Víkurfréttir


Víkurfréttir - 15.05.2024, Blaðsíða 4

Víkurfréttir - 15.05.2024, Blaðsíða 4
„Gerum hæfilegar væntingar og bökum kannski eldgosabrauð,“ segir Siggi Hérastubbur bakari. Sigurður Enoksson, sjálfur Hérastubbur bakari, er enn á ný búinn að opna bakaríið sitt í Grindavík en hann hefur gert nokkrar tilraunir í vetur. Hann viðurkennir að úthaldið sé farið að minnka og hugsanlega mun hann ljúka leik á Íslandi ef ekki fer að glæðast og gæti endað í Englandi. Það myndi henta honum vel en hann er einn ef ekki dyggasti aðdáandi enska knattspyrnu- liðsins Arsenal og er einmitt for- maður klúbbsins. Siggi var með konuna og syni sína með sér þennan fimmtu- dagsmorgun. Hann reynir ekki að þræta fyrir að vera farinn að lýjast eftir atganginn í Grindavík í vetur og nokkra flutninga. Boð um að opna í Englandi „Já, ég er ekki af baki dottinn en viðurkenni fúslega að þetta hefur tekið á. Hvert áfallið af fætur öðru, fjárhagslegt tjón vegna rafmagns- leysis og viðskiptin hafa auð- vitað hrunið en mér reiknast til að veltan eftir fyrstu fjóra mánuði síðasta árs hafi verið um 60 millj- ónir, hún er nær núlli en einni milljón á þessu ári . Maður er hálfpartinn neyddur til að koma svo það grotni ekki allt hér niður, þetta rekur sig ekki sjálft. Ég er orðinn sextugur og hef velt fyrir mér hvort þetta sé rétti tímapunkturinn að segja þetta bara gott og jafnvel að prófa að búa í öðru landi. Mér stendur til boða að opna bakarí í Englandi, hver veit nema við munum venda okkar kvæði í kross og setjast að þar, þá verður líka styttra fyrir mig að sækja leiki Arsenal.“ Ekki miklar væntingar Við ætlum að gera þessa tilraun til opnunar núna en ég ætla ekki að gera mér of miklar væntingar. Það er ekki gist í nema um tuttugu húsum í Grindavík en sem betur fer er talsverð atvinnustarfsemi farin í gang. Ég sé alveg fyrir mér ef bærinn myndi opna að nóg yrði að gera, ég er sannfærður um að erlendir ferðamenn munu flykkjast til Grindavíkur og landinn eflaust líka. Það var skotið af mér góðri hugmynd, ég ætti að búa til nýtt brauð sem ég myndi nefna eldgosa- brauðið eða eitthvað álíka, bakað í hitanum af eldgosinu. Ég er viss um að þetta brauð færi hraðar út en heitu lummurnar,“ segir Héra- stubbsbakarinn sem skipti nýlega um orkusala og segist spara veru- lega fjármuni á því. „Mér var bent á síðu, aurbjorg.is, sem býður upp á samanburð á öllu á milli himins og jarðar, t.d. á tryggingum og svo rafmagni. Ég skipti yfir til Straumlindar og hef náð að lækka rafmagnskostnaðinn umtalsvert. Rafbílaeigendur ættu að láta kanna þetta hjá sér, Straumlind býður upp á 30% ódýrara rafmagn yfir nóttina. Svona var þetta hér áður fyrr, þá fengu bakaríin ódýrara rafmagn á nóttunni því þá voru flestir sofandi.“ Leiðist keyrslan Siggi segir að ef bærinn verði ekki opnaður sé spurning fyrir hann að stefna á að opna einhvers staðar á höfuðborgarsvæðinu. „Mér leiðist þessi keyrsla en við búum í Reykjavík. Hálf nöturlegt að þurfa keyra eldsnemma til Grindavíkur til að baka, bara til að flytja svo vöruna aftur til baka eftir hádegi en maður er tilbúinn að leggja ýmislegt á sig svo reksturinn gangi. Ég hef verið í viðræðum við keðjur í Reykjavík, við höfum verið mjög vinsæl í vegan-vörunum okkar og hafa stórar keðjur sýnt því mikinn áhuga. Það þýðir ekkert annað fyrir mig en líta bara björtum augum til framtíðarinnar en hvort hún liggi í Grindavík eða á Íslandi yfir höfuð, kemur bara í ljós,“ sagði Siggi að lokum. Hérastubbur opnar á ný GRINDAVÍK Sigurbjörn Daði Dagbjartsson sigurbjorn@vf.is NÝR ÞÁTTUR Á FÖSTUDÖGUM YOUTUBE-RÁS VÍKURFRÉTTA OG VF.IS MATREIÐSLUMAÐUR Í MIÐLÆGT ELDHÚS Í REYKJANESBÆ Skólamatur ehf óskar eftir að ráða matreiðslumann í teymið sitt með frábæru fagfólki í miðlægt eldhús sitt í Reykjanesbæ. Vinnutíminn er alla jafna frá kl. 6:00 til 15:00 alla virka daga. Helstu verkefni og ábyrgð Starfið fellst í undirbúningi, framleiðslu og eldun á skólamáltíðum fyrir leik- og grunnskóla ásamt frágangi og öðrum tilfallandi verkefnum í eldhúsi. Menntun- og hæfniskröfur: • Sveinspróf í matreiðslu eða sambærileg reynsla og/eða menntun • Reynsla af sambærilegu starfi kostur • Brennandi ástríða fyrir mat og matargerð • Góð hæfni í mannlegum samskiptum Með umsókn skal fylgja ferilskrá og kynningabréf. Öll kyn eru hvött til að sækja um starfið. Óskað er eftir að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst. Fyrirspurnir um starfið og umsóknir berist í gegnum radningar@skolamatur.is. Umsóknir berist í gegnum Alfreð. Allar umsóknir eru meðhöndlaðar sem trúnaðarmál. Skólamatur ehf er fjölskylduvænt fyrirtæki sem sérhæfir sig í framleiðslu og framreiðslu á máltíðum fyrir mikilvægasta fólkið. Eiginmaður minn og besti vinur, faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, FRIÐRIK GRÉTAR ÓSKARSSON, frá Norðfirði, Hringbraut 94B, Keflavík, lést á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja laugardaginn 11. maí. Útförin mun fara fram í kyrrþey að ósk hins látna. Karólína Guðnadóttir Þórunn K. Árnadóttir Guðný Svava Friðriksdóttir Valur Ingimundarson Kristinn Geir Friðriksson Björg Hilmarsdóttir barnabörn og langafabörn. Grindvíkingar kjósa forseta í Reykjanesbæ Grindvíkingar munu kjósa í Reykjanesbæ í forsetakosningunum laug- ardaginn 1. júní næstkomandi. Að þessu sinni er kosið að Skógarbraut 945, Reykjanesbæ (húsi Sambands sveitarfélaga á Suðurnesjum á Ásbrú). Kjörstaður opnar kl. 10:00 og lokar kl. 21:00. Kjósendur skulu framvísa persónuskilríki á kjörstað. Kjörskrá liggur frammi almenningi til sýnis í afgreiðslu bæjarskrifstofa Grindavíkurbæjar (Tollhúsinu), frá mánudeginum 13. maí fram að kjördegi. Utankjörfundaratkvæðagreiðsla vegna forsetakjörs fer fram á skrif- stofum sýslumanna, um land allt. Utankjörfundaratkvæðagreiðsla á höfuðborgarsvæðinu fer eingöngu fram í Holtagörðum 1. hæð. 4 // víkurFrÉttir á SuðurNESJuM

x

Víkurfréttir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.