells er enn töluverður skógur, og nær hann nokk- uð inn fyrir Skriðufell. Þar fyrir innan er enginn gróður í dalnum, aðeins sand- Drengurinn, sem meiddist, var flutt- ur um borð í „Víði“, og þar var honum komið fyrir á eins góðum stað og hægt var. Honum batnaði rétt strax, eftir að heim var komið, og nú er aðeins örið eftir. Ferðin með m.s. Víði gekk vel. Klukk- an var að byrja að ganga sjö, þegar við vorum komin heim. Við skildum glöð og ánægð með ferðina, þrátt fyrir slysið. S. Á. ar, hraun og vikrar. Sumstaðar sjást enn leifar af bæjum, en ekki er vitað með vissu um alla bæi, sem voru í daln- um. Kirkjugarður hefur fundist þar, og er það talið vera á Skeljastöðum, þar sem Hjalti Skeggjason bjó. í Stöng bjó Gaukur Trandilsson. Þar hafa verið grafnar upp húsarústirnar og byggt yfir. Þar er hægt að sjá margt, sem óvíða er til annars staðar. í smiðj- unni er stór steinn, sem járn hefur að líkindum verið barið við. Þar er einnig annar steinn, með laut í, ennfremur sá þriðji með sniðnum köntum. í þessari holu var einnig dálítið af rauðum sandi, en ekki fékk ég neina skýringu á því, til hvers hann hefur verið notaður. Margt fleira var þar, sem ég er búin að gleyma. í skálanum hafa verið langpallar með fram veggjunum og langeldur á milli þeirra. í búrinu eru för eftir tvær ám- ur, sennilega skyrámur. Það hafa ekki verið nein smáílát. Einkennilegir klett- ar eru norðvestan við dalinn. Það er hinn svonefndi Dímon. Þar er hið ein- kennilega Tröllahlið. í Gjánni er margt undarlegt, sem ekki er gott að lýsa. Hún er dularfull, með 12 SKAGINN

x

Skaginn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skaginn
https://timarit.is/publication/1913

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.